Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

212. fundur 05. október 2026 kl. 15:30 - 19:18 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027-2031

Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri og Margeir Friðriksson verkefnastjóri.

Margeir lagði fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027 ásamt þriggja ára áætlun 2028-2031.

Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun 2027-2031 til fyrri umræðu og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2607102Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn felur í sér hækkun rekstrargjalda um 160,8 m.kr. og hækkun eigna um 17 m.kr.

Hækkun rekstrargjalda felast í kaupum á rafmagnsspennuskápum vegna tjaldsvæðis á Sauðárkróki (4 m.kr.), breytinga stöðugilda á Fjölskyldusviði (3,5 m.kr.), Breytingar á fjármagnsliðum vegna uppfærslu lánasafns m.t.t. verðlagsbreytinga (259,1 m.kr.),

Rekstrarliðum er mætt að hluta með hækkun útsvarstekna og breytingar á framlögum jöfnunarsjóðs (98 m.kr.), lækkun áætlunar um niðurgreiðslu leikskólagjalda (10 m.kr.), auknum fjárframlögum vegna dagdvalar aldraðra, sjúkraflutninga og frá Úrvinnslusjóði (8,5 m.kr.), auknum tekjum frá Gretti sterka (6 m.kr.) og hækkun áætlunar vegna fráveitugjalda (15 m.kr.).

Breytingar á efnahagsreikningi tengjast breytingar á eignum og skuldum vegna uppfærslu á niðurstöðu ársreiknings 2025 í fjárhagsáætlun ársins 2026 auk fjárfestingar í uppfærslu á tölvubúnaði veitumannvirkja (17 m.kr.) og hækkun fjárheimildar vegna vinnu við fjölgun bílastæða við Sundlaug Sauðárkróks (4,1 m.kr.).

Eftirstandandi breytingum er mætt með lækkun handbærs fjár að upphæð 181,9 m.kr.

Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta 552,2 m.kr. og samstæðu A- og B-hluta 2,199 m.kr.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka með áorðinni hækkun að upphæð 4,1 m.kr. vegna stækkunar bílastæða við sundlaugar Sauðárkróks. Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Stækkun bílastæði sundlaug SKR

Málsnúmer 2609008Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn samþykkti í viðauka 5 við fjárhagsáætlun 2026 að veita 16,1 m.kr. í stækkun bílasplans við sundlaug Sauðárkróks. Í kjölfarið var farið í fullnaðarhönnun verksins og ráðist í verðfyrirspurn.

Fyrir fundinum lá fundargerð tilboðsopnunar sem haldin var á skrifstofu Stoðar verkfræðistofu þriðjudaginn 1. september 2026 kl. 13 ásamt innkomnu tilboði.

Eitt tilboð barst í verkið frá Þ.Hansen sem hljóðar upp á 107,4% af kostnaðaráætlun verksins.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við Þ. Hanssen um verkið. Í viðauka 7 er gert ráð fyrir 4,1 m.kr. til viðbótar til verksins.

4.Hlutverk núverandi brúar yfir Flókadalsá

Málsnúmer 2610016Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Vegagerðinni, dags. 1. október 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til þess hvort sveitarfélagið hafi áhuga á að taka við eignarhaldi á núverandi brú yfir Flókadalsá. Erindið tengist undirbúningi framkvæmda vegna fyrirhugaðra Fljótaganga, þar sem ráðgert er að leggja nýjan Siglufjarðarveg frá Stafá að Ketilási og byggja nýja brú yfir Flókadalsá. Fram kemur að núverandi brú sé mikilvæg tenging milli svæða og að áhugi hafi komið fram meðal landeigenda og annarra hagsmunaaðila á að nýta hana áfram sem hluta af reiðleiðakerfi svæðisins þegar umferð þjóðvegar færist af brúnni.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

5.Formlegt erindi frá stjórn Íbúasamtaka Varmahlíðar

Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer

Stjórn Íbúasamtaka Varmahlíðar sendi formlegt erindi til byggðarráðs Skagafjarðar, dagsett 30. september 2026. Í bréfinu er óskað eftir að ráðist verði í nauðsynlegan frágang Birkimels í Varmahlíð. Er þá sérstaklega horft til þess að ljúka malbikun 120 metra kafla götunnar, leggja samfellda gangstétt, koma upp fullnægjandi götulýsingu og ráðast í nauðsynlegt viðhald og jöfnun götunnar. Jafnframt er óskað eftir mati á umferðaröryggi og hvort þörf sé á hraðalækkandi aðgerðum. Íbúasamtökin óska eftir að frágangur Birkimels verði settur inn í fjárhagsáætlun næsta árs og að íbúar verði upplýstir um fyrirhugaða tímasetningu framkvæmda.

Byggðarráð þakkar fyrir innkomið erindi. Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.

6.Framkvæmdir við húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar og Brunavarna Skagafjarðar í Varmahlíð.

Málsnúmer 2610019Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, dags. 30. september 2026, undirritað af Einari Ólasyni formanni fyrir hönd stjórnar sveitarinnar. Í erindinu er gerð grein fyrir umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaframkvæmdum á húsnæði sveitarinnar í Varmahlíð. Húsnæðið skiptist annars vegar í félagsaðstöðu í eigu björgunarsveitarinnar og hins vegar tækjasal sem er í 60% eigu Flugbjörgunarsveitarinnar og 40% eigu Skagafjarðar (Brunavarna Skagafjarðar).

Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið taki þátt í um 8 milljóna króna framkvæmda- og viðhaldskostnaði við tækjasal sem er í sameign aðila, en ráðist var í framkvæmdirnar án undangengins samráðs við sveitarfélagið.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að kalla eftir ítarlegri gögnum og boða fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar á fund byggðarráðs.

7.Samtök landbúnaðarsveitarfélaga - stofnun

Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október kl. 15:00 - 16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.

Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gerast aðili að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga og felur sveitarstjóra að sitja stofnfundinn fyrir hönd Skagafjarðar og fara með fullt og ótakmarkað umboð sveitarfélagsins á fundinum. Byggðarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að gera ráð fyrir félagsgjöldum í fjárhagsáætlun 2027.

8.Samningur um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 2610021Vakta málsnúmer

Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Lagt fram erindi frá Regínu Valdimarsdóttur, framkvæmdastjóra brunavarna og leigumarkaðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), dags. 22. september 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til áframhaldandi samstarfs um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Með erindinu fylgja gildandi þjónustusamningur um sérstakan húsnæðisstuðning, viðaukar við samninginn og kynning HMS um samstarfsverkefnin.

Byggðarráð fagnar góðu samstarfi Skagafjarðar og HMS um sérstakan húsnæðisstuðning sem staðið hefur frá árinu 2019. Samstarfið hefur falið í sér sameiginlegt umsóknarferli fyrir almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning þar sem HMS annast umsýslu umsókna á grundvelli viðmiða sveitarfélagsins. Samkvæmt upplýsingum HMS hefur verkefnið einfaldað umsóknarferli og stuðlað að því að fleiri heimili njóti stuðnings.

Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að framlengja samstarfið og felur sveitarstjóra að vinna áfram með HMS að gerð ótímabundins þjónustusamnings um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Samningurinn skal lagður fyrir byggðarráð til afgreiðslu þegar fyrir liggja endanleg drög.

9.Gjaldskrá Dagdvöl 2027

Málsnúmer 2608180Vakta málsnúmer

Gjaldskrá dagdvalar aldraðra fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

10.Gjaldskrá Iðju hæfingar 2027

Málsnúmer 2608194Vakta málsnúmer

Gjaldskrá Iðju hæfingar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

11.Greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna 2027

Málsnúmer 2608205Vakta málsnúmer

Fjárhæðir greiðslna vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):

- Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.

Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu að fjárhæðum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

12.Gjaldskrá Húss frítímans 2027

Málsnúmer 2608186Vakta málsnúmer

Gjaldskrá Húss frítímas fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

13.Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2027

Málsnúmer 2608215Vakta málsnúmer

Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.

Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur samkvæmt 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4 % af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð greiðsluviðmið og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

14.Gjaldskrá leikskóla 2027

Málsnúmer 2608195Vakta málsnúmer

Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

15.Gjaldskrá grunnskóla 2027

Málsnúmer 2608184Vakta málsnúmer

Gjaldskrá í grunnskólum Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

16.Gjaldskrá frístundar 2027

Málsnúmer 2608211Vakta málsnúmer

Gjaldskrá frístundar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

17.Gjaldskrá tónlistarskóla 2027

Málsnúmer 2608176Vakta málsnúmer

Gjaldskrá í tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

18.Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa 2027

Málsnúmer 2608182Vakta málsnúmer

Gjaldskrá fráveitu í Skagafirði fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur breytingum í kjölfar útboðs á tæmingu rotþróa fyrr á þessu ári. Eru gjaldaflokkar að breytast og tæmingar að lækka í verði.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

19.Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár 2027

Málsnúmer 2608199Vakta málsnúmer

Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

20.Gjaldskrá gámageymslusvæða 2027

Málsnúmer 2608212Vakta málsnúmer

Gjaldskrá gámageymslusvæða fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

21.Gjaldskrá hitaveitu 2027

Málsnúmer 2608203Vakta málsnúmer

Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

22.Ábendingar 2026

Málsnúmer 2601002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fyrir byggðarráð ábendingar sem borist hafa sveitarfélaginu á tímabilinu maí til september 2026.

23.Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Málsnúmer 2609255Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Innviðaráðuneytisins, dagsett 15. september 2026, vegna Alþjóðlegs minningardags Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem haldinn verður 15. nóvember 2026. Í erindinu kemur fram að minningarathöfn verði venju samkvæmt haldin kl. 14 við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi og jafnframt fari fram táknrænar minningarathafnir víða um land á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

24.Jafnvægisvog FKA

Málsnúmer 2609258Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Berglindi Björnsdóttur, dags. 16. september 2026, þar sem kynnt er verkefnið Jafnvægisvogin á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Markmið verkefnisins er að stuðla að auknu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum með skýrri markmiðasetningu og reglulegri mælingu á árangri.

Fundi slitið - kl. 19:18.