Lagt fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt. Í erindinu er áréttað að heimilt sé að lækka bætur eða synja bótakröfu að hluta eða öllu leyti þegar mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar byggist á vönduðu áhættumati, viðeigandi sérfræðiráðgjöf og skýrri upplýsingagjöf til lóðarhafa, byggingarleyfishafa og kaupenda eigna.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að náttúruvá sé höfð til hliðsjónar við skipulagsgerð og leyfisveitingar og leggur áherslu á að sveitarfélagið fylgi gildandi lögum og reglum við meðferð slíkra mála.