Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):
- Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.
Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats. Vísað til byggðarráðs.