Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 211

Málsnúmer 2609026F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026

Fundargerð 211. fundar byggðarráðs frá 1. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Þann 7. maí 2026 undirrituðu Sigfús Ingi Sigfússon þáverandi sveitarstjóri Skagafjarðar og Iða Marsibil Jónsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar ehf. undir samning um samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Með samningnum renna íbúðareignir frá Skagafirði til Bríetar ehf.

    Staða málsins rædd og farið yfir samskipti Skagafjarðar og Bríetar ehf. frá undirritun.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá kaupsamningi í samræmi við undirritaðan samning.

    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Sveitarstjórn Skagafjarðar setti sér fjárhagsleg markmið í rekstri Skagafjarðar í lok árs 2024. Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs kynnti fjárhagslegu markmiðin fyrir byggðarráði.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt var fram bréf sem ritað var í kjölfar fundar íbúa í fyrrum Skefilsstaðahreppi þar sem ítrekuð er afstaða bréfritara að óska eftir að félagsheimilið Skagasel verði áfram rekið í óbreyttri mynd.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að bjóða fulltrúum íbúa á fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt fram kauptilboð í félagsheimilið Skagasel í Skagafirði F213-9590, ásamt tilheyrandi 1,2 hektara (12.000 m²) eignarlóð og öllum lausamunum sem til staðar eru í eigninni.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að óska eftir lengdum fresti á tilboðinu og óska eftir upplýsingum um framtíðaráform bjóðanda með húsið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri, sat fundinn undir þessum lið.

    Svavar lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 sem nær til Bruna- og almannavarna.

    Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við heildarsamsetningu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 sem nær yfir sameiginlegan kostnað sveitarfélagsins.

    Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við heildarsamsetningu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessum lið.

    Hjörvar lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 eignasjóð.

    Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við heildarsamsetningu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lögð fram drög að gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar 2027 og slökkvitækjaþjónustu fyrir 2027.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Brunavarna og slökkvitækjaþjónusta 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskránna fyrir Héraðsskjalasafn Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Máli vísað frá 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. september 2026. Nefndin samþykkti gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.

    Í gjaldskránni er miðað við 2,5% hækkun í samræmi við samþykktan ramma sveitarstjórnar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagðar fyrir reglur um heilsueflingarstyrki fyrir árið 2027 sem ætlaðir eru starfsmönnum sveitarfélagsins. Styrkurinn var hækkaður um 10% milli áranna 2025 til 2026 og er því lagt til að fjárhæð heilsueflingarstyrks haldist óbreytt 2027.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirlagðar reglur um heilsueflingarstyrki og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Heilsueflingarstyrkur 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • .13 2605271 Flugklasinn Air66N
    Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt fram bréf frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 22. september 2026.

    Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 22. september 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við Flugklasann Air 66N að fjárhæð 500 kr. á hvern íbúa á ári á tímabilinu 2027-2029.

    Byggðarráð tekur undir mikilvægi beins millilandaflugs um Akureyrarflugvöll fyrir ferðaþjónustu og byggðaþróun á Norðurlandi og fagnar þeim árangri sem náðst hefur með starfi Flugklasans Air 66N. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að tryggð verði varanleg og fyrirsjáanleg fjármögnun verkefnisins af hálfu Isavia enda er verkefnið ein af stoðum áframhaldandi þróunar ferðaþjónustu á Norðurlandi.

    Byggðarráð bendir á að verkefnið hefur að verulegu leyti það hlutverk að sinna uppbyggingu innviða og markaðsstarfi sem fellur undir ábyrgð Isavia. Ekki verður því talið eðlilegt að sveitarfélög beri áfram vaxandi kostnað af verkefninu til lengri tíma.

    Byggðarráð vísar til ákvörðunar sinnar á 73. fundi þann 29. nóvember 2023 um að veita verkefninu styrk á árinu 2024 og að ekki yrði um frekari fjárveitingar frá sveitarfélaginu að ræða til verkefnisins. Byggðarráð staðfestir þá afstöðu og telur sér því ekki fært að verða við erindi Markaðsstofu Norðurlands um frekari fjárhagslegan stuðning við Flugklasann Air 66N.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Lagt fram aðalfundarboð Samtaka sjálvarútvegssveitarfélaga. Aðalfundurinn fer fram á Hilton
    Reykjavík miðvikudaginn 7. október kl. 13:00-14:30.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Skagafjarðar og fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

    Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga og þeim breytingum sem stuðla að skýrari stjórnsýslu, auknu gagnsæi og ábyrgri fjármálastjórn sveitarfélaga. Jákvætt er að komið hafi verið til móts við hluta fyrri ábendinga Skagafjarðar, meðal annars með rýmri heimild til að undanskilja tilteknar skuldir og skuldbindingar við útreikning skuldareglu og jafnvægisreglu.

    Byggðasamlög og félög með ótakmarkaða ábyrgð sveitarfélaga, þar á meðal eignarhlutir í landshlutasamtökum, verði færð úr B-hluta í C-hluta reikningsskila. Í frumvarpinu er C-hluti skilgreindur sem félög með takmarkaða ábyrgð sem starfa á markaði, en sú skilgreining útilokar félög sem bera ótakmarkaða ábyrgð aðildarsveitarfélaga. Byggðarráð telur mikilvægt að þessi félög falli utan A- og B-hluta, þar sem núverandi flokkun í B-hluta skekkir ársreikning sveitarfélagsins. Þetta hefur áhrif á lykiltölur eins og handbært fé og veltufjármuni, og gefur ranga mynd af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins til skuldasöfnunar og framkvæmda. Þrátt fyrir að þessi félög séu að mestu sjálfbær og rekin sjálfstætt, eru skuldbindingar þeirra teknar með í reikninginn, sem getur takmarkað fjárhagslegt svigrúm Skagafjarðar.

    Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að tryggt verði að sveiflukenndir liðir, svo sem breytingar á lífeyrisskuldbindingum og fjármagnsliðum, skerði ekki með óeðlilegum hætti fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga. Þá telur byggðarráð nauðsynlegt að endurskoða 10% greiningarviðmiðið með hliðsjón af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga.

    Skagafjörður er landfræðilega víðfeðmt sveitarfélag með dreifða búsetu og fleiri en einn byggðarkjarna. Sveitarfélagið þarf því að halda úti þjónustu, mannvirkjum og öðrum innviðum á stóru svæði óháð íbúafjölda eða fjölda þjónustutilvika á hverjum stað. Kostnaður við lögbundna þjónustu og nauðsynlega innviðauppbyggingu ræðst því ekki eingöngu af stærð íbúahóps heldur einnig af vegalengdum, fjölda starfsstöðva og nauðsynlegum viðbúnaði. Fast hlutfallslegt greiningarviðmið getur því haft óhófleg áhrif á sveitarfélög við þessar aðstæður og leitt til ítrekaðrar og ónauðsynlegrar stjórnsýslubyrði. Byggðarráð leggur því til að viðmiðið verði endurskoðað, til dæmis með hærra hlutfalli, lágmarksfjárhæð eða sérstökum undanþágum vegna lögbundinnar þjónustu og nauðsynlegra innviða í landfræðilega víðfeðmum sveitarfélögum með dreifða búsetu.

    Byggðarráð gagnrýnir heimild ráðherra til að leggja stjórnvaldssektir á sveitarfélög eins og lagt er til í 131. gr. frumvarpsins. Slík heimild er verulega íþyngjandi, einkum þar sem önnur þvingunarúrræði eru þegar fyrir hendi, og getur raskað jafnvægi milli stjórnsýslustiga. Byggðarráð leggur til að heimildin verði felld brott eða afmörkuð mun skýrar með ríkum kröfum um meðalhóf, andmælarétt og málskot.

    Loks leggur byggðarráð áherslu á að nýjar reglur um byggðasamlög, fjármálastefnu, kostnaðargreiningar, hagsmunaskráningu og upplýsingagjöf taki ekki gildi fyrr en nauðsynlegar reglugerðir og leiðbeiningar liggja fyrir og sveitarfélögum verði veittur raunhæfur aðlögunartími til að uppfæra allar afleiddar samþykktir og stefnur.

    Byggðarráð beinir því til Alþingis að við endanlega afgreiðslu frumvarpsins verði tekið sérstakt tillit til landfræðilega víðfeðmra sveitarfélaga með dreifða búsetu og umfangsmikið svæðisbundið samstarf. Tryggja þarf ábyrga fjármálastjórn og vandaða stjórnsýslu án þess að takmarka óhóflega sjálfsstjórn, fjárfestingargetu eða möguleika sveitarfélaga til að haga lögbundinni þjónustu með hagkvæmum og staðbundnum hætti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 211 Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 178/2026, "Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna".

    Umsagnarfrestur er til og með 02.10.2026.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar þeirri áherslu sem lögð er á að bæta lífskjör barna og tryggja jöfn tækifæri óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu fjölskyldna. Mikilvægt er að stjórnvöld móti heildstæða stefnu á þessu sviði og efli samstarf ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila til að draga úr fátækt barna og stuðla að virkri samfélagsþátttöku þeirra.

    Byggðarráð bendir þó á að fjölmargar aðgerðir sem lagðar eru til í stefnunni fela í sér verkefni sem eru á ábyrgð sveitarfélaga eða snerta þjónustu sem sveitarfélög veita, svo sem félagsþjónustu, leikskóla, frístundaheimili, skólaþjónustu, frístundastarf og stuðning við barnafjölskyldur. Þá er einnig gert ráð fyrir auknum stuðningi við þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi, frekari ráðgjöf og þjónustu við fjölskyldur og aðgerðum sem geta haft bein fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög.

    Byggðarráð leggur því ríka áherslu á að allar nýjar skyldur eða aukin verkefni sem kunna að falla á sveitarfélög verði að fullu fjármögnuð af ríkissjóði. Nauðsynlegt er að kostnaðarmat fylgi aðgerðunum áður en þær koma til framkvæmda og að áhrif þeirra á rekstur sveitarfélaga séu metin sérstaklega.

    Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að horft sé sérstaklega til aðstæðna sveitarfélaga á landsbyggðinni. Kostnaður vegna ferða, aðgengis að þjónustu, þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og annarra þátta sem tengjast búsetu utan stærri þéttbýlissvæða er oft meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Nauðsynlegt er að slíkur munur sé tekinn með í reikninginn við útfærslu aðgerðanna og fjármögnun þeirra.

    Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að sveitarfélög og þeirra hagsmunasamtök komi með virkum hætti að frekari mótun, framkvæmd og eftirfylgni stefnunnar þannig að tryggt sé að aðgerðir nýtist markhópunum sem best og að ábyrgðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga sé skýr.
    Bókun fundar Afgreiðsla 211. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.