Fræðslunefnd - 50
Málsnúmer 2608005F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 53. fundur - 16.09.2026
Fundargerð 50. fundar fræðslunefndar frá 27. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 50 Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 04, fræðslu- og uppeldismál, ásamt forsendum lagður fram. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 50 Sjálfsmatsskýrslur Árskóla og Varmahlíðarskóla skólaárið 2025-2026 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 50 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs og leiðtoga fræðslumála um innleiðingu upplýsingakerfisins Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar. Námfús er heildstætt skólaumsjónarkerfi sem sameinar meðal annars umsýslu, námsupplýsingar, samskipti, ástundun og skýrslugerð á einum stað.
Innleiðingin hefst í leikskólanum Ársölum og munu aðrir leik- og grunnskólar sveitarfélagsins taka kerfið upp í áföngum. Gert er ráð fyrir að allir skólar sveitarfélagsins verði komnir inn í kerfið fyrir áramót. Með innleiðingunni munu foreldrar og forsjáraðilar leik- og grunnskólabarna geta nálgast upplýsingar um skólagöngu barna sinna á einum stað og fylgst með námi, samskiptum og öðrum mikilvægum upplýsingum í einu sameiginlegu appi. Nýtt kerfi felur ekki í sér kostnaðarauka.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða innleiðingu Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar samkvæmt framlagðri áætlun og felur starfsmönnum nefndarinnar að innleiða upplýsingakerfið í samstarfi við skólastjórnendur og þjónustuaðila kerfisins. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 50 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar fræðslunefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.