Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs og leiðtoga fræðslumála um innleiðingu upplýsingakerfisins Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar. Námfús er heildstætt skólaumsjónarkerfi sem sameinar meðal annars umsýslu, námsupplýsingar, samskipti, ástundun og skýrslugerð á einum stað.
Innleiðingin hefst í leikskólanum Ársölum og munu aðrir leik- og grunnskólar sveitarfélagsins taka kerfið upp í áföngum. Gert er ráð fyrir að allir skólar sveitarfélagsins verði komnir inn í kerfið fyrir áramót. Með innleiðingunni munu foreldrar og forsjáraðilar leik- og grunnskólabarna geta nálgast upplýsingar um skólagöngu barna sinna á einum stað og fylgst með námi, samskiptum og öðrum mikilvægum upplýsingum í einu sameiginlegu appi. Nýtt kerfi felur ekki í sér kostnaðarauka.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða innleiðingu Námfús í leik- og grunnskólum Skagafjarðar samkvæmt framlagðri áætlun og felur starfsmönnum nefndarinnar að innleiða upplýsingakerfið í samstarfi við skólastjórnendur og þjónustuaðila kerfisins.