Fara í efni

Gjaldskrá grunnskóla 2027

Málsnúmer 2608184

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 51. fundur - 30.09.2026

Lögð fram tillaga að gjaldskrá grunnskóla sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjalda í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Samkvæmt tillögunni hækkar morgunverður úr 386 kr. í 396 kr. og hádegisverður úr 801 kr. í 821 kr. Skólamáltíðir nemenda eru áfram að fullu niðurgreiddar af sveitarfélaginu og ríkinu.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvats sat fundinn undir þessum dagskrárlið.