Fara í efni

Fræðslunefnd

50. fundur 27. ágúst 2026 kl. 16:15 - 16:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ey Harðardóttir formaður
  • Rósanna Valdimarsdóttir varam.
  • Elfa Björk Víðisdóttir aðalm.
  • Sigurlína Erla Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Álfhildur Leifsdóttir leiðtogi fræðslumála
  • Kristín Halla Bergsdóttir skólastjóri tónlistarskóla
  • Rakel Ýr Jakobsdóttir áheyrnarftr. leikskóla
  • Gunnhildur Gísladóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir leikskólastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 04_Fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2608072Vakta málsnúmer

Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 04, fræðslu- og uppeldismál, ásamt forsendum lagður fram.

2.Sjálfsmatsskýrslur grunnskólanna 2025-2026

Málsnúmer 2606226Vakta málsnúmer

Sjálfsmatsskýrslur Árskóla og Varmahlíðarskóla skólaárið 2025-2026 lagðar fram til kynningar.

3.Innleiðing Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar

Málsnúmer 2608229Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs og leiðtoga fræðslumála um innleiðingu upplýsingakerfisins Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar. Námfús er heildstætt skólaumsjónarkerfi sem sameinar meðal annars umsýslu, námsupplýsingar, samskipti, ástundun og skýrslugerð á einum stað.

Innleiðingin hefst í leikskólanum Ársölum og munu aðrir leik- og grunnskólar sveitarfélagsins taka kerfið upp í áföngum. Gert er ráð fyrir að allir skólar sveitarfélagsins verði komnir inn í kerfið fyrir áramót. Með innleiðingunni munu foreldrar og forsjáraðilar leik- og grunnskólabarna geta nálgast upplýsingar um skólagöngu barna sinna á einum stað og fylgst með námi, samskiptum og öðrum mikilvægum upplýsingum í einu sameiginlegu appi. Nýtt kerfi felur ekki í sér kostnaðarauka.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða innleiðingu Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar samkvæmt framlagðri áætlun og felur starfsmönnum nefndarinnar að innleiða upplýsingakerfið í samstarfi við skólastjórnendur og þjónustuaðila kerfisins.

4.Trúnaðarbók fræðslunefndar

Málsnúmer 2601069Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 16:45.