Fara í efni

Furulundur 5 - sala á eign

Málsnúmer 2608151

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 205. fundur - 20.08.2026

Á lóðinni Furulundi 5 í Varmahlíð stendur aðstöðuhús sem nýtt hefur verið í tengslum við starfsemi leikskólans í Varmahlíð. Húsnæðið hefur ekki lengur hlutverki að gegna í starfsemi sveitarfélagsins og stendur nú autt.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita sveitarstjóra heimild til að fela fasteignasala að verðmeta eignina með sölu til flutnings í huga og leggja fyrir byggðarráð þegar verðmatið liggur fyrir.

Byggðarráð Skagafjarðar - 207. fundur - 03.09.2026

Lagt fram minnisblað um fasteignina Furulundur 5 í Varmahlíð frá Sunnu Björk Atladóttur, löggiltum fasteignasala. Um er að ræða timburhús, byggt árið 1992, alls 49,5 m² að stærð. Lagt er til að húsið verði selt til flutnings af núverandi lóð og að kostnaður við losun og flutning verði á ábyrgð kaupanda ásamt frágangi lóðar í samráði við sveitarfélagið.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Sunna Björk Atladóttir að setja eignina í söluferli.

Byggðarráð Skagafjarðar - 210. fundur - 22.09.2026

Skagafjörður auglýsti til sölu fasteignina Furulund 5, F214-0798. Húsið skal selt til flutnings.

Borist hafa tvö tilboð í eignina.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna báðum tilboðum í eignina.