Fara í efni

Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027

Málsnúmer 2608012

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48. fundur - 25.08.2026

Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.

Erindinu vísað til byggðarráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 208. fundur - 10.09.2026

Máli vísað frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd frá 25. ágúst sl., þannig bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.

Erindinu vísað til byggðarráðs."

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 53. fundur - 16.09.2026

Vísað frá 208. fundi byggðarráðs frá 10. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Máli vísað frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd frá 25. ágúst sl., þannig bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.

Erindinu vísað til byggðarráðs."

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. "

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 49. fundur - 24.09.2026

Framlögð gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027.

Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2027 var samþykkt á 48. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Skagafjarðar. Berglind Þorsteinsdóttir safnastjóri hefur óskað eftir að gerð verði breyting á gjaldskránni og að bætt verði við gjaldlið.

Um er að ræða verð á sameiginlegum miðum á byggðasafnið og sundlaugarnar fyrir árið 2027. Tekið skal fram að félagsmála- og tómstundanefnd þarf einnig að taka til afgreiðslu framlagt erindi gagnvart sundlaugunum.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti samhljóða fyrirlagða uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til byggðarráðs og til umræðu í félagsmála- og tómstundanefnd.

Félagsmála- og tómstundanefnd - 47. fundur - 01.10.2026

Fyrir liggur vísun frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar vegna verðs á sameiginlegum miðum í sundlaugar og á Byggðasafn Skagfirðinga fyrir árið 2027.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan gjaldskrárlið vegna sameiginlegra miða (sund og söfn), í samræmi við afgreiðslu á gjaldskrá íþróttamannvirkja í lið 9. Málinu er vísað til byggðarráðs.