Fara í efni

Sveitarstjórn Skagafjarðar

53. fundur 16. september 2026 kl. 16:15 - 17:07 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir 1. varaforseti
  • Einar Eðvald Einarsson 2. varaforseti
  • Eyþór Fannar Sveinsson aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Magnús Barðdal Reynisson aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Sigurlína Erla Magnúsdóttir varam.
    Aðalmaður: Hrund Pétursdóttir
  • Högni Elfar Gylfason aðalm.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar fór forseti þess á leit við fundarmenn að mál 2605128 - Tilnefning fulltrúa í samgöngu- og innviðanefnd SSNV 2026 verði tekið af dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.

1.Byggðarráð Skagafjarðar - 206

Málsnúmer 2608018FVakta málsnúmer

Fundargerð 206. fundar byggðarráðs frá 27. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Einar E. Einarsson og Magnús Barðdal Reynisson kvöddu sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 206 Lagt fram erindi frá Viggó Jónssyni fyrir hönd Drangeyjarferða ehf., kt. 480916-1070, þar sem óskað er eftir að Sveitarfélagið Skagafjörður veiti félaginu skriflega heimild til að nýta Drangey til ferðaþjónustu, líkt og félagið hefur gert fyrri ár.

    Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir byggðarráð að nýju þegar frekari gögn og tillögur liggja fyrir.
    Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

    Afgreiðsla 206. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 206 Stjórn Upprekstrarfélagsins Eyvindarstaðarheiðar þau Guðmundur Rúnar Halldórsson, Guðmundur Haukur Jakobsson, Björn Grétar Friðriksson og Þórunn Eyjólfsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Einnig sátu fundinn Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi Skagafjarðar auk Péturs Arasonar, sveitarstjóra Húnabyggðar sem sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

    Sjórn Eyvindarstaðaheiðar kynnti fyrirliggjandi beiðni um borun eftir vatni. Jafnframt fóru fram umræður um stöðu félagsins og starfsemi þess.

    Byggðarráð þakkar stjórn og gestum fyrir komuna og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum. Byggðarráð samþykkir samhljóða að settur verði á fót vinnuhópur til að skoða framtíðar fyrirkomulag rekstrar á skálum á Eyvindarstaðaheiði. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 206. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • 1.3 2608234 Framkvæmdaryfirlit
    Byggðarráð Skagafjarðar - 206 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu helstu framkvæmda á vegum sveitarfélagsins.

    Byggðarráð þakkar fyrir yfirferðina og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 206. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 206 Hjörvar Halldórsson sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda ásamt sveitarstjóra.
    Fram kom að jarðvegsframkvæmdir væru í góðum farvegi og unnið væri að því að keyra efni í grunn byggingarinnar. Jafnframt væri unnið að frágangi gagna vegna útboðs á heildarbyggingunni sem og lokahönnun verkefnisins. Ráðgert er að boðað verði til fundar í byggingarnefnd Menningarhússins um leið og tilefni þykir til.
    Byggðarráð tekur upplýsingunum vel og fagnar framgangi verkefnisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 206. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 206 Lagt var fram til kynningar samþykkt gagntilboð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna sölu fasteignarinnar Garðhúsa lands (Háholts) í Skagafirði ásamt 3 ha eignarlóð.

    Kaupendur eru Þorsteinn Frímann Guðmundsson og Rósa Mary Þorsteinsdóttir. Kaupverð samkvæmt samþykktu gagntilboði er 88.000.000 kr.
    Bókun fundar Afgreiðsla 206. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.

2.Byggðarráð Skagafjarðar - 207

Málsnúmer 2608022FVakta málsnúmer

Fundargerð 207. fundar byggðarráðs frá 3. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Skagafjarðar þar sem óskað er eftir að eftirstöðvar samþykkts styrks sveitarfélagsins til uppbyggingar nýs aðstöðuhúss á Nöfum, alls 24 m.kr., verði greiddar út fyrr í stað þess að greiðslurnar dreifist á næstu þrjú ár samkvæmt gildandi samkomulagi. Sveitarstjórn samþykkti á árinu 2025 að veita Golfklúbbi Skagafjarðar 40 m.kr. styrk til verkefnisins sem greiðast skyldi á fimm árum og hafa 16 m.kr. þegar verið greiddar. Fram kemur í erindinu að nýtt 230 fm aðstöðuhús hafi nú risið á Nöfum og að framkvæmdir hafi notið víðtæks stuðnings fyrirtækja, félagasamtaka og íbúa í Skagafirði.

    Byggðarráð þakkar Golfklúbbi Skagafjarðar fyrir erindið og óskar félaginu til hamingju með glæsilegt aðstöðuhús sem hefur risið á Nöfum. Ljóst er að uppbyggingin er mikið framfaraskref fyrir golfíþróttina í Skagafirði og mun jafnframt skapa aukin tækifæri til útivistar, afþreyingar og samfélagslegrar starfsemi á svæðinu.

    Byggðarráð lýsir ánægju með þann kraft, samstöðu og samfélagslega þátttöku sem einkennt hefur verkefnið og þakkar öllum þeim sem komið hafa að uppbyggingunni, jafnt fyrirtækjum sem einstaklingum.
    Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 en frestar ákvörðun í málinu að öðru leyti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram minnisblað um fasteignina Furulundur 5 í Varmahlíð frá Sunnu Björk Atladóttur, löggiltum fasteignasala. Um er að ræða timburhús, byggt árið 1992, alls 49,5 m² að stærð. Lagt er til að húsið verði selt til flutnings af núverandi lóð og að kostnaður við losun og flutning verði á ábyrgð kaupanda ásamt frágangi lóðar í samráði við sveitarfélagið.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Sunna Björk Atladóttir að setja eignina í söluferli.
    Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram erindi frá Helgu Jónínu Guðmundsdóttur, deildarstjóra mannauðs hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, þar sem óskað er eftir aðstöðu við sundlaugina vegna fjölskylduhlaups sem haldið verður 10. september nk. í tilefni af Gulum september. Jafnframt er óskað eftir því að þátttakendum verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu, líkt og gert var í fyrra.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita aðstöðu fyrir fjölskylduhlaupið og að þátttakendum verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu. Byggðarráð fagnar jafnframt framtakinu og hvetur íbúa til þátttöku.
    Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagt fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt. Í erindinu er áréttað að heimilt sé að lækka bætur eða synja bótakröfu að hluta eða öllu leyti þegar mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar byggist á vönduðu áhættumati, viðeigandi sérfræðiráðgjöf og skýrri upplýsingagjöf til lóðarhafa, byggingarleyfishafa og kaupenda eigna.

    Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að náttúruvá sé höfð til hliðsjónar við skipulagsgerð og leyfisveitingar og leggur áherslu á að sveitarfélagið fylgi gildandi lögum og reglum við meðferð slíkra mála.
    Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagður fram ársreikningur Flokku fyrir árið 2025.

    Lagður fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 207 Lagður fram ársreikningur Skógræktarsjóðs Skagafjarðar fyrir árið 2025.

    Lagður fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 207. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.

3.Byggðarráð Skagafjarðar - 208

Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer

Fundargerð 208. fundar byggðarráðs frá 10. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • 3.1 2609057 Kynning frá SSNV
    Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Til fundarins mætti Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), í gegnum fjarfundarbúnað. Kynnti hún drög og hugmyndir að áhersluverkefnum landshlutans.

    Áhersluverkefni SSNV eru unnin á grundvelli gildandi samnings um Sóknaráætlun Norðurlands vestra og hafa beina skírskotun til markmiða hennar, auk þess að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Er verkefnunum ætlað að styðja við markmið sóknaráætlunar með nánu samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu, meðal annars með því að fjölga störfum og laða að fjárfestingar í landshlutanum.

    Byggðarráð þakkar framkvæmdastjóra SSNV fyrir greinargóða kynningu og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við samtökin um framgang sóknaráætlunar og uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Lagt fram erindi frá stjórn Norðurár bs., dags. 24. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélaganna Skagafjarðar, Húnabyggðar og Skagastrandar til tilboðs ReSource um eftirlit með lokuðum urðunarstöðum á Skarðsmóum, í Draugagili og á Neðri-Harrastöðum.

    Í erindinu kemur fram að aðalfundur Norðurár bs. hafi í mars 2026 beint því til stjórnar að kanna hagkvæmni þess að semja við ReSource um eftirlit með lokuðum urðunarstöðum fyrir hönd sveitarfélaganna. Fyrir liggur tilboð frá ReSource og er jafnframt óskað eftir afstöðu sveitarfélaganna til þess hvort Norðurá bs. geti verið samningsaðili fyrir þeirra hönd og annist síðan endurheimtu kostnaðar samkvæmt sundurliðun tilboðsins.

    Byggðarráð tekur jákvætt í framlagt tilboð og samþykkir samhljóða að Norðurá bs. verði samningsaðili um eftirlit með lokuðum urðunarstöðum fyrir hönd aðildarsveitarfélaganna, enda verði kostnaði skipt samkvæmt fyrirliggjandi sundurliðun. Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma afstöðu sveitarfélagsins á framfæri við stjórn Norðurár bs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Máli vísað frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd frá 25. ágúst sl., þannig bókað:
    "Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.

    Erindinu vísað til byggðarráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Lagt er fram erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, dags. 4. september 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Austan Vatna ehf., kt. 440225-2170, um rekstrarleyfi í flokki II A (veitingahús) fyrir starfsstöðina Austan Vatna á Hólum (skólahús), fasteignanúmer F2142788, rýmisnúmer 090101. Sótt er um leyfi fyrir allt að 56 gesti og afgreiðslutíma áfengis virka daga frá kl. 11:30 - 23:30 og aðfaranætur frídaga frá kl. 11:00 - 00:00.

    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfisins og staðfestir, með vísan til 1. tölul. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, að fyrirhuguð starfsemi, staðsetning og afgreiðslutími séu í samræmi við gildandi skipulag og reglur sveitarfélagsins, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir og samþykki annarra umsagnaraðila.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 50. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 19. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 08_Hreinlætismál, fyrir rekstrárið 2027 lögð fram.
    Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 50. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 19. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 09_Samgöngumál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 50. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 19. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 11_Umhverfis- og landbúnaðarmál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar og Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 50. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 19. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 69 fráveita, fyrir rekstrárið 2027 lögð fram.
    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 51. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 24. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 67_SKV-hitaveita, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 51. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 24. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 65_SKV-sjóveita, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 51. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 24. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 63_SKV-vatnsveita, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 208 Vísað frá 51. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 24. ágúst sl., þannig bókað:
    "Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 61_Hafnarsjóður Skagafjarðar, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við vinnubækur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 208. fundar byggðarráðs var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.

4.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48

Málsnúmer 2608003FVakta málsnúmer

Fundargerð 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 25. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lögð voru fram drög að erindisbréfi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir erindisbréfið samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Erindisbréf atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.

    Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

    Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Á 47. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar fól nefndin starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.

    Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í júní. Auglýsingin var endurbirt í byrjun ágúst.

    Umsóknarfrestur var til og með 15. ágúst sl.

    Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið.

    Nefndin vill koma á framfæri þökkum til Kristínar Elfu Magnúsdóttur og Sigurpáls Aðalsteinssonar fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við fyrirtækið Grettistak veitingar ehf.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lagt fram erindi frá Helga Jóhanni Sigurðssyni, dags. 26. maí 2026 þar sem hann óskar eftir úrsögn úr hússtjórn Félagsheimilisins Melsgils.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða úrsögn Helga Jóhanns Sigurðssonar úr hússtjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.

    Erindinu vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2027 í málaflokki 5 - menningarmál.

    Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2027 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár.

    Nefndin samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við gerð vinnubóka. Jafnframt er starfsmanni nefndarinnar falið að boða forstöðumenn stofnana sem tilheyra þessum málaflokkum á fund nefndarinnar til frekari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2027 í málaflokki 13 - atvinnumál.

    Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2027 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár.

    Nefndin samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur deildarstjóra að hefja vinnu við gerð vinnubóka.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2027 í málaflokki 21 - kynningarmál.

    Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2027 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár.

    Nefndin samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur deildarstjóra að hefja vinnu við gerð vinnubóka.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir stöðuna á Atvinnulífssýningu Skagafjarðar 2026.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin þakkar fyrir góða yfirferð og hvetur fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, menningarfélög og aðra sem hafa áhuga á, að skrá sig á sýninguna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rekstur tjaldsvæða í Skagafirði, en núverandi samningur við rekstraraðila rennur út 31. desember 2026.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Á 46. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin var lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands 28. apríl 2026, þar sem óskað var eftir uppfærðum lista yfir forgangsverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlandi.

    Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 4. maí og var gefinn frestur til 29. júní til að skila þeim inn.

    Engar tillögur bárust og verður því sendur inn óbreyttur listi frá fyrra ári.

    Nefndin samþykkir samhljóða að forgangsverkefni Skagafjarðar séu eftirfarandi:

    Staðarbjargavík á Hofsósi
    Hólar í Hjaltadal
    Glaumbær
    Kakalaskáli
    Austurdalur í Skagafirði

    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lögð fram til kynningar ársskýrsla Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir árið 2025.

    Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lagt fram til kynningar minnisblað frá KPMG LAW til Hafnasambands Íslands, dagsett 14. júlí 2026, er varðar meðferð virðisaukaskatts við sölu á hafnarþjónustu til erlendra aðila. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.

5.Fræðslunefnd - 50

Málsnúmer 2608005FVakta málsnúmer

Fundargerð 50. fundar fræðslunefndar frá 27. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 50 Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 04, fræðslu- og uppeldismál, ásamt forsendum lagður fram. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 50 Sjálfsmatsskýrslur Árskóla og Varmahlíðarskóla skólaárið 2025-2026 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 50 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs og leiðtoga fræðslumála um innleiðingu upplýsingakerfisins Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar. Námfús er heildstætt skólaumsjónarkerfi sem sameinar meðal annars umsýslu, námsupplýsingar, samskipti, ástundun og skýrslugerð á einum stað.

    Innleiðingin hefst í leikskólanum Ársölum og munu aðrir leik- og grunnskólar sveitarfélagsins taka kerfið upp í áföngum. Gert er ráð fyrir að allir skólar sveitarfélagsins verði komnir inn í kerfið fyrir áramót. Með innleiðingunni munu foreldrar og forsjáraðilar leik- og grunnskólabarna geta nálgast upplýsingar um skólagöngu barna sinna á einum stað og fylgst með námi, samskiptum og öðrum mikilvægum upplýsingum í einu sameiginlegu appi. Nýtt kerfi felur ekki í sér kostnaðarauka.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða innleiðingu Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar samkvæmt framlagðri áætlun og felur starfsmönnum nefndarinnar að innleiða upplýsingakerfið í samstarfi við skólastjórnendur og þjónustuaðila kerfisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 50 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.

6.Skipulagsnefnd - 105

Málsnúmer 2609001FVakta málsnúmer

Fundargerð 105. fundar skipulagsnefndar frá 3. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 105 Farið yfir hugmyndafræði fyrir drög að deiliskipulagstillögu að deiliskipulagi Laufblaðsins á Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði.
    Hildur Hartmannsdóttir fór yfir hugmyndafræðina fyrir opna svæðið og Björn Magnús Árnason hjá Stoð ehf. verkfræðistofu fór yfir áframhaldandi útfærslu fyrir íbúðarbyggðina.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

    Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 105. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 105 Páll Jakob Líndal skipulagsráðgjafi sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir minnisblaðið "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - verkferill, vörður og samráð" sem leggur m.a. til drög að rammahugmynd fyrir skipulagssvæðið ásamt tímalínu fyrir framhald skipulagsvinnunnar.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 105. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 105 Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 41. fundi sínum þann 17.09.2025 að heimila Kaupfélagi Skagfirðinga að vinna deiliskipulag á eigin kostnað (málsnúmer 2409311) skv. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Aðalgötu 16b og Aðalgötu 20b á Sauðárkróki.

    Lögð fram tillaga að deiliskipulagi á vinnslustigi fyrir Aðalgötu 16b og 20b dags. 30.08.2026, verknúmer 56293200, uppdráttur nr. DS-01, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagsuppdráttur sýnir uppbyggingaráform innan skipulagssvæðisins. Á skipulagsuppdrætti er sýnd aðkoma inn á svæðið, lóðamörk, byggingarreitir, bílastæði og helstu skilmálar.
    Í greinargerð eru færð rök fyrir því að heimilt sé að falla frá auglýsingu skipulagslýsingar þar sem helstu forsendur liggi fyrir í aðalskipulagi, en samhliða þessu þyrfti að gera breytingu á deiliskipulagi gamla bæjarins þar sem svæðið yrði fellt út.
    Í vinnslutillögunni er gert ráð fyrir að hús byggt 1922 sem stendur á lóðinni nr. 10 við Freyjugötu sé víkjandi.

    Skipulagsnefnd fagnar áhuga á áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu en óskar jafnframt eftir því að fá frekari upplýsingar frá lóðarhöfum.
    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins og fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

    Bókun fundar Afgreiðsla 105. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 105 Málið var áður á dagskrá 104. fundar skipulagsnefndar þann 20.08.2026 þar sem farið var yfir umsagnir sem bárust við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki. Afgreiðslu málsins þá frestað.

    Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna.

    Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
    Tel ég framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki vera á Nöfunum, í ljósi útivistarperlunnar sem þar liggur. Einnig tel ég þessa fyrirhuguðu staðsetningu tæplega rekstrarhæfa og óheppilega í ljósi núverandi reksturs og háhraða umferðar í nálægð svæðisins. Óska ég eftir skýrri afstöðu meirihlutans hvað varðar deiliskipulagið og staðsetninguna.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 105 Lögð fram drög að svari til lóðarhafa Skagfirðingabrautar 47 vegna bréfs þeirra mótt. 22. maí 2026 varðandi grenndarkynningu á stækkun svala við Skagfirðingabraut 45.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að svari og felur skipulagsfulltrúa að svara ofangreindu erindi lóðarhafa Skagfirðingabrautar 47 í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 105. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 105 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 92 þann 21.08.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 105. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.

7.Kjör stjórnarmanns í Minn.sj. hjónanna Þórönnu Gunnlaugsdóttur og Halldórs Jónssonar

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Í Stjórn Minningarsjóðs Þórönnu Gunnlaugsdóttir og Halldórs Jónssonar skulu stitja samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins: Sveitarstjóri, forseti sveitarstjórnar og einn fulltrúi tilnefndur. Stjórn sjóðsins skipa: Magnús Barðdal Reynisson, Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir. Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

8.Mælifellsá L146221 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis

Málsnúmer 2606240Vakta málsnúmer

Vísað frá 203. fundi byggðarráðs frá 21. júlí sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Ingunn Sandra Arnþórsdóttir f.h. Lands og skógar í samstarfi við hlutaðeigandi landeigendur óska eftir framkvæmdarleyfi frá sveitastjórn Skagafjarðar fyrir fyrirhugaðri framkvæmd á endurheimt votlendis á jörðinni Mælifellsá landnr. 146221 í sveitarfélaginu Skagafirði sbr. framlagðan uppdrátt dags. 22.6.2026 sem gerður er af umsækjanda.
Lýsing framkvæmda:
Í umsókn kemur m.a. eftirfarandi fram.
„Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 40 ha að stærð og er eingöngu framkvæmt utan fuglavarpstíma, síðsumars eða að hausti. Verkið er unnið í samstarfi við landeigendur.
Áhrif framkvæmdar eru þau að vatnsstaða svæðisins hækkar sem veldur því að framræst mýrlendi endurheimtist og þar með frjósemi vistkerfisins, vatnsgæði og vatnsmiðlun ásamt búsvæði lífvera frá örverum til fugla. Áhrif á náttúru og
vatnsbúskap svæðisins eru því jákvæð. Auk þess stöðvast losun gróðurhúsalofttegunda sem hefur verið virk vegna framræslu svæðisins.
Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla 3600 metra af skurðum. Áhersla verður lögð á að vanda til verka, þjappa efninu vel ofan í skurðstæðið svo að fyllingar skolist ekki til og að öryggi manna og dýra sé gætt. Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra.
Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis.
Engar skráðar fornminjar eru á svæðinu samkvæmt minjaskrá.
Framkvæmdin er ekki talin hafa áhrif á byggingar í nágrenni svæðisins. Ekki verður ráðist í framkvæmdir við skurði sem liggja meðfram veginum sem liggur um svæðið og er því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á hann. Ekkert ræktað land er innan þess svæðis sem framkvæmdin nær til. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á verndarsvæði, né er svæðið inn á náttúruminjaskrá.“

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að framlögðu samþykki landeigenda.

Byggðarráðs samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu máls og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram."

Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna endurheimtar votlendis var upphaflega tekin fyrir hjá skipulagsnefnd Skagafjarðar. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar fór málið til afgreiðslu byggðarráðs, sem ákvað að fresta endanlegri afgreiðslu þess og fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga og vinna málið áfram.

Við áframhaldandi meðferð málsins leitaði sveitarfélagið eftir leiðbeiningum frá HMS um hvort framkvæmdin væri háð málsmeðferð samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í svari HMS kom fram að framkvæmdin félli ekki undir þau lög, en bent var á að kanna þyrfti hvort tilefni væri til mats á áhrifum framkvæmdarinnar á vatnshlot.

Að fengnum þeim upplýsingum var leitað til Umhverfis- og orkustofnunar. Þar kom fram að ef framkvæmdin gæti haft bein eða óbein áhrif á vatnshlot bæri að meta þau áhrif áður en leyfi yrði veitt. Að öðru leyti væri framkvæmdin ekki háð leyfisveitingu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af þessum svörum óskaði sveitarfélagið Skagafjörður eftir afstöðu Lands og skógar til þess hvort fyrirhuguð framkvæmd sé talin hafa áhrif á vatnshlot. Afstaða Lands og skógar er sú að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki talin hafa áhrif á vatnshlot Mælifellsár í þeim skilningi að hún breyti vatnasviði þess eða leiði vatn frá vatnshlotinu.

Fyrir liggur samningur um endurheimt votlendis við landeigendur.

Högni Elfar Gylfason kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Forseti, kæru sveitarstjórnarfulltrúar.
Hér er verið að afgreiða umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis á einkalandi að Mælifellsá hér í Skagafirði. Eignarrétt landeigenda og ákvarðanir þeirra um landnotkun ber alla jafna að virða.
Að því sögðu hef ég miklar efasemdir um að stofnanir ríkisins hvetji til slíkra framkvæmda sem hafa í besta falli óljósan ávinning og leggi að auki til þeirra stórar fjárhæðir úr vösum skattgreiðenda.
Ég mun því ekki greiða atkvæði um veitingu framkvæmdaleyfisins og sit hjá við atkvæðagreiðsluna."

Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum samþykkir sveitarstjórn með átta atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi. Högni Elfar Gylfason situr hjá við afgreiðslu málsins.

9.Erindisbréf atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar

Málsnúmer 2606145Vakta málsnúmer

Vísað frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd frá 25. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð voru fram drög að erindisbréfi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir erindisbréfið samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Erindisbréf atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

10.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027

Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer

Vísað frá 208. fundi byggðarráðs frá 10. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Máli vísað frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd frá 25. ágúst sl., þannig bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.

Erindinu vísað til byggðarráðs."

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. "

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

11.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag

Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer

Vísað frá 105. fundi skipulagsnefndar frá 3. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:

"Málið var áður á dagskrá 104. fundar skipulagsnefndar þann 20.08.2026 þar sem farið var yfir umsagnir sem bárust við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki. Afgreiðslu málsins þá frestað.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna."

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun og tillögu:
"Í gildandi Aðalskipulagi fyrir Skagafjörð fyrir árin 2025-2040, sem var samþykkt af sveitarstjórn Skagafjarðar 15. október 2025, var gert ráð fyrir nýju almennu tjaldsvæði við Borgargerði, austan Ársala. Jafnframt var ákveðið að tjaldsvæðið á Nöfum yrði áfram tjaldsvæði sem yrði nýtt þegar stórir íþróttaviðburðir væru haldnir. Í framhaldinu var farið af stað með samþykki sveitarstjórnar í deiliskipulagsgerð af svæðinu. En núna þegar sú vinna er á lokametrunum ákveður núverandi meirihluti að klára hana ekki þrátt fyrir að búið sé að ganga frá skipulagslýsingunni og auglýsa vinnslutillöguna. Einungis fjórar athugasemdir bárust við vinnslutillöguna og eru þær allar frá opinberum fyrirtækjum og telst engin þeirra stórvægileg. Engar athugasemdir bárust frá almenningi.

Þar sem búið er að leggja í bæði mikinn kostnað og vinnu við að gera þetta deiliskipulag teljum við að skynsamlegast væri að klára deiliskipulagið og eiga þannig fullgilt deiliskipulag af þessum reit. Þannig yrði reiturinn líka verðmætari í þeirri umræðu sem er um sölu á rekstri þeirra tjaldsvæða sem sveitarfélagið rekur í dag. Við leggjum því til við sveitarstjórn að hún samþykki að snúa við ákvörðun skipulagsnefndar frá 3. september sl. og samþykki að umrædd deiliskipulagsvinna verði kláruð.

Einar E. Einarsson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir, fulltrúar Framsóknar í sveitarstjórn."

Stutt hlé var gert á fundinum.

Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar. Hún er felld með sex atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Byggðalistans, Högni Elfar Gylfason situr hjá við afgreiðslu málsins.

Eyþór Fannar Sveinsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta:
"Meirihluti ítrekar að verið sé að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna."

Sveitarstjórn samþykkir, með sjö atkvæðum, að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Fulltrúar Framsóknarflokks greiða atkvæði gegn tillögunni.

12.Fundargerðir SSNV 2026

Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer

143. fundargerð stjórnar SSVN frá 31. ágúst 2026 var lögð fram til kynningar á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026.

13.Fundargerðir SÍS 2026

Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer

1001. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026 lögð fram til kynningar á 53. fundi sveitarstjórnar þann 16. september 2026.

Fundi slitið - kl. 17:07.