Félagsmála- og tómstundanefnd
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 01_Þjónusta við fatlað fólk
Málsnúmer 2608073Vakta málsnúmer
2.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 02_Félagsþjónusta
Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 02 (Félagsþjónusta) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.

3.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 06_Æskulýðs- og íþróttamál
Málsnúmer 2608076Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 06 (Æskulýðs- og íþróttamál) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
4.Gjaldskrá Dagdvöl 2027
Málsnúmer 2608180Vakta málsnúmer
Daggjald er ákvarðað á grundvelli reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fæðiskostnaður dvalargesta árið 2027 hækki um 2,5% og verði 689 kr. á dag. Vísað til byggðarráðs.
5.Gjaldskrá heimaþjónustu 2027
Málsnúmer 2608189Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að gjaldskrá heimaþjónustu árið 2027 taki mið af launaflokki 128 í kjarasamningum Öldunnar/Kjalar frá 1. apríl 2026, með 8% persónuálagi og launatengdum gjöldum. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda taki mið af greiðslum Tryggingastofnunar. Vísað til byggðarráðs.
6.Gjaldskrá Iðju hæfingar 2027
Málsnúmer 2608194Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hlutur notenda Iðju í fæðiskostnaði fyrir hádegisverð hækki um 2,5% árið 2027, úr 747 kr. í 766 kr., sem nemur um helmingi af heildarkostnaði við máltíðina. Notendur greiða ekki fyrir morgun- og síðdegishressingu. Vísað til byggðarráðs.
7.Greiðsluviðmið jafnaðarstunda NPA samninga 2027
Málsnúmer 2608208Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%). Vísað til byggðarráðs.
8.Greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna 2027
Málsnúmer 2608205Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):
- Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.
Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats. Vísað til byggðarráðs.

9.Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2027
Málsnúmer 2608185Vakta málsnúmer
Lögð er fram tillaga að gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027. Breytingarnar fela almennt í sér um 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Gjaldskrárliðir íþróttasala, gervigrasvallar, búnaðarleigu og almennra sundmiða hækka um 2,5% að jafnaði.
- Gjald fyrir börn 0?6 ára helst óbreytt (0 kr.) og handhafar þjónustukorta Skagafjarðar hafa áfram endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum.
- Árskort í sund lækka um 6,4% (úr 42.600 kr. í 39.900 kr.) til að hvetja til reglulegrar hreyfingar, samveru og lýðheilsu.
- Stakt sundgjald hækkar um 7,1% og 10 miða kort fullorðinna hækka um 7,4% sem vegur á móti lækkun á árskortum.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fyrirliggjandi gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027 verði samþykkt með áorðnum breytingum. Málinu er vísað til byggðarráðs til afgreiðslu.

10.Gjaldskrá Húss frítímans 2027
Málsnúmer 2608186Vakta málsnúmer
Lögð er fram tillaga að endurskoðaðri gjaldskrá Húss frítímans fyrir árið 2027. Gjaldskráin tekur mið af 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma á almennum leiguliðum, en gjald vegna gistingar íþróttafélaga helst óbreytt.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að framlögð gjaldskrá verði samþykkt. Málinu er vísað til byggðarráðs.

11.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027
Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer
Fyrir liggur vísun frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar vegna verðs á sameiginlegum miðum í sundlaugar og á Byggðasafn Skagfirðinga fyrir árið 2027.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan gjaldskrárlið vegna sameiginlegra miða (sund og söfn), í samræmi við afgreiðslu á gjaldskrá íþróttamannvirkja í lið 9. Málinu er vísað til byggðarráðs.

12.Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2027
Málsnúmer 2608215Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 miðist áfram við 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4% af atvinnuleysisbótum í nóvember 2026. Vísað til byggðarráðs.
13.Jólahlaðborð Rotaryklúbbs Skagafjarðar 2026
Málsnúmer 2609083Vakta málsnúmer
Lagt er fram erindi Rótarýklúbbs Sauðárkróks um afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 28. nóvember 2026 vegna hins árlega jólahlaðborðs klúbbsins.
Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar framtaki Rótarýklúbbsins og samþykkir samhljóða endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsinu fyrir viðburðinn, enda er hann öllum opinn og án endurgjalds. Í ákvörðun sinni vísar nefndin til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum þar sem ljóst er að ekki er hægt að halda viðburðinn í öðru húsnæði í sveitarfélaginu.

14.Símanotkun í sundlaugum
Málsnúmer 2608019Vakta málsnúmer
Fyrir liggur erindi þar sem óskað er eftir að notkun farsíma og annarra snjalltækja verði alfarið bönnuð í búningsklefum og á laugarsvæðum í sundlaugum Skagafjarðar.
Félagsmála- og tómstundanefnd þakkar fyrir ábendinguna. Nefndin áréttar að hvers kyns símanotkun, myndatökur og upptökur eru stranglega bannaðar í búningsklefum og sturtum í þágu friðhelgi einkalífs, samanber núgildandi reglur um sundlaugar í Skagafirði. Á opnum laugarsvæðum telur nefndin hins vegar ekki rétt að leggja á allsherjarbann við símanotkun, enda nýta margir gestir snjalltæki í hljóði með heyrnartólum til hlustunar eða lestrar án þess að valda öðrum ónæði.
Nefndin leggur ríka áherslu á að snjalltækjanotkun megi aldrei draga úr virkri athygli og gæslu forráðamanna og minnir sérstaklega á skyldu þeirra til að hafa óskipta athygli á börnum sínum við laugar. Leiðtoga frístunda- og íþróttamála er falið að yfirfara og skerpa á merkingum við innganga og í klefum í samræmi við þetta.

15.Fundargerðir fagráðs - málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 2601063Vakta málsnúmer
Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir, nr. 51 frá 31. ágúst 2026 og nr. 52 frá 14. september 2026.
Fundi slitið - kl. 16:35.