Fara í efni

Gjaldskrá tónlistarskóla 2027

Málsnúmer 2608176

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 51. fundur - 30.09.2026

Lögð fram tillaga að gjaldskrá tónlistarskóla sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjalda í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Samkvæmt tillögunni er veittur 25% afsláttur ef fleiri en einn nemandi er saman í hljóðfæranámi, auk systkinaafsláttar sem nemur 25% fyrir annað barn, 50% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvats sat fundinn undir þessum dagskrárlið.