Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48
Málsnúmer 2608003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 53. fundur - 16.09.2026
Fundargerð 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 25. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 53. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lögð voru fram drög að erindisbréfi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir erindisbréfið samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Erindisbréf atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Á 47. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar fól nefndin starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í júní. Auglýsingin var endurbirt í byrjun ágúst.
Umsóknarfrestur var til og með 15. ágúst sl.
Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið.
Nefndin vill koma á framfæri þökkum til Kristínar Elfu Magnúsdóttur og Sigurpáls Aðalsteinssonar fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við fyrirtækið Grettistak veitingar ehf. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lagt fram erindi frá Helga Jóhanni Sigurðssyni, dags. 26. maí 2026 þar sem hann óskar eftir úrsögn úr hússtjórn Félagsheimilisins Melsgils.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða úrsögn Helga Jóhanns Sigurðssonar úr hússtjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 20. júlí 2026 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2027.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2027.
Erindinu vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2027 í málaflokki 5 - menningarmál.
Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2027 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár.
Nefndin samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við gerð vinnubóka. Jafnframt er starfsmanni nefndarinnar falið að boða forstöðumenn stofnana sem tilheyra þessum málaflokkum á fund nefndarinnar til frekari umræðu.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2027 í málaflokki 13 - atvinnumál.
Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2027 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár.
Nefndin samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur deildarstjóra að hefja vinnu við gerð vinnubóka. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2027 í málaflokki 21 - kynningarmál.
Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2027 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir komandi ár.
Nefndin samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur deildarstjóra að hefja vinnu við gerð vinnubóka. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir stöðuna á Atvinnulífssýningu Skagafjarðar 2026.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin þakkar fyrir góða yfirferð og hvetur fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, menningarfélög og aðra sem hafa áhuga á, að skrá sig á sýninguna. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Umræður um rekstur tjaldsvæða í Skagafirði, en núverandi samningur við rekstraraðila rennur út 31. desember 2026.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að vinna málið áfram. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Á 46. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin var lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands 28. apríl 2026, þar sem óskað var eftir uppfærðum lista yfir forgangsverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlandi.
Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 4. maí og var gefinn frestur til 29. júní til að skila þeim inn.
Engar tillögur bárust og verður því sendur inn óbreyttur listi frá fyrra ári.
Nefndin samþykkir samhljóða að forgangsverkefni Skagafjarðar séu eftirfarandi:
Staðarbjargavík á Hofsósi
Hólar í Hjaltadal
Glaumbær
Kakalaskáli
Austurdalur í Skagafirði
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lögð fram til kynningar ársskýrsla Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir árið 2025.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 48 Lagt fram til kynningar minnisblað frá KPMG LAW til Hafnasambands Íslands, dagsett 14. júlí 2026, er varðar meðferð virðisaukaskatts við sölu á hafnarþjónustu til erlendra aðila. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar 16. september 2026 með níu atkvæðum.