Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

207. fundur 03. september 2026 kl. 08:15 - 10:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
Dagskrá

1.Framtíðaruppbygging á golfsvæði Golfklúbbs Skagafjarðar

Málsnúmer 2405555Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Skagafjarðar þar sem óskað er eftir að eftirstöðvar samþykkts styrks sveitarfélagsins til uppbyggingar nýs aðstöðuhúss á Nöfum, alls 24 m.kr., verði greiddar út fyrr í stað þess að greiðslurnar dreifist á næstu þrjú ár samkvæmt gildandi samkomulagi. Sveitarstjórn samþykkti á árinu 2025 að veita Golfklúbbi Skagafjarðar 40 m.kr. styrk til verkefnisins sem greiðast skyldi á fimm árum og hafa 16 m.kr. þegar verið greiddar. Fram kemur í erindinu að nýtt 230 fm aðstöðuhús hafi nú risið á Nöfum og að framkvæmdir hafi notið víðtæks stuðnings fyrirtækja, félagasamtaka og íbúa í Skagafirði.

Byggðarráð þakkar Golfklúbbi Skagafjarðar fyrir erindið og óskar félaginu til hamingju með glæsilegt aðstöðuhús sem hefur risið á Nöfum. Ljóst er að uppbyggingin er mikið framfaraskref fyrir golfíþróttina í Skagafirði og mun jafnframt skapa aukin tækifæri til útivistar, afþreyingar og samfélagslegrar starfsemi á svæðinu.

Byggðarráð lýsir ánægju með þann kraft, samstöðu og samfélagslega þátttöku sem einkennt hefur verkefnið og þakkar öllum þeim sem komið hafa að uppbyggingunni, jafnt fyrirtækjum sem einstaklingum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 en frestar ákvörðun í málinu að öðru leyti.

2.Trúnaðarbók byggðarráðs

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

3.Furulundur 5 - sala á eign

Málsnúmer 2608151Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um fasteignina Furulundur 5 í Varmahlíð frá Sunnu Björk Atladóttur, löggiltum fasteignasala. Um er að ræða timburhús, byggt árið 1992, alls 49,5 m² að stærð. Lagt er til að húsið verði selt til flutnings af núverandi lóð og að kostnaður við losun og flutning verði á ábyrgð kaupanda ásamt frágangi lóðar í samráði við sveitarfélagið.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Sunna Björk Atladóttir að setja eignina í söluferli.

4.Fjölskylduhlaup - Gulur september

Málsnúmer 2609019Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Helgu Jónínu Guðmundsdóttur, deildarstjóra mannauðs hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, þar sem óskað er eftir aðstöðu við sundlaugina vegna fjölskylduhlaups sem haldið verður 10. september nk. í tilefni af Gulum september. Jafnframt er óskað eftir því að þátttakendum verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu, líkt og gert var í fyrra.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita aðstöðu fyrir fjölskylduhlaupið og að þátttakendum verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu. Byggðarráð fagnar jafnframt framtakinu og hvetur íbúa til þátttöku.

5.Áhrif 16. gr laga nr 55 1992 - Áminning um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum

Málsnúmer 2608278Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt. Í erindinu er áréttað að heimilt sé að lækka bætur eða synja bótakröfu að hluta eða öllu leyti þegar mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar byggist á vönduðu áhættumati, viðeigandi sérfræðiráðgjöf og skýrri upplýsingagjöf til lóðarhafa, byggingarleyfishafa og kaupenda eigna.

Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að náttúruvá sé höfð til hliðsjónar við skipulagsgerð og leyfisveitingar og leggur áherslu á að sveitarfélagið fylgi gildandi lögum og reglum við meðferð slíkra mála.

6.Flokka ehf., ársreikningur 2025

Málsnúmer 2605237Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Flokku fyrir árið 2025.

Lagður fram til kynningar.

7.Skógræktarsjóður Skagafjarðar - ársreikningur 2025

Málsnúmer 2608218Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Skógræktarsjóðs Skagafjarðar fyrir árið 2025.

Lagður fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.