Fara í efni

Sveitarstjórn Skagafjarðar

54. fundur 14. október 2026 kl. 16:24 - 18:03 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir 1. varaforseti
  • Einar Eðvald Einarsson 2. varaforseti
  • Eyþór Fannar Sveinsson aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Magnús Barðdal Reynisson aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Hrund Pétursdóttir aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason aðalm.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Byggðarráð Skagafjarðar - 209

Málsnúmer 2609007FVakta málsnúmer

Fundargerð 209. fundar byggðarráðs frá 17. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Arnór Hafstað lögmaður sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

    Arnór fór yfir helstu málavexti er varða Helgustaði, þar sem fyrir liggur staðbundið hættumat dags. 18. júlí 2024 um ofanflóðahættu á svæðinu.

    Byggðarráð leggur áherslu á að vandað verði til áframhaldandi málsmeðferðar, þar á meðal með samráði við landeigendur, lögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, ríkislögreglustjóra og Ofanflóðanefnd eftir því sem við á.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela lögmanni að vinna málið áfram í samráði við sveitarstjóra.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lögð fram drög að samningi milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Drangeyjarferða ehf. um nýtingu Drangeyjar til ferðaþjónustu. Málið var áður til umfjöllunar á fundi byggðarráðs 27. ágúst 2026 þar sem sveitarstjóra var falið að vinna málið áfram og leggja fyrir byggðarráð að nýju.

    Samningurinn hefur verið yfirfarinn af lögmanni sveitarfélagsins og lagður fram til samþykktar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að leggja hann fyrir fulltrúa Drangeyjarferða ehf. til undirritunar og undirrita hann fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
    Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lagt fram erindi Ólínu Bjarkar Hjartardóttur vegna árlegrar kvöldopnunar á Aðalgötu þann 13. október nk. Óskað er eftir leyfi til að loka hluta Aðalgötu (frá Ráðhúsi) á milli kl. 20:00 og 22:00.

    Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða að því tilskildu að lokun fari fram í samráði við lögreglu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lagður fram tölvupóstur frá Hafdísi Einarsdóttur, formanns björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, dagsettur 9. september 2026.

    Í tölvupóstinum fer hún þess á leit fyrir hönd Skagfirðingasveitar að veitt verði leyfi til að setja upp stuðlabergs-stein austast við brimvarnargarðinn með Strandveginum á Sauðárkróki. Fyrirhugað er að setja skjöld með QR-kóða sem leiðir inn á heimasíðu Skagfirðingasveitar auk smá fróðleiks framan á steininn, m.a. um sjóskaða á Skagafirði, um björgunarsveitirnar og störf þeirra.

    Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Sveins Þ. Finster Úlfarssonar fyrir hönd 1001 minks ehf., kt. 691203-3360, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-H (frístundahús) að Spegilshúsinu, Ytri-Ingveldarstöðum (fastanr. F213-9882), með hámarksgestafjölda tvo gesti.

    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls og Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.

    Sveinn Þ. Finster Úlfarsson tók aftur við stjórn fundarins.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Bjarna Jónssonar fyrir hönd Lifandi náttúru ehf., kt. 690925-0790, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-G (íbúð) að Brúsabyggð 14, Hólum í Hjaltadal (fastanr. F214-2813), með hámarksgestafjölda sex gesti.

    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 8. september 2026. Sambandið vill vekja máls á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð. Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

2.Byggðarráð Skagafjarðar - 210

Málsnúmer 2609017FVakta málsnúmer

Fundargerð 210. fundar byggðarráðs frá 22. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lögð fram gjaldskrá fasteignaskatts, lóðar- og landleigu fyrir árið 2027. Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði tíu, frá 1. febrúar 2027 til 1. nóvember 2027. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 28.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2027. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga í maí og eigi síðar en 10. maí 2027, séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr.

    Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutföll fasteignaskatts fyrir árið 2027 verði eftirfarandi:

    A-flokkur: 0,430% af fasteignamati en var 0,435% árið 2026.
    B-flokkur: 1,32% af fasteignamati, óbreytt frá fyrra ári.
    C-flokkur: 1,65% af fasteignamati, óbreytt frá fyrra ári.

    Með framangreindri breytingu er lagt til að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki frá fyrra ári.

    Lóðarleiga verði jafnframt óbreytt frá árinu 2026. Landleiga beitarlands haldist jafnframt óbreytt milli ára.

    Byggðarráð telur mikilvægt að rekja áfram stefnu sveitarfélagsins um hóflega gjaldtöku gagnvart íbúum eftir því sem fjárhagsleg staða sveitarfélagsins leyfir. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til er fasteignaskattur í A-flokki lækkaður þriðja árið í röð.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá fasteignaskatts og lóðarleigu 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lagðar fram reglur um afslátt af fasteignaskatti 2027.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hækka viðmiðunarfjárhæðir varðandi tekjumörk um 5,2% frá reglum ársins 2026 og að hámarksafsláttur haldist óbreyttur í 100.000 kr. Málinu vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Á árinu 2026 er útsvarshlutfall 14,97% eftir samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga frá 15.12.2023 um tekjustofna vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Umræða tekin um útsvarshlutfall ársins 2027.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2027 og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Útsvarshlutfall 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lagður fram tölvupóstur frá Skrifstofu sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála hjá Innviðaráðuneytinu, dagsettur 6. júlí 2026. Með tölvupóstinum fylgir spurningalisti til sveitarfélaga vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Sveitarstjóri ásamt sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs hafa unnið drög að svörum við spurningalistanum og lögðu fram á fundi byggðarráðs.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að senda inn framlögð svör með áorðnum breytingum við spurningum ráðuneytisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lagt fram bréf frá formönnum VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Fagfélaganna, dagsett 14. september 2026, þar sem vísað er til yfirlýsingar ríkis og sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga árið 2024 um aðgerðir til stuðnings verðstöðugleika og lækkun verðbólgu.

    Í bréfinu eru lagðar fyrir spurningar fyrir byggðarráð sem bréfritarar óska svara við um hvað sveitarfélagið Skagafjörður er tilbúið að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að bregðast við innsendu erindi með eftirfaraindi hætti:

    Spurning: Mun Sveitarfélagið Skagafjörður endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa?
    Svar: Skagafjörður hefur síðastliðin ár eingöngu haft mjög hóflegar gjaldskrárhækkanir, þar sem gjaldskrár hafa öll síðustu ár hækkað langt undir þróun verðlags. Miðað var við 3,7% hækkun við gerð fjárhagsáætlunar 2025 þegar verðbólga líðandi árs var 4,8%, miðað var við 2,7% hækkun við gerð fjárhagsáætlunar 2026 á meðan að verðbólga var 4,5%. Auk þess hefur byggðarráð samþykkt að miðað skuli við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands í gjaldskrárhækkunum sveitarfélagsins sem og hækkun rekstrarliða í sambandi við fjárhagsáætlanagerð 2027, sem er 2,5% og er 12 mánaða verðbólga í ágúst 5,6%. Það er því ljúft og skylt að segja frá því að sveitarfélagið hefur verið mjög hóflegt í hækkunum gjaldskráa og öll síðustu ár hafa hækkanir verið undir verðlagsþróun tímabilsins. Skagafirði er umhugað um að leggja sitt af mörkum til að létta álögum af íbúum og fyrirtækjum í Skagafirði og stefnir að því að gjaldskrár taki hóflegum hækkunum eða lækkunum eftir því sem fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins leyfir.

    Spurning: Hvaða aðgerðir hyggst Sveitarfélagið Skagafjörður ráðast í til að tryggja nægilegt
    framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
    Svar: Skagafjörður á skipulagðar lóðir, tilbúnar til úthlutunar í öllum þéttbýliskjörnum Skagafjarðar og er í virku samtali við áhugasama aðila, bæði félög og einkaaðila um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu.

    Spurning: Hvernig hyggst Sveitarfélagið Skagafjörður leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
    Svar: Skagafjörður leggur allt kapp á að börn hafi fengið úthlutuðu leikskólaplássi frá 12 mánaða aldri. Sveitarfélagið býður jafnframt upp á foreldragreiðslur til foreldra sem ekki hafa fengið úthlutuðu plássi.

    Hvaða aðrar aðgerðir telur Sveitarfélagið Skagafjörður mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
    Byggðarráð telur að með hóflegri gjaldtöku, lækkun fasteignaskatta, ábyrgri fjármálastjórn og stuðningi við uppbyggingu húsnæðis sé sveitarfélagið að leggja mikilvægt framlag til þeirra markmiða sem kjarasamningar aðila vinnumarkaðarins fela í sér um verðstöðugleika og bætta afkomu heimilanna. Byggðarráð bendir jafnframt á að lækkun fasteignaskatta þriðja árið í röð er ein skýrasta aðgerð sveitarfélagsins til að draga úr álögum á heimili á tímum þar sem mikilvægt er að allir aðilar samfélagsins leggi sitt af mörkum til lækkunar verðbólgu og vaxta.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands (SGS), dags. 16. september 2026, um þjóðarsátt um verðstöðugleika og þátttöku sveitarfélaga í að halda aftur af gjaldskrárhækkunum á gildistíma kjarasamninga.

    Í erindinu bendir SGS á að forsendur gildandi kjarasamninga hafa brugðist og að nauðsynlegt sé að allir lykilaðilar samfélagsins taki þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum. SGS leggur til að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir sem hafa áhrif á verðmyndun skuldbindi sig til að halda aftur af hækkunum og miða við að verð og gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að bregðast við innsendu erindi með eftirfarandi hætti:

    Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að allir lykilaðilar samfélagsins leggi sitt af mörkum til að stuðla að verðstöðugleika og lægri vöxtum. Byggðarráð bendir á að við samþykkt forsendna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 hafi verið lögð áhersla á hóflegar gjaldskrárhækkanir og að almennt skuli miðað við að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki ekki umfram 2,5%, sem samræmist verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands og þeim sjónarmiðum sem fram koma í erindi SGS.

    Skagafjörður hefur síðustu ár markvisst gætt hófs í gjaldskrárbreytingum. Við gerð fjárhagsáætlunar 2025 var miðað við 3,7% hækkun gjaldskráa þegar verðbólga nam 4,8% og við gerð fjárhagsáætlunar 2026 var miðað við 2,7% hækkun þegar verðbólga var 4,5%. Fyrir árið 2027 hefur verið ákveðið að miða við 2,5% hækkun, þrátt fyrir að tólf mánaða verðbólga í ágúst hafi mælst 5,6%.

    Byggðarráð telur að sveitarfélagið hafi þannig þegar lagt sitt af mörkum til að halda aftur af kostnaðarhækkunum og létta álögum af heimilum í Skagafirði. Áfram verður stefnt að því að gjaldskrár taki aðeins hóflegum breytingum, eða lækki eftir því sem fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins leyfir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Útgáfufyrirtækið SagaZ ehf. kynnir ritverkið ÍSLAND, atvinnuhættir og menning, sem hefur komið út á tíu ára fresti frá árinu 1990. Verkið geymir upplýsingar um helstu fyrirtæki, stofnanir, félög og samtök landsins ásamt yfirlitsgreinum um sögu, menningu, atvinnulíf og samfélag. Jafnframt er unnið að frekari stafrænni uppbyggingu verksins. Markmið útgáfunnar er að varðveita og miðla upplýsingum um atvinnu- og menningarsögu þjóðarinnar og veita heildstæða yfirsýn yfir íslenskt samfélag.

    Óskað er eftir þátttöku Sveitarfélagsins Skagafjarðar í útgáfu ritsins, en kostnaður vegna þessa er 455.000 kr.

    Byggðarráð telur sér því miður ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lagt fram erindi frá Hollvinum Reykjalundar vegna landssöfnunarinnar Endurhæfum Reykjalund, dags. 17. september 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélaga við brýnni þörf fyrir uppbyggingu og endurbætur á húsakosti Reykjalundar, m.a. endurbyggingu sjúkraþjálfunarálmu. Óskað er eftir að sveitarfélagið Skagafjörður taki þátt í verkefninu.

    Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni en óskar Hollvinum Reykjalundar góðs gengis með landssöfnunina.

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Þann 4. júní 2024 undirrituðu Sótahnjúkur ehf. og sveitarfélagið Skagafjörður samning um rekstur sundlaugarinnar að Sólgörðum í kjölfar útboðs. Sá samningur gildir til 31. desember 2026 og því tímabært að ákveða hver næstu skref verða í þessu máli.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri sundlaugarinnar að Sólgörðum frá og með næstu áramótum. Við auglýsingu eftir rekstraraðila skal tekið mið af gildandi rekstrarsamningi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Lögð fram fyrirspurn frá Jódísi Helgu Káradóttur um áframhaldandi uppbyggingu innviða í hesthúsahverfinu við Flæðagerði á Sauðárkróki, einkum varðandi götulýsingu, bundið slitlag gatna og áfangaskipta framkvæmdaráætlun fyrir hverfið.

    Byggðarráð þakkar fyrir innsent erindi og samþykkir samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Skagafjörður auglýsti til sölu fasteignina Furulund 5, F214-0798. Húsið skal selt til flutnings.

    Borist hafa tvö tilboð í eignina.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna báðum tilboðum í eignina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 210 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

    Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.
    Bókun fundar Afgreiðsla 210. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

3.Byggðarráð Skagafjarðar - 211

Málsnúmer 2609026FVakta málsnúmer

Fundargerð 211. fundar byggðarráðs frá 1. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Þann 7. maí 2026 undirrituðu Sigfús Ingi Sigfússon þáverandi sveitarstjóri Skagafjarðar og Iða Marsibil Jónsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar ehf. undir samning um samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Með samningnum renna íbúðareignir frá Skagafirði til Bríetar ehf.

    Staða málsins rædd og farið yfir samskipti Skagafjarðar og Bríetar ehf. frá undirritun.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá kaupsamningi í samræmi við undirritaðan samning.

    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Sveitarstjórn Skagafjarðar setti sér fjárhagsleg markmið í rekstri Skagafjarðar í lok árs 2024. Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs kynnti fjárhagslegu markmiðin fyrir byggðarráði.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt var fram bréf sem ritað var í kjölfar fundar íbúa í fyrrum Skefilsstaðahreppi þar sem ítrekuð er afstaða bréfritara að óska eftir að félagsheimilið Skagasel verði áfram rekið í óbreyttri mynd.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að bjóða fulltrúum íbúa á fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt fram kauptilboð í félagsheimilið Skagasel í Skagafirði F213-9590, ásamt tilheyrandi 1,2 hektara (12.000 m²) eignarlóð og öllum lausamunum sem til staðar eru í eigninni.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að óska eftir lengdum fresti á tilboðinu og óska eftir upplýsingum um framtíðaráform bjóðanda með húsið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri, sat fundinn undir þessum lið.

    Svavar lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 sem nær til Bruna- og almannavarna.

    Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við heildarsamsetningu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 sem nær yfir sameiginlegan kostnað sveitarfélagsins.

    Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við heildarsamsetningu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessum lið.

    Hjörvar lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 eignasjóð.

    Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við heildarsamsetningu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lögð fram drög að gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar 2027 og slökkvitækjaþjónustu fyrir 2027.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Brunavarna og slökkvitækjaþjónusta 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskránna fyrir Héraðsskjalasafn Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagðar fyrir reglur um heilsueflingarstyrki fyrir árið 2027 sem ætlaðir eru starfsmönnum sveitarfélagsins. Styrkurinn var hækkaður um 10% milli áranna 2025 til 2026 og er því lagt til að fjárhæð heilsueflingarstyrks haldist óbreytt 2027.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirlagðar reglur um heilsueflingarstyrki og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Heilsueflingarstyrkur 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • 3.13 2605271 Flugklasinn Air66N
    Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt fram bréf frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 22. september 2026.

    Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 22. september 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við Flugklasann Air 66N að fjárhæð 500 kr. á hvern íbúa á ári á tímabilinu 2027-2029.

    Byggðarráð tekur undir mikilvægi beins millilandaflugs um Akureyrarflugvöll fyrir ferðaþjónustu og byggðaþróun á Norðurlandi og fagnar þeim árangri sem náðst hefur með starfi Flugklasans Air 66N. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að tryggð verði varanleg og fyrirsjáanleg fjármögnun verkefnisins af hálfu Isavia enda er verkefnið ein af stoðum áframhaldandi þróunar ferðaþjónustu á Norðurlandi.

    Byggðarráð bendir á að verkefnið hefur að verulegu leyti það hlutverk að sinna uppbyggingu innviða og markaðsstarfi sem fellur undir ábyrgð Isavia. Ekki verður því talið eðlilegt að sveitarfélög beri áfram vaxandi kostnað af verkefninu til lengri tíma.

    Byggðarráð vísar til ákvörðunar sinnar á 73. fundi þann 29. nóvember 2023 um að veita verkefninu styrk á árinu 2024 og að ekki yrði um frekari fjárveitingar frá sveitarfélaginu að ræða til verkefnisins. Byggðarráð staðfestir þá afstöðu og telur sér því ekki fært að verða við erindi Markaðsstofu Norðurlands um frekari fjárhagslegan stuðning við Flugklasann Air 66N.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt fram aðalfundarboð Samtaka sjálvarútvegssveitarfélaga. Aðalfundurinn fer fram á Hilton
    Reykjavík miðvikudaginn 7. október kl. 13:00-14:30.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Skagafjarðar og fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

    Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga og þeim breytingum sem stuðla að skýrari stjórnsýslu, auknu gagnsæi og ábyrgri fjármálastjórn sveitarfélaga. Jákvætt er að komið hafi verið til móts við hluta fyrri ábendinga Skagafjarðar, meðal annars með rýmri heimild til að undanskilja tilteknar skuldir og skuldbindingar við útreikning skuldareglu og jafnvægisreglu.

    Byggðasamlög og félög með ótakmarkaða ábyrgð sveitarfélaga, þar á meðal eignarhlutir í landshlutasamtökum, verði færð úr B-hluta í C-hluta reikningsskila. Í frumvarpinu er C-hluti skilgreindur sem félög með takmarkaða ábyrgð sem starfa á markaði, en sú skilgreining útilokar félög sem bera ótakmarkaða ábyrgð aðildarsveitarfélaga. Byggðarráð telur mikilvægt að þessi félög falli utan A- og B-hluta, þar sem núverandi flokkun í B-hluta skekkir ársreikning sveitarfélagsins. Þetta hefur áhrif á lykiltölur eins og handbært fé og veltufjármuni, og gefur ranga mynd af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins til skuldasöfnunar og framkvæmda. Þrátt fyrir að þessi félög séu að mestu sjálfbær og rekin sjálfstætt, eru skuldbindingar þeirra teknar með í reikninginn, sem getur takmarkað fjárhagslegt svigrúm Skagafjarðar.

    Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að tryggt verði að sveiflukenndir liðir, svo sem breytingar á lífeyrisskuldbindingum og fjármagnsliðum, skerði ekki með óeðlilegum hætti fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga. Þá telur byggðarráð nauðsynlegt að endurskoða 10% greiningarviðmiðið með hliðsjón af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga.

    Skagafjörður er landfræðilega víðfeðmt sveitarfélag með dreifða búsetu og fleiri en einn byggðarkjarna. Sveitarfélagið þarf því að halda úti þjónustu, mannvirkjum og öðrum innviðum á stóru svæði óháð íbúafjölda eða fjölda þjónustutilvika á hverjum stað. Kostnaður við lögbundna þjónustu og nauðsynlega innviðauppbyggingu ræðst því ekki eingöngu af stærð íbúahóps heldur einnig af vegalengdum, fjölda starfsstöðva og nauðsynlegum viðbúnaði. Fast hlutfallslegt greiningarviðmið getur því haft óhófleg áhrif á sveitarfélög við þessar aðstæður og leitt til ítrekaðrar og ónauðsynlegrar stjórnsýslubyrði. Byggðarráð leggur því til að viðmiðið verði endurskoðað, til dæmis með hærra hlutfalli, lágmarksfjárhæð eða sérstökum undanþágum vegna lögbundinnar þjónustu og nauðsynlegra innviða í landfræðilega víðfeðmum sveitarfélögum með dreifða búsetu.

    Byggðarráð gagnrýnir heimild ráðherra til að leggja stjórnvaldssektir á sveitarfélög eins og lagt er til í 131. gr. frumvarpsins. Slík heimild er verulega íþyngjandi, einkum þar sem önnur þvingunarúrræði eru þegar fyrir hendi, og getur raskað jafnvægi milli stjórnsýslustiga. Byggðarráð leggur til að heimildin verði felld brott eða afmörkuð mun skýrar með ríkum kröfum um meðalhóf, andmælarétt og málskot.

    Loks leggur byggðarráð áherslu á að nýjar reglur um byggðasamlög, fjármálastefnu, kostnaðargreiningar, hagsmunaskráningu og upplýsingagjöf taki ekki gildi fyrr en nauðsynlegar reglugerðir og leiðbeiningar liggja fyrir og sveitarfélögum verði veittur raunhæfur aðlögunartími til að uppfæra allar afleiddar samþykktir og stefnur.

    Byggðarráð beinir því til Alþingis að við endanlega afgreiðslu frumvarpsins verði tekið sérstakt tillit til landfræðilega víðfeðmra sveitarfélaga með dreifða búsetu og umfangsmikið svæðisbundið samstarf. Tryggja þarf ábyrga fjármálastjórn og vandaða stjórnsýslu án þess að takmarka óhóflega sjálfsstjórn, fjárfestingargetu eða möguleika sveitarfélaga til að haga lögbundinni þjónustu með hagkvæmum og staðbundnum hætti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 178/2026, "Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna".

    Umsagnarfrestur er til og með 02.10.2026.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar þeirri áherslu sem lögð er á að bæta lífskjör barna og tryggja jöfn tækifæri óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu fjölskyldna. Mikilvægt er að stjórnvöld móti heildstæða stefnu á þessu sviði og efli samstarf ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila til að draga úr fátækt barna og stuðla að virkri samfélagsþátttöku þeirra.

    Byggðarráð bendir þó á að fjölmargar aðgerðir sem lagðar eru til í stefnunni fela í sér verkefni sem eru á ábyrgð sveitarfélaga eða snerta þjónustu sem sveitarfélög veita, svo sem félagsþjónustu, leikskóla, frístundaheimili, skólaþjónustu, frístundastarf og stuðning við barnafjölskyldur. Þá er einnig gert ráð fyrir auknum stuðningi við þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi, frekari ráðgjöf og þjónustu við fjölskyldur og aðgerðum sem geta haft bein fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög.

    Byggðarráð leggur því ríka áherslu á að allar nýjar skyldur eða aukin verkefni sem kunna að falla á sveitarfélög verði að fullu fjármögnuð af ríkissjóði. Nauðsynlegt er að kostnaðarmat fylgi aðgerðunum áður en þær koma til framkvæmda og að áhrif þeirra á rekstur sveitarfélaga séu metin sérstaklega.

    Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að horft sé sérstaklega til aðstæðna sveitarfélaga á landsbyggðinni. Kostnaður vegna ferða, aðgengis að þjónustu, þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og annarra þátta sem tengjast búsetu utan stærri þéttbýlissvæða er oft meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Nauðsynlegt er að slíkur munur sé tekinn með í reikninginn við útfærslu aðgerðanna og fjármögnun þeirra.

    Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að sveitarfélög og þeirra hagsmunasamtök komi með virkum hætti að frekari mótun, framkvæmd og eftirfylgni stefnunnar þannig að tryggt sé að aðgerðir nýtist markhópunum sem best og að ábyrgðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga sé skýr.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

4.Byggðarráð Skagafjarðar - 212

Málsnúmer 2610003FVakta málsnúmer

Fundargerð 212. fundar byggðarráðs frá 5. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Undir þessum lið sátu Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri og Margeir Friðriksson verkefnastjóri.

    Margeir lagði fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027 ásamt þriggja ára áætlun 2028-2031.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun 2027-2031 til fyrri umræðu og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Fjárhagsáætlun 2027-2030, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagður fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn felur í sér hækkun rekstrargjalda um 160,8 m.kr. og hækkun eigna um 17 m.kr.

    Hækkun rekstrargjalda felast í kaupum á rafmagnsspennuskápum vegna tjaldsvæðis á Sauðárkróki (4 m.kr.), breytinga stöðugilda á Fjölskyldusviði (3,5 m.kr.), Breytingar á fjármagnsliðum vegna uppfærslu lánasafns m.t.t. verðlagsbreytinga (259,1 m.kr.),

    Rekstrarliðum er mætt að hluta með hækkun útsvarstekna og breytingar á framlögum jöfnunarsjóðs (98 m.kr.), lækkun áætlunar um niðurgreiðslu leikskólagjalda (10 m.kr.), auknum fjárframlögum vegna dagdvalar aldraðra, sjúkraflutninga og frá Úrvinnslusjóði (8,5 m.kr.), auknum tekjum frá Gretti sterka (6 m.kr.) og hækkun áætlunar vegna fráveitugjalda (15 m.kr.).

    Breytingar á efnahagsreikningi tengjast breytingar á eignum og skuldum vegna uppfærslu á niðurstöðu ársreiknings 2025 í fjárhagsáætlun ársins 2026 auk fjárfestingar í uppfærslu á tölvubúnaði veitumannvirkja (17 m.kr.) og hækkun fjárheimildar vegna vinnu við fjölgun bílastæða við Sundlaug Sauðárkróks (4,1 m.kr.).

    Eftirstandandi breytingum er mætt með lækkun handbærs fjár að upphæð 181,9 m.kr.

    Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta 552,2 m.kr. og samstæðu A- og B-hluta 2,199 m.kr.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka með áorðinni hækkun að upphæð 4,1 m.kr. vegna stækkunar bílastæða við sundlaugar Sauðárkróks. Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Sveitarstjórn samþykkti í viðauka 5 við fjárhagsáætlun 2026 að veita 16,1 m.kr. í stækkun bílasplans við sundlaug Sauðárkróks. Í kjölfarið var farið í fullnaðarhönnun verksins og ráðist í verðfyrirspurn.

    Fyrir fundinum lá fundargerð tilboðsopnunar sem haldin var á skrifstofu Stoðar verkfræðistofu þriðjudaginn 1. september 2026 kl. 13 ásamt innkomnu tilboði.

    Eitt tilboð barst í verkið frá Þ.Hansen sem hljóðar upp á 107,4% af kostnaðaráætlun verksins.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við Þ. Hanssen um verkið. Í viðauka 7 er gert ráð fyrir 4,1 m.kr. til viðbótar til verksins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram erindi frá Vegagerðinni, dags. 1. október 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til þess hvort sveitarfélagið hafi áhuga á að taka við eignarhaldi á núverandi brú yfir Flókadalsá. Erindið tengist undirbúningi framkvæmda vegna fyrirhugaðra Fljótaganga, þar sem ráðgert er að leggja nýjan Siglufjarðarveg frá Stafá að Ketilási og byggja nýja brú yfir Flókadalsá. Fram kemur að núverandi brú sé mikilvæg tenging milli svæða og að áhugi hafi komið fram meðal landeigenda og annarra hagsmunaaðila á að nýta hana áfram sem hluta af reiðleiðakerfi svæðisins þegar umferð þjóðvegar færist af brúnni.

    Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Stjórn Íbúasamtaka Varmahlíðar sendi formlegt erindi til byggðarráðs Skagafjarðar, dagsett 30. september 2026. Í bréfinu er óskað eftir að ráðist verði í nauðsynlegan frágang Birkimels í Varmahlíð. Er þá sérstaklega horft til þess að ljúka malbikun 120 metra kafla götunnar, leggja samfellda gangstétt, koma upp fullnægjandi götulýsingu og ráðast í nauðsynlegt viðhald og jöfnun götunnar. Jafnframt er óskað eftir mati á umferðaröryggi og hvort þörf sé á hraðalækkandi aðgerðum. Íbúasamtökin óska eftir að frágangur Birkimels verði settur inn í fjárhagsáætlun næsta árs og að íbúar verði upplýstir um fyrirhugaða tímasetningu framkvæmda.

    Byggðarráð þakkar fyrir innkomið erindi. Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
    Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram erindi Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, dags. 30. september 2026, undirritað af Einari Ólasyni formanni fyrir hönd stjórnar sveitarinnar. Í erindinu er gerð grein fyrir umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaframkvæmdum á húsnæði sveitarinnar í Varmahlíð. Húsnæðið skiptist annars vegar í félagsaðstöðu í eigu björgunarsveitarinnar og hins vegar tækjasal sem er í 60% eigu Flugbjörgunarsveitarinnar og 40% eigu Skagafjarðar (Brunavarna Skagafjarðar).

    Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið taki þátt í um 8 milljóna króna framkvæmda- og viðhaldskostnaði við tækjasal sem er í sameign aðila, en ráðist var í framkvæmdirnar án undangengins samráðs við sveitarfélagið.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að kalla eftir ítarlegri gögnum og boða fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar á fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram boð á stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október kl. 15:00 - 16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.

    Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að gerast aðili að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga og felur sveitarstjóra að sitja stofnfundinn fyrir hönd Skagafjarðar og fara með fullt og ótakmarkað umboð sveitarfélagsins á fundinum. Byggðarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að gera ráð fyrir félagsgjöldum í fjárhagsáætlun 2027.
    Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Lagt fram erindi frá Regínu Valdimarsdóttur, framkvæmdastjóra brunavarna og leigumarkaðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), dags. 22. september 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til áframhaldandi samstarfs um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Með erindinu fylgja gildandi þjónustusamningur um sérstakan húsnæðisstuðning, viðaukar við samninginn og kynning HMS um samstarfsverkefnin.

    Byggðarráð fagnar góðu samstarfi Skagafjarðar og HMS um sérstakan húsnæðisstuðning sem staðið hefur frá árinu 2019. Samstarfið hefur falið í sér sameiginlegt umsóknarferli fyrir almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning þar sem HMS annast umsýslu umsókna á grundvelli viðmiða sveitarfélagsins. Samkvæmt upplýsingum HMS hefur verkefnið einfaldað umsóknarferli og stuðlað að því að fleiri heimili njóti stuðnings.

    Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að framlengja samstarfið og felur sveitarstjóra að vinna áfram með HMS að gerð ótímabundins þjónustusamnings um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Samningurinn skal lagður fyrir byggðarráð til afgreiðslu þegar fyrir liggja endanleg drög.
    Bókun fundar Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá dagdvalar aldraðra fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Dagdvöl 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá Iðju hæfingar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Iðju hæfingar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Fjárhæðir greiðslna vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

    Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):

    - Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
    - Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
    - Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.

    Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu að fjárhæðum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá Húss frítímas fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Húss frítímans 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

    Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur samkvæmt 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4 % af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð greiðsluviðmið og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá leikskóla 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá í grunnskólum Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá grunnskóla 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá frístundar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá frístundar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá í tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá tónlistarskóla 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá fráveitu í Skagafirði fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

    Gjaldskráin tekur breytingum í kjölfar útboðs á tæmingu rotþróa fyrr á þessu ári. Eru gjaldaflokkar að breytast og tæmingar að lækka í verði.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá gámageymslusvæða fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá gámageymslusvæða 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

    Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá hitaveitu 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • 4.22 2601002 Ábendingar 2026
    Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagðar fram til kynningar fyrir byggðarráð ábendingar sem borist hafa sveitarfélaginu á tímabilinu maí til september 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram til kynningar erindi Innviðaráðuneytisins, dagsett 15. september 2026, vegna Alþjóðlegs minningardags Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem haldinn verður 15. nóvember 2026. Í erindinu kemur fram að minningarathöfn verði venju samkvæmt haldin kl. 14 við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi og jafnframt fari fram táknrænar minningarathafnir víða um land á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • 4.24 2609258 Jafnvægisvog FKA
    Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram erindi frá Berglindi Björnsdóttur, dags. 16. september 2026, þar sem kynnt er verkefnið Jafnvægisvogin á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Markmið verkefnisins er að stuðla að auknu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum með skýrri markmiðasetningu og reglulegri mælingu á árangri. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

5.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49

Málsnúmer 2609010FVakta málsnúmer

Fundargerð 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 24. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Hrund Pétursdóttir og Magnús Barðdal Reynisson kvöddu sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.

    Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

    Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 05 - menningarmál lögð fram og tekin til fyrri umræðu.

    Sólborg Una Pálsdóttir héraðsskjalavörður sat fundinn undir umræður um Héraðsskjalasafn Skagafjarðar og Listasafn Skagafjarðar.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarmál með áorðnum breytingum og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.


    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Framlögð gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir 2027.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027 og vísar erindinu til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Framlögð gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga 2027.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027 og vísar erindinu til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Framlögð gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga 2027.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027 og vísar erindinu til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Framlögð gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027.

    Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2027 var samþykkt á 48. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Skagafjarðar. Berglind Þorsteinsdóttir safnastjóri hefur óskað eftir að gerð verði breyting á gjaldskránni og að bætt verði við gjaldlið.

    Um er að ræða verð á sameiginlegum miðum á byggðasafnið og sundlaugarnar fyrir árið 2027. Tekið skal fram að félagsmála- og tómstundanefnd þarf einnig að taka til afgreiðslu framlagt erindi gagnvart sundlaugunum.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti samhljóða fyrirlagða uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til byggðarráðs og til umræðu í félagsmála- og tómstundanefnd.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 11 - atvinnumál lögð fram og tekin til fyrri umræðu.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir atvinnumál og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 21 - kynningarmál lögð fram og tekin til fyrri umræðu.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir kynningarmál og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49 Umræður um rekstur félagsheimilisins.

    Fyrirtækið Grettistak veitingar ehf. hefur dregið umsókn sína til baka.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að auglýsa aftur rekstur félagsheimilisins Ljósheima með sambærilegum hætti og gert var síðast.

    Nefndin samþykkir jafnframt samhljóða að í birtri auglýsingu skuli koma fram með skýrum hætti að stígi engin áhugasamur fram eða ekki náist samningar við umsækjendur, skuli húsið sett í söluferli.

    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

6.Félagsmála- og tómstundanefnd - 47

Málsnúmer 2609018FVakta málsnúmer

Fundargerð 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 1. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 01 (Þjónusta við fatlað fólk) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 02 (Félagsþjónusta) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 06 (Æskulýðs- og íþróttamál) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Daggjald er ákvarðað á grundvelli reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fæðiskostnaður dvalargesta árið 2027 hækki um 2,5% og verði 689 kr. á dag. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að gjaldskrá heimaþjónustu árið 2027 taki mið af launaflokki 128 í kjarasamningum Öldunnar/Kjalar frá 1. apríl 2026, með 8% persónuálagi og launatengdum gjöldum. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda taki mið af greiðslum Tryggingastofnunar. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hlutur notenda Iðju í fæðiskostnaði fyrir hádegisverð hækki um 2,5% árið 2027, úr 747 kr. í 766 kr., sem nemur um helmingi af heildarkostnaði við máltíðina. Notendur greiða ekki fyrir morgun- og síðdegishressingu. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%). Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):

    - Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
    - Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
    - Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.

    Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats. Vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð er fram tillaga að gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027. Breytingarnar fela almennt í sér um 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

    - Gjaldskrárliðir íþróttasala, gervigrasvallar, búnaðarleigu og almennra sundmiða hækka um 2,5% að jafnaði.
    - Gjald fyrir börn 0?6 ára helst óbreytt (0 kr.) og handhafar þjónustukorta Skagafjarðar hafa áfram endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum.
    - Árskort í sund lækka um 6,4% (úr 42.600 kr. í 39.900 kr.) til að hvetja til reglulegrar hreyfingar, samveru og lýðheilsu.
    - Stakt sundgjald hækkar um 7,1% og 10 miða kort fullorðinna hækka um 7,4% sem vegur á móti lækkun á árskortum.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fyrirliggjandi gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027 verði samþykkt með áorðnum breytingum. Málinu er vísað til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð er fram tillaga að endurskoðaðri gjaldskrá Húss frítímans fyrir árið 2027. Gjaldskráin tekur mið af 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma á almennum leiguliðum, en gjald vegna gistingar íþróttafélaga helst óbreytt.
    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að framlögð gjaldskrá verði samþykkt. Málinu er vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Fyrir liggur vísun frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar vegna verðs á sameiginlegum miðum í sundlaugar og á Byggðasafn Skagfirðinga fyrir árið 2027.
    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan gjaldskrárlið vegna sameiginlegra miða (sund og söfn), í samræmi við afgreiðslu á gjaldskrá íþróttamannvirkja í lið 9. Málinu er vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 miðist áfram við 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4% af atvinnuleysisbótum í nóvember 2026. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lagt er fram erindi Rótarýklúbbs Sauðárkróks um afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 28. nóvember 2026 vegna hins árlega jólahlaðborðs klúbbsins.
    Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar framtaki Rótarýklúbbsins og samþykkir samhljóða endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsinu fyrir viðburðinn, enda er hann öllum opinn og án endurgjalds. Í ákvörðun sinni vísar nefndin til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum þar sem ljóst er að ekki er hægt að halda viðburðinn í öðru húsnæði í sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Fyrir liggur erindi þar sem óskað er eftir að notkun farsíma og annarra snjalltækja verði alfarið bönnuð í búningsklefum og á laugarsvæðum í sundlaugum Skagafjarðar.
    Félagsmála- og tómstundanefnd þakkar fyrir ábendinguna. Nefndin áréttar að hvers kyns símanotkun, myndatökur og upptökur eru stranglega bannaðar í búningsklefum og sturtum í þágu friðhelgi einkalífs, samanber núgildandi reglur um sundlaugar í Skagafirði. Á opnum laugarsvæðum telur nefndin hins vegar ekki rétt að leggja á allsherjarbann við símanotkun, enda nýta margir gestir snjalltæki í hljóði með heyrnartólum til hlustunar eða lestrar án þess að valda öðrum ónæði.
    Nefndin leggur ríka áherslu á að snjalltækjanotkun megi aldrei draga úr virkri athygli og gæslu forráðamanna og minnir sérstaklega á skyldu þeirra til að hafa óskipta athygli á börnum sínum við laugar. Leiðtoga frístunda- og íþróttamála er falið að yfirfara og skerpa á merkingum við innganga og í klefum í samræmi við þetta.
    Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir, nr. 51 frá 31. ágúst 2026 og nr. 52 frá 14. september 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

7.Fræðslunefnd - 51

Málsnúmer 2609019FVakta málsnúmer

Fundargerð 51. fundar fræðslunefndar frá 30. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 51 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 04 (Fræðslu- og uppeldismál) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 51 Lögð fram tillaga að gjaldskrá leikskóla sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun á dvalargjöldum, fæðisgjöldum og gjöldum vegna skráningardaga í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Systkinaafsláttur af dvalargjaldi helst óbreyttur (50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn). Jafnframt helst sektargjald vegna vistar utan úthlutaðs dvalartíma óbreytt.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 51 Lögð fram tillaga að gjaldskrá grunnskóla sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjalda í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Samkvæmt tillögunni hækkar morgunverður úr 386 kr. í 396 kr. og hádegisverður úr 801 kr. í 821 kr. Skólamáltíðir nemenda eru áfram að fullu niðurgreiddar af sveitarfélaginu og ríkinu.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 51 Lögð fram tillaga að gjaldskrá frístundar sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjalda í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Samkvæmt tillögunni hækkar dvalargjald í frístund úr 325 kr. í 333 kr. og síðdegishressing úr 280 kr. í 287 kr. Á heilsdagsopnunardögum bætist við greiðsla fyrir fæði, þar sem morgunverður hækkar úr 386 kr. í 396 kr. og hádegisverður úr 801 kr. í 821 kr. Systkinaafsláttur af dvalargjaldi helst óbreyttur (50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn) og börn í dreifbýli hafa áfram forgang að heilsdagsvistun.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 51 Lögð fram tillaga að gjaldskrá tónlistarskóla sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjalda í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Samkvæmt tillögunni er veittur 25% afsláttur ef fleiri en einn nemandi er saman í hljóðfæranámi, auk systkinaafsláttar sem nemur 25% fyrir annað barn, 50% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 51 Lagðar fram til kynningar upplýsingar um nemendafjölda í skólum Skagafjarðar skólaárið 2026-2027. Við upphaf skólaárs eru 244 nemendur í leikskólum Skagafjarðar, sem er sambærilegur fjöldi og við upphaf síðasta skólaárs. Í grunnskólum Skagafjarðar eru 563 nemendur, samanborið við 559 nemendur við upphaf síðasta skólaárs, og hefur þeim því fjölgað um fjóra milli ára. Við Tónlistarskóla Skagafjarðar eru 175 nemendur en voru á síðasta skólaári 158 og fjölgar því nemendum tónlistarskólans um 17 á milli ára. Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 51 Lögð fram áskorun frá skólaráði Árskóla, sem barst með tölvupósti skólastjóra, varðandi brýna þörf á bættri aðstöðu fyrir sérgreinakennslu við skólann (náttúrufræði, textílmennt og tónmennt). Í áskoruninni er óskað eftir því að ráðist verði í heildstæða þarfagreiningu á húsnæði og aðstöðu skólans.

    Fræðslunefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að nemendur og starfsfólk búi við fullnægjandi aðstöðu til kennslu í sérgreinum. Fyrirhugað er að fara í vinnu við að meta aðstöðu sérkennslugreina í grunnskólum Skagafjarðar og óskar því fræðslunefnd eftir því að stjórnendur Árskóla vinni þarfagreiningu um aðstöðu sérkennslugreina í Árskóla.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • 7.8 2603137 Fræðsludagur 2026
    Fræðslunefnd - 51 Lagt fram minnisblað með niðurstöðum viðhorfskönnunar vegna sameiginlegs fræðsludags starfsfólks skóla í Skagafirði sem haldinn var 19. ágúst 2026. Fram kemur að almenn ánægja var með daginn (83,3% svarenda ánægð eða mjög ánægð) og vinnustofur dagsins fengu sérstaklega góða einkunn. Jafnframt liggja fyrir ábendingar þátttakenda um áherslur fyrir næsta fræðsludag, svo sem aukna sérhæfingu eftir skólastigum, áherslu á vellíðan, sérþarfir og hagnýt stjórnunartæki.

    Fræðslunefnd fagnar góðri þátttöku og jákvæðum viðbrögðum við fræðsludeginum. Nefndin þakkar skipuleggjendum fyrir vel heppnaðan dag og felur sviðsstjóra að nýta framkomnar ábendingar við skipulagningu næsta fræðsludags.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar fræðslunefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

8.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52

Málsnúmer 2609013FVakta málsnúmer

Fundargerð 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 23. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir sjóveitu. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun sjóveitu 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri SKV og Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV sátu fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir vatnsveitu. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun vatnsveitu 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri SKV og Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV sátu fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir hitaveitu. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun hitaveitu 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri SKV og Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV sátu fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir hafnarsjóð. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir hreinlætismál. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun hreinlætismála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Sveinn Finnster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Landbúnaðar- og innviðanefnd auglýsti til leigu hólf nr. 27 og 28 í Austari-Flóa við Hofsós. Alls bárust þrjár umsóknir um leigu á landinu. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að úthluta Elisabeth Jansen hólfi nr. 28 til leigu. Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að úthluta Rúnari Númasyni 10 hekturum austast úr hólfi nr. 27 til leigu. Nefndin felur sviðstjóra veitu- og framkvæmdarsviðs að ganga frá leigusamningum við leigutaka.
    Sveinn Finnster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaforseti tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.

    Sveinn Þ. Finster Úlfarsson tók aftur við stjórn fundarins.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lagt fram fundarboð til 45. hafnasambandsþings Hafnasambands Íslands sem fram fer í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 22. og 23. október nk. en Skagafjarðarhafnir eiga þar fimm fulltrúa auk þess sem velja skal jafnmarga varafulltrúa. Tilkynnt skal um kjör fulltrúa á þingið fyrir 14. október. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lagt fram til kynningar - samantekt á úrgangsmagni vegna sorpurðunar í Stekkjavík fyrstu sex mánuði ársins. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 52 Lagt fram til kynningar - vegurinn heim að Fagraholti í Viðvíkursveit tekinn inn á vegaskrá. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

9.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53

Málsnúmer 2609024FVakta málsnúmer

Fundargerð 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 29. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Tekið fyrir erindi frá Margréti Evu Ásgeirsdóttur fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga um nýtingu búfjáráburðar og gors til uppgræðslu á svæði gömlu ruslahauganna á Skarðmóum. Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda og viðeigandi eftirlitsaðila.
    Nefndin áréttar að girðingamál verði yfirfarin, sem og tæki og tól sem notuð eru verði hreinsuð skv. leiðbeiningum MAST.
    Nefndin samþykkir erindið með tveimur atkvæðum.

    Elínborg Erla Ásgeirsdóttir vék af fundi undir þessum máli.
    Bókun fundar Einar E. Einarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir samgöngumál. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun samgöngumála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.

    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir umhverfis- og landbúnaðarmál. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun umhverfis- og landbúnaðarmála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir fráveitu. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin kann að taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnslu hennar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fráveitu 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá fyrir fráveitu og tæmingu rotþróa 2027. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá geymslusvæða 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá vatnsveitu 2027. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53 Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá hitaveitu 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 53. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

10.Skipulagsnefnd - 106

Málsnúmer 2609011FVakta málsnúmer

Fundargerð 106. fundar skipulagsnefndar frá 17. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 106 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Skagfirðingabraut 26 á Sauðárkróki, mál nr. 1413/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1413 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Deiliskipulagsvinnslutillagan var í auglýsingu dagana 26.11.2025- 17.12.2025 og bárust 6 umsagnir.

    Umsagnirnar gefa ekki tilefni til breytinga.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 106 Lagðar fram vinnuskrár fyrir deiliskipulagstillögu Laufblaðsins á Sauðárkróki.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

    Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 106 Lögð fram frumdrög að deiliskipulagsvinnslutillögu fyrir Furulund í Varmahlíð, skrá 56295501YFIRL Furulundur frumdrög, dags. 15.09.2026, sem sýna uppdrátt með skilmálum.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 106 Skúli Hermann Bragason sendir inn fyrirspurn í tölvupósti dags. 13.09.2026 fyrir hönd lóðarhafa Nestúns 22 varðandi hvort fengist samþykkt að byggja þrjár íbúðir á lóðinni í stað tveggja samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

    Þá myndi á lóðinni koma tvær þriggja herbergja íbúðir með bílskúr 120-140 m2 hvor og ein þriggja herbergja án bílskúrs 80-100 m2. Erindinu fylgir afstöðumynd "Nestún 22- Afstöðumynd A4" dags. 13.09.2026 unnin af Skúla Hermanni Bragasyni. Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum við hverja íbúð ásamt sorptunnum.
    Nýtingarhlutfall lóðarinnar yrði 0,3-0,32.
    Enda íbúðirnar myndu speglast með bílskúr inn að miðju og minni íbúðin þar á milli. Útlitslega yrði raðhúsið svipað og Nestún 20, þ.e.a.s. hvað varðar byggingarlag, frágangur húss og lóðar.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa umbeðna deiliskipulagsbreytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Nefndin bendir jafnframt á að umsækjandi beri kostnað vegna vinnslu og auglýsingu á deiliskipulagsbreytingunni skv. gildandi gjaldskrá sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Nestún 22 - Fyrirspurn varðandi deiliskipulagsbreytingu, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 106 Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 20.08.2026, þar sem skipulagsnefnd samþykkti m.a. samhljóða að taka erindið til frekari skoðunar og fól skipulagsfulltrúa að fá umferðarsérfræðing til að vinna minnisblað að tillögu öruggri lausn, við umrædda innkeyrslu á Sauðárhlíð, lóð 70.

    Lagt fram minnisblað frá Eflu verkfræðistofu, skjalalykill 101617-MIN-001-V01, dags. 21.09.2022, vegna innkeyrslu við Sæmundarhlíð að veitingarstaðnum Sauðá, þar kemur m.a. fram:
    “Miðað við umfang umferðar og aðstæður á Sæmundarhlíð við tengingu að húsinu Sauðárhlíð telst ekki vera fyrirstaða við að útbúa innkeyrslu og bílastæði fyrir veitingastaðinn. Sjónlengdir eru nægjanlegar bæði gagnvart umferð akandi, hjólandi og gangandi. Eins telst vera nægjanleg fjarlægð að næstu gatnamótum. Mælst er með að hafa gönguþverunina yfir innkeyrsluna upphækkaða frá Sæmundarhlíð og frá bílastæðinu til að gangandi og hjólandi vegfarendur njóti forgangs.
    Það eru engar skilgreindar gönguþveranir eða gangbrautir á Sæmundarhlíð við innkeyrsluna að Sauðárhlíð eða við gatnamótin að Spítalastíg. Æskilegt væri að útbúa gönguþverun, annaðhvort við Sauðarhlíð eða við gatnamótin að Spítalastíg, til að bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda."

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fella úr gildi þinglýstan lóðarleigusamning skjal nr. 594/2020, auk yfirlýsingar, skjal nr. 596/2020 vegna Lóðar 70 við Sauðárhlíð og að gerður verði nýr lóðarleigusamningu við hlutaðeigandi.
    Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram hvað varðar umferðaröryggi á svæðinu.

    Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vék af fundi við afgreiðslu erindisins og varmaður hans Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lóð 70 við Sauðárhlíð - Fyrirspurn til skipulagsnefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 106 Tekið fyrir erindi Búhölda hsf. dags. 22. apríl sl. þar sem m.a. kemur fram:
    Stjórn Búhölda hsf. hefur áhuga á að lagfæra óræktarbrekku fyrir austan hús félagsins við Laugatún 22 til 32 á Sauðárkróki.
    Svæði hefur aldrei verið gengið frá, brekkan brött og ekki er hægt að slá hana og því algjört óræktarsvæði.
    Það er ósk okkar að Sveitarfélagið Skagafjörður komi að verkinu því færa þarf göngustíg til hægt sé að ná réttun halla. Beðið er um að mæla svæðið út og hnitsetja svo hægt sé að skoða hvað best sé að gera.

    22. maí sl. var farið á staðinn ásamt Atla Gunnari Arnórssyni hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, svæðið mælt upp og í framhaldi gerðar tillögur að lagfæringum á þeim hæðarmun sem þar er.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 106 Hermann Þórisson þinglýstur eigandi jarðarinnar Ármúla L145983 óskar eftir að gera breytingu á gildandi deiluskipulagi svæðisins.

    Óskað er eftir að húsið verði tveggja hæða, nýtingarhlutfall verði hækkað og þar með heimilaður fermetrafjöldi úr 65 m2 í 130 m2.
    Eftirfarandi kemur m.a. fram í erindinu:
    Breytingin hefur engin áhrif á útlit hússins. Umsækjandi telur að um sé að ræða óverulega breytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 þar sem segir m.a. við útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fallast á að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja hana skv. 43. gr. skipulagslaga og fallast á að ekki sé tilefni til grenndarkynningar þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
    Nefndin bendir jafnframt á að umsækjandi þarf að láta vinna og skila inn til skipulagsfulltrúa viðeigandi lokagögnum á óverulegri deiliskipulagsbreytingu af þar til bærum hönnuðum áður en slík breyting getur tekið gildi.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Ármúli L145983 - Beiðni um óveruleg breyting á deiliskipulagi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 106 Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá starfsmanni byggingarfulltrúa þar sem vísað er til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
    Umsagnarbeiðnin varðar tilkynnta framkvæmd undanþegna byggingarheimild, staðsetningu stöðuhýsis á jörðinni Ás 2, L146366 í Hegranesi og er í umsagnarbeiðni vísað til C-liðar 2.3.6. gr. byggingarreglugerðar, tilkynning frá Kristjáni Elvari Gíslasyni og Stefanie Wermelinger.
    Fylgjandi umsagnarbeiðni er uppdráttur gerður hjá Nýhönnun af Ómari Péturssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur númer A-101, dagsettur 02.09.2026.

    Í greinargerð á nefndum uppdrætti kemur m.a. fram:
    "Tilkynningarskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi sbr. C-lið gr. 2.3.6. gr. í byggingarreglugerð, "stöðuhýsi sem skulu standa lengur en 4 mánuði".
    Setja á niður um óákveðin tíma færanlegt stöðuhýsi á jörðinni Ási 2, L1466366.
    Um er að ræða innflutt 43m² stöðuhýsi, static caravan. Hýsið er léttbyggt en stendur á stálgrind með hjólabúnaði þannig að auðvelt er að færa það á milli staða. Í hýsinu eru tvö herbergi, eldhús, stofa og snyrting. Hýsið verður staðsett á núverandi malarplani vestan útihúsa og þannig fest að ekki stafi fokhætta af. Ekki er gert ráð fyrir að húsið verði tengt lagna eða veitukerfum.
    Eldvarnir, í hýsinu verða þrír reykskynjarar og slökkvitæki við inngang. Staðsetning hýsisins uppfyllir fjarlægðarkröfu um bil milli bygginga sbr. gr. 9.7.5. í byggingarreglugerð.“

    Í umsagnarbeiðni er m.a. vísað til C-liðar gr. 2.3.6. byggingarreglugerðar.

    Í leiðbeiningum HMS varðandi tilkynningarskyld mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarheimild og -leyfi segir:
    "Um er að ræða tímabundnar og lausar byggingar sem ekki eru tengdar lagna- eða veitukerfum og ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna lengur en fjóra mánuði á sama stað. Sem dæmi um stöðuhýsi má nefna húsvagna (hjólhýsi og húsbíla) og tjaldhýsi úr léttum byggingarefnum. Séu stöðuhýsi tengd við lagna- eða veitukerfi verða þau byggingarheimildarskyld. Stöðuhýsi þurfa að uppfylla kröfur um fjarlægðarmörk skv. 9.7.5. gr. og aðrar viðeigandi greinar 9. hluta brgl. um brunavarnir."

    Í byggingarreglugerð 112/2012, skilgreiningar, gr. 1.2.1. segir:
    56. Mannvirki:
    “Hvers konar jarðföst, manngerð smíð, svo sem hús og aðrar byggingar eða skýli, virkjanir, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, fráveitumannvirki, umferðar- og göngubrýr í þéttbýli, stór skilti og togbrautir til fólksflutninga. Til mannvirkja teljast einnig tímabundnar og lausar byggingar sem ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna í fjóra mánuði eða lengur á sama stað, svo sem starfsmannabúðir og húsvagnar. Mannvirki á eða í hafi, vötnum og ám sem hafa fasta staðsetningu teljast einnig til mannvirkja samkvæmt reglugerð þessari.“

    Í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 segir m.a:
    "Bygging húsa og annarra mannvirkja ofan jarðar og neðan og aðrar framkvæmdir og aðgerðir sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir, sbr. ákvæði skipulagslaga, laga um mannvirki og reglugerða settra samkvæmt þeim."

    Sótt er um staðsetningu stöðuhýsis á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-II skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir:
    “Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu.“
    "Útihús og byggingar til landbúnaðarnota skulu reist í tengslum við eða nærri öðrum húsum og innviðum á jörðinni, að því gefnu að möguleg neikvæð áhrif, t.d. lyktarmengun, verði óveruleg fyrir íbúa."
    "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif. Sjá einnig kafla 3.16 Stakar framkvæmdir."

    Fyrirliggur samþykki landeiganda Ás 1, L146365.

    Skipulagsnefnd tekur ekki afstöðu til tilkynningarskyldu umbeðinnar framkvæmdar þar sem tilkynningarskylda fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 en áréttar að um tímabundna lausn sé að ræða sbr. C-liðar gr. 2.3.6. byggingarreglugerðar.

    Með vísan til þess sem framan greinir samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna staðsetningu stöðuhýsis.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Ás 2 L146366 - Stöðuhýsi - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 106 Þann 1. mars 2017 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar umsókn landeiganda Brúnastaða, landnr. 146157, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar. Samþykkt staðfest í sveitarstjórn þann 15. mars 2017.

    Elenóra Bára Birkisdóttir, Böðvar Fjölnir Sigurðsson og Hafdís Bára Böðvarsdóttir f.h. Brúnastaða ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Brúnastaða, landnr. 146157, óska eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 300 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 77760203 útg. 14. mars 2026.
    Afstöðuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. Reiturinn stækkar um 15 m til norðurs við norðurenda núverandi byggingar.
    Um er að ræða byggingarreit fyrir viðbyggingu núverandi fjósbyggingar sem byggð var árið 2018. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn viðbyggingar verður 250 m² og verður byggingarhæð í samræmi við núverandi byggingu.
    Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
    Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar þar sem um er að ræða byggingu í tengslum við aðra byggingu, þ.e.a.s. viðbyggingu, núverandi innviðir nýtast áfram, ekki er verið að fjölga byggingum og um er að ræða byggingu fyrir landbúnaðarstarfsemi sem er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
    "Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
    Hér er sótt um viðbyggingu fjósbyggingar sem er grundvöllur starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform munu efla starfsemi á svæðinu og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins. Áhrif á umhverfi eru óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar.
    Óskað hefur verið umsagnar minjavarðar.

    Elenóra Bára Birkisdóttir og Böðvar Fjölnir Sigurðsson eru einnig eigendur Brúnastaða 2, landnr. 225956 og Blámels, landnr. 235413.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Brúnastaðir L146157 í Tungusveit - Umsókn um stækkun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 106 Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 09, skipulagsmál, ásamt forsendum lagður fram.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við gerð vinnubóka.
    Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 106 Lagt fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt. Í erindinu er áréttað að heimilt sé að lækka bætur eða synja bótakröfu að hluta eða öllu leyti þegar mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar byggist á vönduðu áhættumati, viðeigandi sérfræðiráðgjöf og skýrri upplýsingagjöf til lóðarhafa, byggingarleyfishafa og kaupenda eigna.

    Skipulagsnefnd tekur undir mikilvægi þess að náttúruvá sé höfð til hliðsjónar við skipulagsgerð og leyfisveitingar og leggur áherslu á að sveitarfélagið fylgi gildandi lögum og reglum við meðferð slíkra mála.
    Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 106 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 93 þann 04.09.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 106. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

11.Skipulagsnefnd - 107

Málsnúmer 2610004FVakta málsnúmer

Fundargerð 107. fundar skipulagsnefndar frá 5. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skagfirðingabraut 26, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS-01, verknúmer 56293200, dags. 21.09.2026, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.

    Skipulagsuppdrátturinn sýnir fyrirhugaða uppbyggingu innan skipulagssvæðisins, aðkomu inn á lóðina, byggingarreiti, bílastæði og helstu skilmála.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Deiliskipulag - Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra - Verknámshús - Skagfirðingabraut 26, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Laufblaðið íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði, uppdrættir DS01 og DS02 ásamt greinargerð dags. 01.10.2026, verknúmer 56291510, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, Árna Ragnarssyni og Atla Gunnari Arnórssyni.

    Uppdrátturinn sýnir afmörkun lóða, byggingarreiti, götulínur, gönguleiðir og helstu byggingarskilmála. Skýringaruppdráttur nr. DS-02 sýnir lóðamörk og núverandi byggingar, skilmálatöflu og hugmyndafræðin fyrir opna svæðið sem unnin er af Hildi Hartmannsdóttur.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Laufblaðið - Íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram vinnslutillaga deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar fyrir Furulund í Varmahlíð, uppdrættir DS01 og AS01 dags. 01.10.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni og Árna Ragnarssyni.

    Helsta viðfangsefni við breytingu á aðalskipulagi er að marka stefnu um landnotkun þar sem fyrir liggur að landnotkun síðustu ára mun breytast, þar sem leikskólinn hefur verið fluttur frá götunni Furulundi. Aðalskipulagsbreyting gengur út á að svæði fyrir samfélagsþjónustu verður íbúðarsvæði annars vegar og miðsvæði hins vegar.
    Deiliskipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðamörk, aðkomu að lóðum og byggingarreiti ásamt helstu byggingarskilmálum.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags fyrir "Furulund, Varmahlíð" skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir Syðri-Hofdali, í Hofsstaðaplássi, mál nr. 1014/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1014 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 02.09.2026- 24.09.2026 og bárust 8 umsagnir.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram umsókn Líneyjar Maríu Hjálmarsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:

    “Líney María Hjálmarsdóttir þinglýstur eigandi jarðarinnar Tunguháls II, landnúmer 146242, óskar eftir heimild til að stofna um 5.000 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74800010 útg. 15. sept. 2026.
    Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf, af Dagnýju Stefánsdóttur.
    Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar fjósbyggingar. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn verður um 2.500 m² og hámarks byggingarhæð verður um 7 m frá gólfi í mæni. Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
    Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins. Jafnframt segir í sama kafla:
    Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
    Hér er sótt um nýbyggingu á fjósi sem er grundvöllur starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform stuðla að aukinni velferð dýra á búinu með auknu rými og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð nýbygging samræmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.
    Sótt er um að byggingarreiturinn verði staðsettur í rúmlega 15 metra fjarlægð frá miðlínu héraðsvegarins (nr. 757), sem samræmist ákvæði 32. gr. 1. mgr. vegalaga nr. 80/2007 um 15 metra veghelgunarsvæði. Umsækjandi óskar eftir undanþágu til að víkja frá 50 metra fjarlægðarmörkum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 (gr. 5.3.2.5, c-lið) og Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 (kafla 4.1).
    Hér er sótt um undanþágu vegna sérstakra landfræðilegra og ræktunarlega aðstæðna. Á landeigninni er mikill hæðarmunur og brattur halli fjær veginum, en heppilegt sléttlendi er nær veginum á bilinu 15-50 metrar. Með því að staðsetja fjósbygginguna á sléttlendinu er komið í veg fyrir umfangsmiklar skeringar, jarðvegsflutninga og óþarft jarðrask í brattara landslaginu, sem ellegar myndi skilja eftir sig varanleg sár í ásýnd svæðisins. Þá kemur staðsetningin nær veginum í veg fyrir að byggt sé á verðmætara tún- og ræktunarlandi jarðarinnar fjær veginum, sem samræmist stefnu aðalskipulagsins og jarðalaga um að vernda verðmætt ræktarland og halda ræktarsvæðum órofnum."
    Óskað hefur verið eftir umsögn Vegagerðarinnar.
    Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 50 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Villinganesvegi nr. 757.
    Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit fyrir fjósbyggingu á Tunguhálsi II að fenginni jákvæðri umsögn ráðuneytisins vegna undanþágubeiðni vegna fjarlægðarmarka.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Tunguháls II L146242 í Tungusveit - Umsókn um byggingarreit, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram umsókn Rögnu Hrundar Hjartardóttur og Stefaníu Sigfúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
    “Ragna Hrund Hjartardóttir og Stefanía Sigfúsdóttir þinglýstir eigendur jarðarinnar Vallholts, landnr. 232700, óska eftir að breyta staðfangi jarðarinnar úr "Vallholt" í "Vallholt 2".
    Einnig er óskað eftir að stofna 37.722 m² (3,77 ha) spildu úr landi jarðarinnar, sem "Vallholt", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72440901 dags. 23. sept. 2026 og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10).
    Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og örnefna á svæðinu.
    Engin hlunnindi fylgja landskiptum.
    Lögbýlisréttur fylgir áfram Vallholti 2, L232700, áður Vallholt.
    Í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-1 og L-2. Afmörkun lóðarinnar samræmist afmörkun á byggingarreit sem var samþykktur í sveitarstjórn þann 09.02.2022. Ekki er farið út fyrir afmörkun byggingarreits, svo ekki sé tekið stærra land úr landbúnaðarnotkun en þörf krefur, sbr. ákvæði 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004, framyfir það sem samþykkt hefur verið undir byggingarreit. Um er að ræða landskipti um núverandi íbúðarhús og því koma aðrir valkostir ekki til greina. Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði og ekki er girt fyrir möguleg búrekstrarnot í framtíðinni.
    Landskiptin samræmast markmiðum Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 fyrir landbúnað um fjölgun íbúa í dreifbýli. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum er heimilt að stofna lóðir undir einstakar byggingar.
    Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
    Innan útskiptrar spildu er matshluti 01 sem er 250,30 m² einbýlishús byggt árið 2024. Mannvirki þetta skal fylgja landskiptum.
    Lögbýlisréttur fylgir áfram landnúmeri 232700.
    Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004268.
    Þá er óskað eftir stofnun 2.467,7 m² byggingarreits á landi Vallholts 2, landnr. 232700, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S02 í verki nr. 72440901, dags. 23. sept. 2026. Skv. Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er, á landbúnaðarsvæðum, fyrst og fremst gert ráð fyrir byggingum sem tengjast og styðja við landbúnað. Mannvirki sem reist verður á umsóttum byggingarreit verður í samræmi við ákvæði aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum. Hámarks byggingarmagn á umsóttum byggingarreit verður 700 m². Tilgangur byggingar er að lágmarka geymslu búnaðar utandyra og draga þannig úr neikvæðum ásýndaráhrifum af nærliggjandi vegi. Byggingarreitur sem sótt er um er á landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 sem hentar síður til jarðræktar. Uppbygging heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum. Mannvirki sem sótt er um byggingarreit fyrir hefur beina tengingu við landbúnaðarstarfsemi á jörðinni og skerðir ekki né rífur samfellu landbúnaðarlands í flokki I. Yfirferðarréttur er um heimreið sem liggur norðan byggingarreits og er þess gætt að reiturinn skerði ekki þann rétt eða annað aðgengi. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Það á við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
    Byggingarreitur sem sótt er um er ekki innan skilgreinds verndarsvæðis og er í samræmi við fjarlægðarreglur frá vegum og vötnum."
    Fyrirliggur umsögn landeiganda Lynghólma, L189120, án athugasemda, vegna heimreiðar.
    Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
    Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Vallholt L232700, í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn nafnabreytingu, stofnun landspildu og stofnun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Baldur Björnsson, f.h. Skagafjarðar, þinglýsts eiganda Lóðar 20 á Nöfum, landnr. 143982, óskar eftir heimild til að stofna 36 m² lóð úr landinu sem “Nafir dælustöð", ásamt stofnun 16 m² byggingarreits innan þeirrar lóðar, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 31250001, dags. 17. september 2026, og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni.
    Landheiti hinnar útskiptu lóðar vísar til fyrirhugaðrar notkunar hennar. Skagafjörður er þinglýstur eigandi allra aðliggjandi landeigna, þ.e. Lóðar 21 á Nöfum (landnr. 143980), Lóðar 19 á Nöfum (landnr. 143979) og Lóðar 12 á Nöfum (landnr. 143984). Fyrirhugaður byggingarreitur er að öllu leyti innan Lóðar 20 á Nöfum. Jafnframt hefur Ingólfi Jóni Sveinssyni leigutaka lóðar 20 á Nöfum, skv. þinglýstu skjali nr. 374/2025 sem er lóðarleigusamningur dags. 14. júní 2025, verið kynnt efni erindisins og meðfylgjandi afstöðuuppdrátt, og áritar hann erindið til staðfestingar um að hann hafi kynnt sér gögnin og geri ekki athugasemdir.
    Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
    Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lóð 20 á Nöfum L143982 á Sauðárkróki - Umsókn um stofnun lóðar og byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram umsókn Birgis Þórðarsonar þar sem eftirfarandi kemur fram:
    “Þann 24. ágúst 2023 samþykkti skipulagsnefnd Skagafjarðar umsókn landeiganda Ríp 2, landnr. 146396, um stofnun landspildu og byggingarreits á landi jarðarinnar, sem Arnarhóll, síðar samþykkt hjá sveitarstjórn Skagafjarðar þann 13. sept. 2023.

    Birgir Þórðarson, þinglýstur eigandi lóðarinnar Arnarhóls landnr. 236455, óskar eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 12.129,3 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75640104 útg. 30. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur.
    Um er að ræða stækkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar frístundahúss og tilheyrandi fylgihúsa, allt að 3 húsum innan reitsins, endanleg hönnun mannvirkja liggur ekki fyrir.
    Í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins um heildarfjölda og stærðarmörk mannvirkja segir:
    Uppbygging nýrra stakra bygginga... fari ekki yfir 2.000 m² og heildarfjöldi þeirra ekki fleiri en 3.
    Auk þess er í gr. 5.3.2.12 í Skipulagsreglugerð nr. 90/2013 kveðið á um heimild til byggingar fylgihúsa með eftirfarandi hætti:
    Frístundahús ásamt tilheyrandi mannvirkjum, svo sem geymslu, gestahúsi og bátaskýli skulu að jafnaði vera á sér lóð...
    Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Arnarhóls landnr. 236455, sem er skráð sumarhúsaland á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-3 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
    Áform um uppbyggingu eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum (kafli 3.7) og ákvæði um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 í greinargerð aðalskipulagsins segir meðal annars:
    Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi fyrir stökum framkvæmdum í dreifbýli án þess að gera þurfi kröfu um skipulagsgerð umfram það sem þörf er fyrir... Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur... Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
    Hér er sótt um stækkun byggingarreits fyrir frístundahús og fylgihús. Lögð verður áhersla á að áformuð mannvirki samræmist yfirbragði og ásýnd umhverfisins. Núverandi innviðir nýtast áfram og er framkvæmdin ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á umhverfi, mengun eða aðgengi á svæðinu.
    Eigandi Arnarhóls landnr. 236455 er einnig eigandi aðliggjandi jarðar, Ríp 2 landnr. 146396.“
    Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stækkun byggingarreits.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Arnarhóll L236455 í Hegranesi - Umsókn um stækkun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram umsókn Sigurðar Heiðars Birgissonar og Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
    “Þann 18. nóvember 2016 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar umsókn landeiganda Ríp 2, landnr. 146396, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar, sem síðar var stofnuð íbúðarhúsalóð utan um, sem Ríp II lóð 1, skv. þinglýstu skjali nr. 1120/2016.
    Sigurður Heiðar Birgisson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir, þinglýstir eigendur lóðarinnar Ríp II lóð 1 landnr. 224730, óska eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 1094 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75647001 útg. 24. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur. Reiturinn stækkar um 15 m til norðurs, 11 m til vesturs, 3 m til austurs og 14 m til suðurs, frá núverandi reit.
    Um er að ræða stækkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við núverandi íbúðarhús sem byggt var árið 2016. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarksbyggingarmagn viðbyggingar verður um 150 m² og verður byggingarhæð í samræmi við núverandi byggingu.
    Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Ríp II lóð 1 landnr. 224730, sem er skráð íbúðarhúsalóð á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
    Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar, þar sem um er að ræða viðbyggingu við núverandi mannvirki. Núverandi innviðir nýtast áfram, ekki er verið að fjölga sjálfstæðum byggingum og framkvæmdin ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
    Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
    Hér er sótt um viðbyggingu við íbúðarhús sem þjónar búsetu og starfsemi á staðnum. Lögð verður áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins. Áhrif á umhverfi eru óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar. Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda Ríp 2, landnr. 146396, er erindið því einnig áritað af eigendum þeirrar eignar til staðfestingar um að þeim hafi verið kynnt meðfylgjandi gögn og geri ekki athugasemdir. “
    Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stækkun byggingarreits.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Ríp II lóð 1 L224730 - Umsókn um stækkun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Gígja Jónsdóttir og Jón Olgeir Ingvason lóðarhafar Brekkutúns 6 á Sauðárkróki óska eftir heimild til að breikka innkeyslu á lóðinni. Sótt er um 3,2 m breikkun til suðurs, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins, sæmbærileg breikkun og hefur verið leyft t.d. við Brekkutún 4. Mynd fylgir erindinu sem gerir grein fyrir umbeðinni framkvæmd.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Brekkutúns 6 á Sauðárkróki. Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

    Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 107 Rúnar Pálsson óskar eftir endurnýjun lóðaleigusamnings varðandi lóðina nr. 12 við Hólaveg á Sauðárkróki.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að láta fullvinna lóðarblaðið ásamt merkjalýsingu og ganga frá skráningu lóðarinnar jafnframt því að gera lóðarleigusamning við hlutaðeigandi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 107 Kristín Efla Magnúsdóttir, f.h. Videosport ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Borgargerðis 2 (landnr. 145921), óskar eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 72954304, dags. 28. september 2026, unnum á Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur, og merkjalýsingu, unninni af Birni Magnúsi Árnasyni.
    Landamerki Borgargerðis 2 og Borgar, byggja á þinglýstu skjali nr. 69/2024. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 4, landnr. 234946, eru skv. teikningu nr. S01 í verki nr. 72954303, dags. 9. sept. 2022. Landamerki þessi urðu til með staðfestingu sveitarstjórnar Skagafjarðar dags. 10. okt. 2022 á umsókn undirritaðs um landskipti úr landi Borgargerðis 2. Því er litið á þau sem staðfest merki. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 1 land 2 er skv. teikningu nr. S01 í verki 72951, dags. 16. apríl 2010. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 1, og landamerki Borgargerðis 2 við Áshildarholtsvatn, að norðan, byggja á þinglýstu skjali nr. 23429, dags. 17. febrúar 1975.
    Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus landamerki.
    Um er að ræða hnitsetningu á eldri þinglýstum eignamörkum landeignarinnar. Engar breytingar eru gerðar á þegar hnitsettum merkjum jarðarinnar gagnvart aðliggjandi landeignum. Engin mannvirki eru skráð á umræddri landeign.
    Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004336.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Borgargerði 2 L145921 í Borgarsveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Giulia Weitz og Kristján Víðir Kristjánsson þinglýstir eigendur Hjalla land, landnúmer 146300, óska eftir heimild til að stofna 117 m² byggingarreit fyrir gestahús innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73800001 útg. 8. September 2026. Afstöðuppdrátturinn var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Einnig er meðfylgjandi uppdráttur nr. A 01, dags. 02. 03. 2026, unnin af Guðmundi Þór Guðmundssyni, sem sýnir byggingaráform, þ.e. grunnmynd, snið og útlit.
    Samhliða er hér sótt um heimild til nafnabreytingar á landeigninni, úr Hjalli land yfir í Hjalli 2.
    Innan landareignarinnar er matshluti 01 sem er einbýlishús, 140,2 m² að stærð, byggt árið 1991 og matshluti 02 sem er geymsla, 117,9 m² að stærð, byggt árið 2008.
    Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt gestahús sem verður að hámarki 60 m² að stærð og að hámarki 4 m að hæð.
    Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 (annað land eða lélegt ræktarland) skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 um stakar framkvæmdir segir: "Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur...". Samkvæmt skipulagsákvæðum fyrir landbúnaðarsvæði L-4 er “uppbygging og mannvirkjagerð heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum". Í almennum skipulagsákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum segir jafnframt að "skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af skipulagsákvæðum og umfangi framkvæmda." og "Framvkæmdir eða breytingar á landnotkun skulu metnar með tilliti til mögulegra áhrifa á verndargildi votlendis, gróðurlendis, fuglasvæða og líffræðilegs fjölbreytileika."
    Skv. ákvæðum 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn eða aðili sem hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála ákveðið að veita megi byggingar- eða framkvæmdaleyfi án deiliskipulags ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Jafnframt er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkyningu ef sýnd er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Skv. 5.9.7. gr. þurfa hönnunargögn ekki að vera fullunnin á þessu stigi.
    Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
    Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.
    Óskað hefur verið eftir umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir gestahús.

    Fyrir liggja afrit af umsögnum eigenda Hjaltastaða land, L180161 og Hjalla land, L221439 þar sem fram kemur að eigendur nefndra fasteigna geri ekki athugasemdir við ætlaða byggingarframkvæmd.
    Ekki liggur fyrir umsögn eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299 sem umlykur nefnda lóð.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við sveitarstjórn að fyrirhuguð umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt þeim nágrönnum sem taldir geta átt hagsmuna að gæta.
    Það er:
    Eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299. Eiganda lóðarinnar Hjalla land, L221439. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaða land, L180161. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaðir 2, L225439.
    Eigendum jarðarinnar Hjaltastaðir, L146301. Eiganda lóðarinnar Hornskarpur, L240079.

    Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hjalli land L146300 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreits og nafnabreytingu landeignar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lagt fram tilboð í frumhönnun og kostnaðarmat á hringtorgi við Skagfirðingabraut-Sæmundarhlíð-Borgargerði ásamt kostnaðarmati á áður frumhönnuðu hringtorgi við Skagfirðingabraut-Sæmundarhlíð-Hegrabraut.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir skipulagsmál.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun skipulagsmála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
    Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá fyrir þjónustu- og framkvæmdagjöld skipulagsfulltrúa 2027.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá.
    Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 107 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 94 þann 18.09.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 107. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

12.Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 10

Málsnúmer 2609021FVakta málsnúmer

Fundargerð 10. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki frá 29. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Einar E. Einarsson og Magnús Barðdal Reynisson kvöddu sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 10 Einar E. Einarsson sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

    Lagt fram erindi frá Arkís arkitektum þar sem óskað er eftir viðbótarframlagi frá sveitarfélaginu Skagafirði vegna hönnunar Menningarhúss á Sauðárkróki.

    Jafnframt voru lögð fram drög að svarbréfi sem unnin voru í samvinnu við VSÓ Ráðgjöf og starfsmenn sveitarfélagsins.

    Samþykkt að fela sveitarstjóra að senda svarbréfið til Arkís arkitekta sem formlegt svar við framkominni kröfugerð.
    Bókun fundar Fundargerð 10. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.

13.Lokun sundlaugar HSN

Málsnúmer 2610122Vakta málsnúmer

Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs og lagði fram sameiginlega ályktun sveitarstjórnar vegna lokunar sundlaugar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki.

Sveitarstjórn Skagafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af lokun endurhæfingarlaugar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki og þeim áhrifum sem lokunin hefur á íbúa Skagafjarðar og Norðurlands vestra.
Laugin hefur um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í endurhæfingu og heilsueflingu fjölbreytts hóps notenda, meðal annars eldra fólks, einstaklinga með stoðkerfisvanda og skerta hreyfigetu, fatlaðs fólks, barnshafandi kvenna og foreldra með ung börn. Engin önnur sambærileg innilaug er á Norðurlandi vestra og því er ekki um sambærilegan valkost að ræða á svæðinu.
Sveitarstjórn telur sérstaklega mikilvægt að horft verði til þess að mannvirkið er þegar til staðar og hefur verið nýtt til þjónustu sem stuðlar að heilsueflingu, forvörnum og endurhæfingu. Lokun slíkrar þjónustu vegna fjárhagslegs aðhalds kann að leiða til aukinnar þarfar fyrir aðra og kostnaðarsamari heilbrigðisþjónustu.
Sveitarstjórn telur óásættanlegt að nauðsynlegt rekstraraðhald heilbrigðisstofnana leiði til þess að mikilvæg þjónusta við íbúa á landsbyggðinni falli niður án þess að tryggð sé önnur sambærileg þjónusta.
Sveitarstjórn Skagafjarðar skorar því á heilbrigðisráðherra og ríkisstjórn Íslands að tryggja Heilbrigðisstofnun Norðurlands nauðsynlegt fjármagn svo unnt verði að opna endurhæfingarlaugina að nýju og tryggja áframhaldandi starfsemi hennar. Jafnframt óskar sveitarstjórn eftir fundi með heilbrigðisráðherra sem fyrst um málið.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að hér er ekki eingöngu um heilbrigðismál að ræða heldur einnig mikilvægt byggða- og jafnréttismál, enda eiga íbúar Norðurlands vestra að hafa raunhæfan aðgang að endurhæfingu og heilsueflandi þjónustu óháð búsetu.

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs.

Framlögð ályktun borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

14.Samþykkt um fráveitu í Skagafirði - 2026

Málsnúmer 2605179Vakta málsnúmer

Málinu var upprunalega vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar af 47. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 21. maí 2026. Sveitarstjórn samþykkti samþykktina með níu atkvæðum á 51. fundi sínum þann 1. júlí 2026. Síðan þá hefur samþykktin farið fyrir heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra og fengið jákvæða umsögn nefndarinnar. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 skal sveitarstjórn hafa tvær umræður um samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra og er samþykktin því tekin aftur á dagskrá sveitarstjórnar.

Samþykktin borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

15.Uppfærsla gjaldskrár fráveitu og tæmingu rotþróa 2026

Málsnúmer 2604158Vakta málsnúmer

Málinu var vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar frá 46. fundi landbúnaðar- og innviðanenfdar þann 30. apríl 2026, þannig bókað:
"Forstöðumaður framkvæmda Sigurður Arnar Friðriksson lagði fram niðurstöðu úr sameiginlegu útboði með Húnavatnssýslunum um losun rotþróa á svæðinu og lagði fram uppfærða gjaldskrá vegna losunar. Tekið hefur verið lægsta tilboði frá Verkvali ehf. Landbúnaðar- og innviðanefnd fagnar niðurstöðu útboðsins sem leiðir til lækkunar gjalda til eigenda fyrir losun á rotþróm sem fram fer á þriggja ára fresti á hverju svæði, en Skagafirði er skipt í þrjú losunarsvæði. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og verður hún birt á heimasíðu sveitarfélagsins."

Gjaldskráin beið afgreiðslu meðan samþykkt um fráveitu, sem unnin var samhliða, var í ferli. Samþykktin hefur verið lögð fyrir sveitarstjórn til annarrar umræðu og er gjaldskráin nú lögð fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa fyrir árið 2026 borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að birta gjaldskránna í B-deild stjórnartíðinda.

16.Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2607102Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lagður fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn felur í sér hækkun rekstrargjalda um 160,8 m.kr. og hækkun eigna um 17 m.kr.

Hækkun rekstrargjalda felast í kaupum á rafmagnsspennuskápum vegna tjaldsvæðis á Sauðárkróki (4 m.kr.), breytinga stöðugilda á Fjölskyldusviði (3,5 m.kr.), Breytingar á fjármagnsliðum vegna uppfærslu lánasafns m.t.t. verðlagsbreytinga (259,1 m.kr.),

Rekstrarliðum er mætt að hluta með hækkun útsvarstekna og breytingar á framlögum jöfnunarsjóðs (98 m.kr.), lækkun áætlunar um niðurgreiðslu leikskólagjalda (10 m.kr.), auknum fjárframlögum vegna dagdvalar aldraðra, sjúkraflutninga og frá Úrvinnslusjóði (8,5 m.kr.), auknum tekjum frá Gretti sterka (6 m.kr.) og hækkun áætlunar vegna fráveitugjalda (15 m.kr.).

Breytingar á efnahagsreikningi tengjast breytingar á eignum og skuldum vegna uppfærslu á niðurstöðu ársreiknings 2025 í fjárhagsáætlun ársins 2026 auk fjárfestingar í uppfærslu á tölvubúnaði veitumannvirkja (17 m.kr.) og hækkun fjárheimildar vegna vinnu við fjölgun bílastæða við Sundlaug Sauðárkróks (4,1 m.kr.).

Eftirstandandi breytingum er mætt með lækkun handbærs fjár að upphæð 181,9 m.kr.

Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta 552,2 m.kr. og samstæðu A- og B-hluta 2,199 m.kr.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka með áorðinni hækkun að upphæð 4,1 m.kr. vegna stækkunar bílastæða við sundlaugar Sauðárkróks. Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlagður viðauki borinn upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktur með níu atkvæðum.

17.Nestún 22 - Fyrirspurn varðandi deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2609068Vakta málsnúmer

Vísað frá 106. fundi skipulagsnefndar frá 17. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Skúli Hermann Bragason sendir inn fyrirspurn í tölvupósti dags. 13.09.2026 fyrir hönd lóðarhafa Nestúns 22 varðandi hvort fengist samþykkt að byggja þrjár íbúðir á lóðinni í stað tveggja samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Þá myndi á lóðinni koma tvær þriggja herbergja íbúðir með bílskúr 120-140 m2 hvor og ein þriggja herbergja án bílskúrs 80-100 m2. Erindinu fylgir afstöðumynd "Nestún 22- Afstöðumynd A4" dags. 13.09.2026 unnin af Skúla Hermanni Bragasyni. Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum við hverja íbúð ásamt sorptunnum.
Nýtingarhlutfall lóðarinnar yrði 0,3-0,32.
Enda íbúðirnar myndu speglast með bílskúr inn að miðju og minni íbúðin þar á milli. Útlitslega yrði raðhúsið svipað og Nestún 20, þ.e.a.s. hvað varðar byggingarlag, frágangur húss og lóðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa umbeðna deiliskipulagsbreytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin bendir jafnframt á að umsækjandi beri kostnað vegna vinnslu og auglýsingu á deiliskipulagsbreytingunni skv. gildandi gjaldskrá sveitarfélagsins."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa umbeðna deiliskipulagsbreytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

18.Lóð 70 við Sauðárhlíð - Fyrirspurn til skipulagsnefndar

Málsnúmer 2608157Vakta málsnúmer

Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Vísað frá 106. fundi skipulagsnefndar frá 17. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 20.08.2026, þar sem skipulagsnefnd samþykkti m.a. samhljóða að taka erindið til frekari skoðunar og fól skipulagsfulltrúa að fá umferðarsérfræðing til að vinna minnisblað að tillögu öruggri lausn, við umrædda innkeyrslu á Sauðárhlíð, lóð 70.

Lagt fram minnisblað frá Eflu verkfræðistofu, skjalalykill 101617-MIN-001-V01, dags. 21.09.2022, vegna innkeyrslu við Sæmundarhlíð að veitingarstaðnum Sauðá, þar kemur m.a. fram:
“Miðað við umfang umferðar og aðstæður á Sæmundarhlíð við tengingu að húsinu Sauðárhlíð telst ekki vera fyrirstaða við að útbúa innkeyrslu og bílastæði fyrir veitingastaðinn. Sjónlengdir eru nægjanlegar bæði gagnvart umferð akandi, hjólandi og gangandi. Eins telst vera nægjanleg fjarlægð að næstu gatnamótum. Mælst er með að hafa gönguþverunina yfir innkeyrsluna upphækkaða frá Sæmundarhlíð og frá bílastæðinu til að gangandi og hjólandi vegfarendur njóti forgangs.
Það eru engar skilgreindar gönguþveranir eða gangbrautir á Sæmundarhlíð við innkeyrsluna að Sauðárhlíð eða við gatnamótin að Spítalastíg. Æskilegt væri að útbúa gönguþverun, annaðhvort við Sauðarhlíð eða við gatnamótin að Spítalastíg, til að bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda."

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fella úr gildi þinglýstan lóðarleigusamning skjal nr. 594/2020, auk yfirlýsingar, skjal nr. 596/2020 vegna Lóðar 70 við Sauðárhlíð og að gerður verði nýr lóðarleigusamningu við hlutaðeigandi.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram hvað varðar umferðaröryggi á svæðinu.

Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vék af fundi við afgreiðslu erindisins og varmaður hans Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað."

Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að fella úr gildi þinglýstan lóðarleigusamning skjal nr. 594/2020, auk yfirlýsingar, skjal nr. 596/2020 vegna Lóðar 70 við Sauðárhlíð og að gerður verði nýr lóðarleigusamningu við hlutaðeigandi.

19.Ármúli L145983 - Beiðni um óveruleg breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2609031Vakta málsnúmer

Vísað frá 106. fundi skipulagsnefndar frá 17. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Hermann Þórisson þinglýstur eigandi jarðarinnar Ármúla L145983 óskar eftir að gera breytingu á gildandi deiluskipulagi svæðisins.

Óskað er eftir að húsið verði tveggja hæða, nýtingarhlutfall verði hækkað og þar með heimilaður fermetrafjöldi úr 65 m2 í 130 m2.
Eftirfarandi kemur m.a. fram í erindinu:
Breytingin hefur engin áhrif á útlit hússins. Umsækjandi telur að um sé að ræða óverulega breytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 þar sem segir m.a. við útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fallast á að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja hana skv. 43. gr. skipulagslaga og fallast á að ekki sé tilefni til grenndarkynningar þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
Nefndin bendir jafnframt á að umsækjandi þarf að láta vinna og skila inn til skipulagsfulltrúa viðeigandi lokagögnum á óverulegri deiliskipulagsbreytingu af þar til bærum hönnuðum áður en slík breyting getur tekið gildi."

Sveitarstjórn fellst á að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og samþykkir með níu atkvæðum breytinguna á deiliskipulaginu skv. 43. gr. skipulagslaga. Jafnframt fellst sveitarstjórn á að ekki sé tilefni til grenndarkynningar þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.

20.Ás 2 L146366 - Stöðuhýsi - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2609134Vakta málsnúmer

Vísað frá 106. fundi skipulagsnefndar frá 17. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá starfsmanni byggingarfulltrúa þar sem vísað er til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Umsagnarbeiðnin varðar tilkynnta framkvæmd undanþegna byggingarheimild, staðsetningu stöðuhýsis á jörðinni Ás 2, L146366 í Hegranesi og er í umsagnarbeiðni vísað til C-liðar 2.3.6. gr. byggingarreglugerðar, tilkynning frá Kristjáni Elvari Gíslasyni og Stefanie Wermelinger.
Fylgjandi umsagnarbeiðni er uppdráttur gerður hjá Nýhönnun af Ómari Péturssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur númer A-101, dagsettur 02.09.2026.

Í greinargerð á nefndum uppdrætti kemur m.a. fram:
"Tilkynningarskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi sbr. C-lið gr. 2.3.6. gr. í byggingarreglugerð, "stöðuhýsi sem skulu standa lengur en 4 mánuði".
Setja á niður um óákveðin tíma færanlegt stöðuhýsi á jörðinni Ási 2, L1466366.
Um er að ræða innflutt 43m² stöðuhýsi, static caravan. Hýsið er léttbyggt en stendur á stálgrind með hjólabúnaði þannig að auðvelt er að færa það á milli staða. Í hýsinu eru tvö herbergi, eldhús, stofa og snyrting. Hýsið verður staðsett á núverandi malarplani vestan útihúsa og þannig fest að ekki stafi fokhætta af. Ekki er gert ráð fyrir að húsið verði tengt lagna eða veitukerfum.
Eldvarnir, í hýsinu verða þrír reykskynjarar og slökkvitæki við inngang. Staðsetning hýsisins uppfyllir fjarlægðarkröfu um bil milli bygginga sbr. gr. 9.7.5. í byggingarreglugerð.“

Í umsagnarbeiðni er m.a. vísað til C-liðar gr. 2.3.6. byggingarreglugerðar.

Í leiðbeiningum HMS varðandi tilkynningarskyld mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarheimild og -leyfi segir:
"Um er að ræða tímabundnar og lausar byggingar sem ekki eru tengdar lagna- eða veitukerfum og ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna lengur en fjóra mánuði á sama stað. Sem dæmi um stöðuhýsi má nefna húsvagna (hjólhýsi og húsbíla) og tjaldhýsi úr léttum byggingarefnum. Séu stöðuhýsi tengd við lagna- eða veitukerfi verða þau byggingarheimildarskyld. Stöðuhýsi þurfa að uppfylla kröfur um fjarlægðarmörk skv. 9.7.5. gr. og aðrar viðeigandi greinar 9. hluta brgl. um brunavarnir."

Í byggingarreglugerð 112/2012, skilgreiningar, gr. 1.2.1. segir:
56. Mannvirki:
“Hvers konar jarðföst, manngerð smíð, svo sem hús og aðrar byggingar eða skýli, virkjanir, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, fráveitumannvirki, umferðar- og göngubrýr í þéttbýli, stór skilti og togbrautir til fólksflutninga. Til mannvirkja teljast einnig tímabundnar og lausar byggingar sem ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna í fjóra mánuði eða lengur á sama stað, svo sem starfsmannabúðir og húsvagnar. Mannvirki á eða í hafi, vötnum og ám sem hafa fasta staðsetningu teljast einnig til mannvirkja samkvæmt reglugerð þessari.“

Í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 segir m.a:
"Bygging húsa og annarra mannvirkja ofan jarðar og neðan og aðrar framkvæmdir og aðgerðir sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir, sbr. ákvæði skipulagslaga, laga um mannvirki og reglugerða settra samkvæmt þeim."

Sótt er um staðsetningu stöðuhýsis á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-II skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í samræmi við stefnu aðalskipulagsins um eflingu landbúnaðar og búsetu, en í kafla 3.7 um almenn ákvæði landnotkunar á landbúnaðarsvæðum segir:
“Á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu.“
"Útihús og byggingar til landbúnaðarnota skulu reist í tengslum við eða nærri öðrum húsum og innviðum á jörðinni, að því gefnu að möguleg neikvæð áhrif, t.d. lyktarmengun, verði óveruleg fyrir íbúa."
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif. Sjá einnig kafla 3.16 Stakar framkvæmdir."

Fyrirliggur samþykki landeiganda Ás 1, L146365.

Skipulagsnefnd tekur ekki afstöðu til tilkynningarskyldu umbeðinnar framkvæmdar þar sem tilkynningarskylda fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 en áréttar að um tímabundna lausn sé að ræða sbr. C-liðar gr. 2.3.6. byggingarreglugerðar.

Með vísan til þess sem framan greinir samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna staðsetningu stöðuhýsis."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna staðsetningu stöðuhýsis.

21.Brúnastaðir L146157 í Tungusveit - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2609151Vakta málsnúmer

Vísað frá 106. fundi skipulagsnefndar frá 17. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Þann 1. mars 2017 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar umsókn landeiganda Brúnastaða, landnr. 146157, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar. Samþykkt staðfest í sveitarstjórn þann 15. mars 2017.

Elenóra Bára Birkisdóttir, Böðvar Fjölnir Sigurðsson og Hafdís Bára Böðvarsdóttir f.h. Brúnastaða ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Brúnastaða, landnr. 146157, óska eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 300 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 77760203 útg. 14. mars 2026.
Afstöðuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. Reiturinn stækkar um 15 m til norðurs við norðurenda núverandi byggingar.
Um er að ræða byggingarreit fyrir viðbyggingu núverandi fjósbyggingar sem byggð var árið 2018. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn viðbyggingar verður 250 m² og verður byggingarhæð í samræmi við núverandi byggingu.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar þar sem um er að ræða byggingu í tengslum við aðra byggingu, þ.e.a.s. viðbyggingu, núverandi innviðir nýtast áfram, ekki er verið að fjölga byggingum og um er að ræða byggingu fyrir landbúnaðarstarfsemi sem er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Hér er sótt um viðbyggingu fjósbyggingar sem er grundvöllur starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform munu efla starfsemi á svæðinu og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins. Áhrif á umhverfi eru óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar.
Óskað hefur verið umsagnar minjavarðar.

Elenóra Bára Birkisdóttir og Böðvar Fjölnir Sigurðsson eru einnig eigendur Brúnastaða 2, landnr. 225956 og Blámels, landnr. 235413.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðinn byggingarreit að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.

22.Deiliskipulag - Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra - Verknámshús - Skagfirðingabraut 26

Málsnúmer 2401263Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skagfirðingabraut 26, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS-01, verknúmer 56293200, dags. 21.09.2026, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.

Skipulagsuppdrátturinn sýnir fyrirhugaða uppbyggingu innan skipulagssvæðisins, aðkomu inn á lóðina, byggingarreiti, bílastæði og helstu skilmála.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Björn Magnús Árnason sat fundinn undir þessum lið."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

23.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag

Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Laufblaðið íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði, uppdrættir DS01 og DS02 ásamt greinargerð dags. 01.10.2026, verknúmer 56291510, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, Árna Ragnarssyni og Atla Gunnari Arnórssyni.

Uppdrátturinn sýnir afmörkun lóða, byggingarreiti, götulínur, gönguleiðir og helstu byggingarskilmála. Skýringaruppdráttur nr. DS-02 sýnir lóðamörk og núverandi byggingar, skilmálatöflu og hugmyndafræðin fyrir opna svæðið sem unnin er af Hildi Hartmannsdóttur.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Laufblaðið - Íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.

Björn Magnús Árnason sat fundinn undir þessum lið."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Laufblaðið - Íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

24.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram vinnslutillaga deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar fyrir Furulund í Varmahlíð, uppdrættir DS01 og AS01 dags. 01.10.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni og Árna Ragnarssyni.

Helsta viðfangsefni við breytingu á aðalskipulagi er að marka stefnu um landnotkun þar sem fyrir liggur að landnotkun síðustu ára mun breytast, þar sem leikskólinn hefur verið fluttur frá götunni Furulundi. Aðalskipulagsbreyting gengur út á að svæði fyrir samfélagsþjónustu verður íbúðarsvæði annars vegar og miðsvæði hins vegar.
Deiliskipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðamörk, aðkomu að lóðum og byggingarreiti ásamt helstu byggingarskilmálum.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags fyrir "Furulund, Varmahlíð" skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Björn Magnús Árnason sat fundinn undir þessum lið."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags fyrir "Furulund, Varmahlíð" skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir sveitarstjórn með níu atkvæðum að auglýsa vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

25.Tunguháls II L146242 í Tungusveit - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2609250Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Líneyjar Maríu Hjálmarsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:

“Líney María Hjálmarsdóttir þinglýstur eigandi jarðarinnar Tunguháls II, landnúmer 146242, óskar eftir heimild til að stofna um 5.000 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74800010 útg. 15. sept. 2026.
Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf, af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar fjósbyggingar. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn verður um 2.500 m² og hámarks byggingarhæð verður um 7 m frá gólfi í mæni. Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins. Jafnframt segir í sama kafla:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um nýbyggingu á fjósi sem er grundvöllur starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform stuðla að aukinni velferð dýra á búinu með auknu rými og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð nýbygging samræmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Sótt er um að byggingarreiturinn verði staðsettur í rúmlega 15 metra fjarlægð frá miðlínu héraðsvegarins (nr. 757), sem samræmist ákvæði 32. gr. 1. mgr. vegalaga nr. 80/2007 um 15 metra veghelgunarsvæði. Umsækjandi óskar eftir undanþágu til að víkja frá 50 metra fjarlægðarmörkum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 (gr. 5.3.2.5, c-lið) og Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 (kafla 4.1).
Hér er sótt um undanþágu vegna sérstakra landfræðilegra og ræktunarlega aðstæðna. Á landeigninni er mikill hæðarmunur og brattur halli fjær veginum, en heppilegt sléttlendi er nær veginum á bilinu 15-50 metrar. Með því að staðsetja fjósbygginguna á sléttlendinu er komið í veg fyrir umfangsmiklar skeringar, jarðvegsflutninga og óþarft jarðrask í brattara landslaginu, sem ellegar myndi skilja eftir sig varanleg sár í ásýnd svæðisins. Þá kemur staðsetningin nær veginum í veg fyrir að byggt sé á verðmætara tún- og ræktunarlandi jarðarinnar fjær veginum, sem samræmist stefnu aðalskipulagsins og jarðalaga um að vernda verðmætt ræktarland og halda ræktarsvæðum órofnum."
Óskað hefur verið eftir umsögn Vegagerðarinnar.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 50 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Villinganesvegi nr. 757.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit fyrir fjósbyggingu á Tunguhálsi II að fenginni jákvæðri umsögn ráðuneytisins vegna undanþágubeiðni vegna fjarlægðarmarka."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að óska eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 50 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Villinganesvegi nr. 757. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt með níu atkvæðum umbeðinn byggingarreit fyrir fjósbyggingu á Tunguhálsi II að fenginni jákvæðri umsögn ráðuneytisins vegna undanþágubeiðni vegna fjarlægðarmarka.

26.Vallholt L232700, í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn nafnabreytingu, stofnun landspildu og stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2609252Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Rögnu Hrundar Hjartardóttur og Stefaníu Sigfúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Ragna Hrund Hjartardóttir og Stefanía Sigfúsdóttir þinglýstir eigendur jarðarinnar Vallholts, landnr. 232700, óska eftir að breyta staðfangi jarðarinnar úr "Vallholt" í "Vallholt 2".
Einnig er óskað eftir að stofna 37.722 m² (3,77 ha) spildu úr landi jarðarinnar, sem "Vallholt", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72440901 dags. 23. sept. 2026 og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10).
Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og örnefna á svæðinu.
Engin hlunnindi fylgja landskiptum.
Lögbýlisréttur fylgir áfram Vallholti 2, L232700, áður Vallholt.
Í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-1 og L-2. Afmörkun lóðarinnar samræmist afmörkun á byggingarreit sem var samþykktur í sveitarstjórn þann 09.02.2022. Ekki er farið út fyrir afmörkun byggingarreits, svo ekki sé tekið stærra land úr landbúnaðarnotkun en þörf krefur, sbr. ákvæði 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004, framyfir það sem samþykkt hefur verið undir byggingarreit. Um er að ræða landskipti um núverandi íbúðarhús og því koma aðrir valkostir ekki til greina. Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði og ekki er girt fyrir möguleg búrekstrarnot í framtíðinni.
Landskiptin samræmast markmiðum Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 fyrir landbúnað um fjölgun íbúa í dreifbýli. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum er heimilt að stofna lóðir undir einstakar byggingar.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Innan útskiptrar spildu er matshluti 01 sem er 250,30 m² einbýlishús byggt árið 2024. Mannvirki þetta skal fylgja landskiptum.
Lögbýlisréttur fylgir áfram landnúmeri 232700.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004268.
Þá er óskað eftir stofnun 2.467,7 m² byggingarreits á landi Vallholts 2, landnr. 232700, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S02 í verki nr. 72440901, dags. 23. sept. 2026. Skv. Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er, á landbúnaðarsvæðum, fyrst og fremst gert ráð fyrir byggingum sem tengjast og styðja við landbúnað. Mannvirki sem reist verður á umsóttum byggingarreit verður í samræmi við ákvæði aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum. Hámarks byggingarmagn á umsóttum byggingarreit verður 700 m². Tilgangur byggingar er að lágmarka geymslu búnaðar utandyra og draga þannig úr neikvæðum ásýndaráhrifum af nærliggjandi vegi. Byggingarreitur sem sótt er um er á landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 sem hentar síður til jarðræktar. Uppbygging heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum. Mannvirki sem sótt er um byggingarreit fyrir hefur beina tengingu við landbúnaðarstarfsemi á jörðinni og skerðir ekki né rífur samfellu landbúnaðarlands í flokki I. Yfirferðarréttur er um heimreið sem liggur norðan byggingarreits og er þess gætt að reiturinn skerði ekki þann rétt eða annað aðgengi. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Það á við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Byggingarreitur sem sótt er um er ekki innan skilgreinds verndarsvæðis og er í samræmi við fjarlægðarreglur frá vegum og vötnum."
Fyrirliggur umsögn landeiganda Lynghólma, L189120, án athugasemda, vegna heimreiðar.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.

27.Lóð 20 á Nöfum L143982 á Sauðárkróki - Umsókn um stofnun lóðar og byggingarreits

Málsnúmer 2609274Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Baldur Hrafn Björnsson, f.h. Skagafjarðar, þinglýsts eiganda Lóðar 20 á Nöfum, landnr. 143982, óskar eftir heimild til að stofna 36 m² lóð úr landinu sem “Nafir dælustöð", ásamt stofnun 16 m² byggingarreits innan þeirrar lóðar, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 31250001, dags. 17. september 2026, og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni.
Landheiti hinnar útskiptu lóðar vísar til fyrirhugaðrar notkunar hennar. Skagafjörður er þinglýstur eigandi allra aðliggjandi landeigna, þ.e. Lóðar 21 á Nöfum (landnr. 143980), Lóðar 19 á Nöfum (landnr. 143979) og Lóðar 12 á Nöfum (landnr. 143984). Fyrirhugaður byggingarreitur er að öllu leyti innan Lóðar 20 á Nöfum. Jafnframt hefur Ingólfi Jóni Sveinssyni leigutaka lóðar 20 á Nöfum, skv. þinglýstu skjali nr. 374/2025 sem er lóðarleigusamningur dags. 14. júní 2025, verið kynnt efni erindisins og meðfylgjandi afstöðuuppdrátt, og áritar hann erindið til staðfestingar um að hann hafi kynnt sér gögnin og geri ekki athugasemdir.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.

28.Arnarhóll L236455 í Hegranesi - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2610028Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Birgis Þórðarsonar þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Þann 24. ágúst 2023 samþykkti skipulagsnefnd Skagafjarðar umsókn landeiganda Ríp 2, landnr. 146396, um stofnun landspildu og byggingarreits á landi jarðarinnar, sem Arnarhóll, síðar samþykkt hjá sveitarstjórn Skagafjarðar þann 13. sept. 2023.

Birgir Þórðarson, þinglýstur eigandi lóðarinnar Arnarhóls landnr. 236455, óskar eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 12.129,3 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75640104 útg. 30. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða stækkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar frístundahúss og tilheyrandi fylgihúsa, allt að 3 húsum innan reitsins, endanleg hönnun mannvirkja liggur ekki fyrir.
Í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins um heildarfjölda og stærðarmörk mannvirkja segir:
Uppbygging nýrra stakra bygginga... fari ekki yfir 2.000 m² og heildarfjöldi þeirra ekki fleiri en 3.
Auk þess er í gr. 5.3.2.12 í Skipulagsreglugerð nr. 90/2013 kveðið á um heimild til byggingar fylgihúsa með eftirfarandi hætti:
Frístundahús ásamt tilheyrandi mannvirkjum, svo sem geymslu, gestahúsi og bátaskýli skulu að jafnaði vera á sér lóð...
Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Arnarhóls landnr. 236455, sem er skráð sumarhúsaland á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-3 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Áform um uppbyggingu eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum (kafli 3.7) og ákvæði um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 í greinargerð aðalskipulagsins segir meðal annars:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi fyrir stökum framkvæmdum í dreifbýli án þess að gera þurfi kröfu um skipulagsgerð umfram það sem þörf er fyrir... Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur... Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um stækkun byggingarreits fyrir frístundahús og fylgihús. Lögð verður áhersla á að áformuð mannvirki samræmist yfirbragði og ásýnd umhverfisins. Núverandi innviðir nýtast áfram og er framkvæmdin ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á umhverfi, mengun eða aðgengi á svæðinu.
Eigandi Arnarhóls landnr. 236455 er einnig eigandi aðliggjandi jarðar, Ríp 2 landnr. 146396.“
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stækkun byggingarreits."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna stækkun byggingarreits.

29.Ríp II lóð 1 L224730 - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2610031Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Sigurðar Heiðars Birgissonar og Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Þann 18. nóvember 2016 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar umsókn landeiganda Ríp 2, landnr. 146396, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar, sem síðar var stofnuð íbúðarhúsalóð utan um, sem Ríp II lóð 1, skv. þinglýstu skjali nr. 1120/2016.
Sigurður Heiðar Birgisson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir, þinglýstir eigendur lóðarinnar Ríp II lóð 1 landnr. 224730, óska eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 1094 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75647001 útg. 24. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur. Reiturinn stækkar um 15 m til norðurs, 11 m til vesturs, 3 m til austurs og 14 m til suðurs, frá núverandi reit.
Um er að ræða stækkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við núverandi íbúðarhús sem byggt var árið 2016. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarksbyggingarmagn viðbyggingar verður um 150 m² og verður byggingarhæð í samræmi við núverandi byggingu.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Ríp II lóð 1 landnr. 224730, sem er skráð íbúðarhúsalóð á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar, þar sem um er að ræða viðbyggingu við núverandi mannvirki. Núverandi innviðir nýtast áfram, ekki er verið að fjölga sjálfstæðum byggingum og framkvæmdin ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um viðbyggingu við íbúðarhús sem þjónar búsetu og starfsemi á staðnum. Lögð verður áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins. Áhrif á umhverfi eru óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar. Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda Ríp 2, landnr. 146396, er erindið því einnig áritað af eigendum þeirrar eignar til staðfestingar um að þeim hafi verið kynnt meðfylgjandi gögn og geri ekki athugasemdir. “
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stækkun byggingarreits."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna stækkun byggingarreits.

30.Borgargerði 2 L145921 í Borgarsveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum

Málsnúmer 2610034Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Kristín Efla Magnúsdóttir, f.h. Videosport ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Borgargerðis 2 (landnr. 145921), óskar eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 72954304, dags. 28. september 2026, unnum á Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur, og merkjalýsingu, unninni af Birni Magnúsi Árnasyni.
Landamerki Borgargerðis 2 og Borgar, byggja á þinglýstu skjali nr. 69/2024. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 4, landnr. 234946, eru skv. teikningu nr. S01 í verki nr. 72954303, dags. 9. sept. 2022. Landamerki þessi urðu til með staðfestingu sveitarstjórnar Skagafjarðar dags. 10. okt. 2022 á umsókn undirritaðs um landskipti úr landi Borgargerðis 2. Því er litið á þau sem staðfest merki. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 1 land 2 er skv. teikningu nr. S01 í verki 72951, dags. 16. apríl 2010. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 1, og landamerki Borgargerðis 2 við Áshildarholtsvatn, að norðan, byggja á þinglýstu skjali nr. 23429, dags. 17. febrúar 1975.
Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus landamerki.
Um er að ræða hnitsetningu á eldri þinglýstum eignamörkum landeignarinnar. Engar breytingar eru gerðar á þegar hnitsettum merkjum jarðarinnar gagnvart aðliggjandi landeignum. Engin mannvirki eru skráð á umræddri landeign.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004336.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu.

31.Hjalli land L146300 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreits og nafnabreytingu landeignar

Málsnúmer 2609275Vakta málsnúmer

Vísað frá 107. fundi skipulagsnefndar frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Giulia Weitz og Kristján Víðir Kristjánsson þinglýstir eigendur Hjalla land, landnúmer 146300, óska eftir heimild til að stofna 117 m² byggingarreit fyrir gestahús innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73800001 útg. 8. September 2026. Afstöðuppdrátturinn var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Einnig er meðfylgjandi uppdráttur nr. A 01, dags. 02. 03. 2026, unnin af Guðmundi Þór Guðmundssyni, sem sýnir byggingaráform, þ.e. grunnmynd, snið og útlit.
Samhliða er hér sótt um heimild til nafnabreytingar á landeigninni, úr Hjalli land yfir í Hjalli 2.
Innan landareignarinnar er matshluti 01 sem er einbýlishús, 140,2 m² að stærð, byggt árið 1991 og matshluti 02 sem er geymsla, 117,9 m² að stærð, byggt árið 2008.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt gestahús sem verður að hámarki 60 m² að stærð og að hámarki 4 m að hæð.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 (annað land eða lélegt ræktarland) skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 um stakar framkvæmdir segir: "Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur...". Samkvæmt skipulagsákvæðum fyrir landbúnaðarsvæði L-4 er “uppbygging og mannvirkjagerð heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum". Í almennum skipulagsákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum segir jafnframt að "skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af skipulagsákvæðum og umfangi framkvæmda." og "Framvkæmdir eða breytingar á landnotkun skulu metnar með tilliti til mögulegra áhrifa á verndargildi votlendis, gróðurlendis, fuglasvæða og líffræðilegs fjölbreytileika."
Skv. ákvæðum 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn eða aðili sem hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála ákveðið að veita megi byggingar- eða framkvæmdaleyfi án deiliskipulags ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Jafnframt er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkyningu ef sýnd er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Skv. 5.9.7. gr. þurfa hönnunargögn ekki að vera fullunnin á þessu stigi.
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.
Óskað hefur verið eftir umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir gestahús.

Fyrir liggja afrit af umsögnum eigenda Hjaltastaða land, L180161 og Hjalla land, L221439 þar sem fram kemur að eigendur nefndra fasteigna geri ekki athugasemdir við ætlaða byggingarframkvæmd.
Ekki liggur fyrir umsögn eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299 sem umlykur nefnda lóð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við sveitarstjórn að fyrirhuguð umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt þeim nágrönnum sem taldir geta átt hagsmuna að gæta.
Það er:
Eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299. Eiganda lóðarinnar Hjalla land, L221439. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaða land, L180161. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaðir 2, L225439.
Eigendum jarðarinnar Hjaltastaðir, L146301. Eiganda lóðarinnar Hornskarpur, L240079.

Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi víkur af fundi við afgreiðslu erindisins."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að fyrirhuguð umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt þeim nágrönnum sem taldir geta átt hagsmuna að gæta.
Það er:
Eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299. Eiganda lóðarinnar Hjalla land, L221439. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaða land, L180161. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaðir 2, L225439.
Eigendum jarðarinnar Hjaltastaðir, L146301. Eiganda lóðarinnar Hornskarpur, L240079.

32.Útsvarshlutfall 2027

Málsnúmer 2608210Vakta málsnúmer

Vísað frá 210. fundi byggðarráðs frá 22. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Á árinu 2026 er útsvarshlutfall 14,97% eftir samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga frá 15.12.2023 um tekjustofna vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Umræða tekin um útsvarshlutfall ársins 2027.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2027 og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2027.

33.Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2027

Málsnúmer 2608209Vakta málsnúmer

Vísað frá 210. fundi byggðarráðs frá 22. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lagðar fram reglur um afslátt af fasteignaskatti 2027.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að hækka viðmiðunarfjárhæðir varðandi tekjumörk um 5,2% frá reglum ársins 2026 og að hámarksafsláttur haldist óbreyttur í 100.000 kr. Málinu vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlagðar reglur voru bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.

34.Gjaldskrá fasteignaskatts og lóðarleigu 2027

Málsnúmer 2608181Vakta málsnúmer

Vísað frá 210. fundi byggðarráðs frá 22. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram gjaldskrá fasteignaskatts, lóðar- og landleigu fyrir árið 2027. Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði tíu, frá 1. febrúar 2027 til 1. nóvember 2027. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 28.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2027. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga í maí og eigi síðar en 10. maí 2027, séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutföll fasteignaskatts fyrir árið 2027 verði eftirfarandi:

A-flokkur: 0,430% af fasteignamati en var 0,435% árið 2026.
B-flokkur: 1,32% af fasteignamati, óbreytt frá fyrra ári.
C-flokkur: 1,65% af fasteignamati, óbreytt frá fyrra ári.

Með framangreindri breytingu er lagt til að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki frá fyrra ári.

Lóðarleiga verði jafnframt óbreytt frá árinu 2026. Landleiga beitarlands haldist jafnframt óbreytt milli ára.

Byggðarráð telur mikilvægt að rekja áfram stefnu sveitarfélagsins um hóflega gjaldtöku gagnvart íbúum eftir því sem fjárhagsleg staða sveitarfélagsins leyfir. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til er fasteignaskattur í A-flokki lækkaður þriðja árið í röð.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Hrund Pétursdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram tillögu svohljóðandi:
"Það má öllum vera ljóst að fasteignagjöld hafa hækkað mikið síðustu fjögur árin og er ástæða þess hækkað fasteignarmat í öllum flokkum þó mest muni fólk um hækkanir á íbúðarhúsnæði og svo húsnæði fyrir atvinnustarfsemi (gjaldaflokkur C), eins og iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði ásamt mannvirkum sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Í síðasta meirihluta byrjuðum við að lækka álagningarprósentuna á íbúðarhúsnæði til að koma á móts við þessar miklu hækkanir, en með breytingum á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga varð mögulegt að lækka þessar álögur án þess að framlög sjóðsins til rekstrar yrðu skert. Frá árinu 2024 til 2026 var álagningar prósentan fyrir íbúðarhúsnæði lækkuð úr 0,475% í 0,435% fyrir árið 2026. Nú liggur fyrir tillaga um áframhaldandi lækkun í 0,430%, sem telst reyndar ekki mikil lækkun, en engu að síður skref í rétta átt. Eftir sitja hins vegar fyrirtækin, en meðaltals hækkun fasteignagjalda þeirra síðustu 4 árin er 8,8% á ári eða hækkun um rúm 38% í heild á fjórum árum.
Fyrir hönd Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar leggjum við því til að byrjað verði lækkunarferli á álagningarprósentu í gjaldaflokki C, og að fyrir árið 2027 verði álagningarprósenta þeirra lækkuð úr 1,65% í 1,60%. Þessi aðgerð kostar sveitarfélagið tæpar 11 milljónir í tekjur árið 2027, en það er einungis 1/3 af hækkuninni sem annars verður á tekjum sveitarfélagsins vegna fasteignagjalda á fyrirtæki milli áranna 2026 og 2027. En að óbreyttu verður hún um 31 m.kr. vegna 7,8% hækkunar á fasteignamati þeirra milli áranna 2026 og 2027.
Við erum sannfærð um að lækkun sem þessi myndi hafa jákvæð áhrif á núverandi atvinnulíf í Skagafirði og jafnframt auka samkeppnishæfni svæðisins sem spennandi kosti til staðsetningar fyrir ný fyrirtæki.
Fulltrúar Framsóknarflokks í sveitarstjórn.
Einar E .Einarsson
Hrund Pétursdóttir"

Hlé gert á fundinum kl. 17.13

Fundur hófst á ný kl. 17.30

Eyþór Fannar Sveinsson, Högni Elfar Gylfason og Einar E. Einarsson, Magnús Barðdal Reynisson, Einar E. Einarsson, Jóhanna Ey Harðardóttir kvöddu sér hljóðs.

Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og felld með sex atkvæðum Byggðalista og Sjálfstæðisflokks. Fulltrúar Framsóknarflokks og Miðflokks greiddu atkvæði með tillögunni.

Magnús Barðdal Reynisson kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Meirihluti sveitarstjórnar telur mikilvægt að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum til að halda aftur af verðhækkunum og draga úr áhrifum verðbólgu á heimili og atvinnulíf. Í fjárhagsáætlun er því gert ráð fyrir að almenn hækkun gjaldskráa sveitarfélagsins verði 2,5%, á sama tíma og ársverðbólga mælist 5,9%.
Í því felst veruleg raunlækkun gjaldskráa sem sveitarfélagið tekur á sig með það að markmiði að leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu og milda áhrif hennar á íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu.
Meirihlutinn telur rétt að horfa heildstætt á álögur og gjaldskrár sveitarfélagsins með ábyrga fjármálastjórn að leiðarljósi og telur því ekki tímabært á þessum tímapunkti að stíga það skref að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts í C-flokki."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með sex atkvæðum. Fulltrúar Framsóknarflokks greiddu atkvæði gegn gjaldskránni, fulltrúi Miðflokks sat hjá við afgreiðslu málsins.

35.Gjaldskrá Brunavarna og slökkvitækjaþjónusta 2027

Málsnúmer 2608178Vakta málsnúmer

Vísað frá 211. fundi byggðarráðs frá 1. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram drög að gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar 2027 og slökkvitækjaþjónustu fyrir 2027.

Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

36.Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga 2027

Málsnúmer 2608190Vakta málsnúmer

Vísað frá 211. fundi byggðarráðs frá 1. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

37.Gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga 2027

Málsnúmer 2608191Vakta málsnúmer

Vísað frá 211. fundi byggðarráðs frá 1. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskránna fyrir Héraðsskjalasafn Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

38.Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga 2027

Málsnúmer 2608192Vakta málsnúmer

Vísað frá 211. fundi byggðarráðs frá 1. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

39.Heilsueflingarstyrkur 2027

Málsnúmer 2608206Vakta málsnúmer

Vísað frá 211. fundi byggðarráðs frá 1. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lagðar fyrir reglur um heilsueflingarstyrki fyrir árið 2027 sem ætlaðir eru starfsmönnum sveitarfélagsins. Styrkurinn var hækkaður um 10% milli áranna 2025 til 2026 og er því lagt til að fjárhæð heilsueflingarstyrks haldist óbreytt 2027.

Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirlagðar reglur um heilsueflingarstyrki og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

40.Gjaldskrá hitaveitu 2027

Málsnúmer 2608203Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

41.Gjaldskrá gámageymslusvæða 2027

Málsnúmer 2608212Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá gámageymslusvæða fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

42.Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár 2027

Málsnúmer 2608199Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

43.Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa 2027

Málsnúmer 2608182Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá fráveitu í Skagafirði fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur breytingum í kjölfar útboðs á tæmingu rotþróa fyrr á þessu ári. Eru gjaldaflokkar að breytast og tæmingar að lækka í verði.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

44.Gjaldskrá tónlistarskóla 2027

Málsnúmer 2608176Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá í tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

45.Gjaldskrá frístundar 2027

Málsnúmer 2608211Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá frístundar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

46.Gjaldskrá grunnskóla 2027

Málsnúmer 2608184Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá í grunnskólum Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

47.Gjaldskrá leikskóla 2027

Málsnúmer 2608195Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

48.Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2027

Málsnúmer 2608215Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur samkvæmt 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4 % af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð greiðsluviðmið og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

49.Gjaldskrá Húss frítímans 2027

Málsnúmer 2608186Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá Húss frítímas fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

50.Greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna 2027

Málsnúmer 2608205Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Fjárhæðir greiðslna vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):

- Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.

Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu að fjárhæðum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð tillaga að fjárhæðum var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

51.Gjaldskrá Iðju hæfingar 2027

Málsnúmer 2608194Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá Iðju hæfingar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

52.Gjaldskrá Dagdvöl 2027

Málsnúmer 2608180Vakta málsnúmer

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá dagdvalar aldraðra fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

53.Fjárhagsáætlun 2027-2030

Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer

Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri tók til máls og kynnti fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2027.

Fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2027 er hér lögð fram til fyrri umræðu ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030. Fjárhagsáætlunin er sett fram í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B-hluta. Í A-hluta er aðalsjóður auk eignasjóðs. Í B-hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, Tímatákn ehf., Flokka ehf. og Eyvindarstaðarheiði ehf, auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð sveitarfélagsins, þ.e. Norðurá bs. og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Áætlunin sýnir rekstraráætlun, áætlaðan efnahagsreikning og sjóðsstreymi fyrir sveitarfélagið, stofnanir og hlutdeildarfélög þess.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 gera ráð fyrir að rekstrartekjur Skagafjarðar nemi 11.074 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B-hluta, þar af eru rekstrartekjur A-hluta áætlaðar 9.922 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru áætluð 10.274 m.kr., þar af A-hluti 9.368 m.kr.

Rekstrarhagnaður A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 1.241 m.kr. Afskriftir nema 441 m.kr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 395 m.kr. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga er 74 m.kr. Rekstrarafgangur samstæðunnar í heild A- og B-hluta er áætlaður samtals 480 m.kr. Rekstrarhagnaður A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 778 m.kr. Afskriftir nema 245 m.kr. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 242 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er því áætluð jákvæð um 214 m.kr.

Eignir Skagafjarðar eru áætlaðar í árslok 2027, 21.989 m.kr., þar af eru eignir A-hluta 16.952 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 12.991 m.kr. Þar af hjá A-hluta 12.748 m.kr. Eigið fé er áætlað 8.968 m.kr hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall 40,78%. Eigið fé A-hluta er áætlað 4.204 m.kr. og eiginfjárhlutfall 24,8%. Áætlunin gerir ráð fyrir að veltufé frá rekstri A-hluta verði 731 m.kr. Veltufé frá rekstri samstæðunnar A- og B-hluta verði samtals 1.234 m.kr.

Helstu niðurstöður áætlunar fyrir árin 2028-2030 hvað samstæðuna varðar eru að áætlaðar tekjur 2028 eru 11.445 m.kr., fyrir árið 2029 11.815 m.kr. og fyrir árið 2030 12.102 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er áætluð jákvæð fyrir árið 2028 um 569 m.kr., fyrir árið 2029 um 555 m.kr. og fyrir árið 2030 um 470 m.kr. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri fyrir árið 2028 verði 1.237 m.kr., fyrir árið 2029 verði það 1.232 m.kr. og fyrir árið 2030 verði það 1.224 m.kr.

Einar E. Einarsson, Magnús Barðdal Reynisson og Einar E. Einarsson kvöddu sér hljóðs.

Forseti gerir tillögu um að vísa fjárhagsáætlun 2027-2030 til nefnda og síðari umræðu í sveitarstjórn. Samþykkt með níu atkvæðum.

54.Fundargerðir SÍS 2026

Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga númer 1002 frá 11. september 2026 og 1003 frá 23. september 2026 voru lagðar fram til kynningar á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026.

55.Fundargerðir SSNV 2026

Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer

Fundargerð 144. fundar stjórnar SSNV frá 22. september 2026 lögð fram til kynningar á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026.

56.Fundargerðir Norðurár bs. 2026

Málsnúmer 2601014Vakta málsnúmer

Fundargerð 123. fundar stjórnar Norðurár bs. frá 21. september 2026 lögð fram til kynningar á 54. fundi sveitarstjórnar þann 14. október 2026.

Fundi slitið - kl. 18:03.