Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Málsnúmer 2310244Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála á samningaviðræðum við ráðuneyti um stækkun verknámshús við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Ákveðið hefur verið að Skagafjörður haldi utan um framkvæmdina og verið er að útbúa samning milli sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og ríkisins um fyrirkomulagið. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði undirritaður fyrir áramót.
2.Útboð vátrygginga 2026
Málsnúmer 2609261Vakta málsnúmer
Lögð var fram niðurstaða nýafstaðins útboðs á vátryggingum fyrir sveitarfélagið. Útboðið nær til vátrygginga sveitarfélagsins Skagafjarðar og tengdra aðila fyrir tímabilið 2027-2029. Útboðsgögnin samanstóðu af útboðslýsingu, tilboðsskjali og svörum við fyrirspurnum. Útboðið var auglýst á TED (EES) og útboðsvefnum. Sjóvá, TM, VÍS og Vörður óskuðu eftir gögnunum og skiluðu öll tilboði. VÍS lagði fram lægsta tilboðið og fékk flest stig samkvæmt matsforsendum útboðsins. Tilboðið uppfyllir öll skilyrði útboðsins. Um lækkun er að ræða frá núverandi viðskiptakjörum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði VÍS og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga frá samningum fyrir hönd sveitarfélagsins.

3.Rekstur tjaldsvæða í Skagafirði - Hofsós, Varmahlíð og Sauðárkrókur
Málsnúmer 2608093Vakta málsnúmer
Málinu var vísað frá 50. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar sem haldinn var 26. október 2026. Á þeim fundi var farið yfir stöðu á tjaldsvæðum Skagafjarðar, en rekstrarsamningur Skagafjarðar og Álfakletts ehf. er að renna út. Nefndin samþykkti samhljóða að leggja til við byggðarráð að hafinn verði undirbúningur að sölu reksturs með fylgifé tjaldsvæðanna í Varmahlíð og á Hofsósi með það að markmiði að draga úr samkeppnisrekstri sveitarfélagsins og skapa tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila til áframhaldandi reksturs og uppbyggingar svæðanna.
Ákvörðun um framtíð tjaldsvæðisins á Nöfum á Sauðárkróki var frestað þar til frekari undirbúningsvinnu um framtíðarskipulag þess lýkur.
Byggðarráð tekur undir sjónarmið atvinnu-, menningar- og kynningarnefnda og fellst á þau rök að skynsamlegt sé að auglýsa rekstur og fylgifé tjaldsvæðanna á Hofsósi og í Varmahlíð til sölu. Ekki stendur til að selja landið en gerður verði langtíma lóðarleigusamningur um svæðin og rekstur og fylgifé verði selt til hæstbjóðanda.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks, óskar bókað:
"Undirritaður leggur áherslu á að tekin verði strax ákvörðun um framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki en núverandi meirihluti hefur frestað þeirri ákvarðanatöku um óákveðinn tíma. Á sama tíma er tjaldsvæðahúsið komið á nafirnar og allt sem bendir til þess að þar verði bæði framtíðartjaldsvæði og mótstjaldsvæði á komandi árum. Vinnu við skilgreiningu á þessu svæði væri því eðlilegast að klára núna og ákveða hvaða hlutar svæðisins eigi að tilheyra almenna tjaldsvæðinu og hvaða hlutar bætist þá við ef um mót er að ræða. Í framhaldinu væri réttast að auglýsa til sölu rekstur allra tjaldsvæðanna þriggja á Sauðárkróki, Varmahlíð og á Hofsósi. Auglýst væri eftir tilboðum í fasteignir svæðanna og rekstur, en gerður samningur um lóðaleigu undir starfsemina, sambærilegur og gerður er við aðra atvinnustarfsemi. Skynsamlegt er að gefa bjóðendum kost á að bjóða í þau hvert og eitt sem sjálfstæða einingu eða sem heild og þá öll þrjú svæðin."
Fulltrúar meirihluta óska bókað:
"Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti samhljóða að fara í ferli með að selja rekstur tjaldsvæða á Hofsósi og í Varmahlíð. Ástæða fyrir því að tjaldsvæðið á Sauðárkróki er ekki inni í því ferli er sú að vafi hefur leikið á hvar framtíðarstaðsetning tjaldstæðisins verður. Vill meirihluti vanda til verka og kynna vel hvernig fyrirkomulagið er hugsað áður en farið er í sölu á rekstri á tjaldsvæði á Sauðárkróki.
Því samþykkir meirihluti byggðarráðs fyrirliggjandi bókun."
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að fela sveitarstjóra að undirbúa sölu reksturs tjaldsvæðanna í Varmahlíð og á Hofsósi og leggja fyrir byggðarráð að nýju. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins.

4.Lóð 70 við Sauðárhlíð - Minnisblað frá Eflu - Bætt umferðaröryggi
Málsnúmer 2609273Vakta málsnúmer
Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Málinu var vísað frá 108. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 15. október 2026. Skipulagsnefnd afgreiddi tillögur frá Eflu að umferðaröryggisaðgerðum við göngu- og hjólaþverun yfir innkeyrslu að bílastæði veitingastaðarins Sauðár við Sæmundarhlíð ásamt áætluðum kostnaði.
Tillögurnar fjórar eru eftirfarandi:
1. Upphækkuð, samfelld þverun: meginúrræði sem lækkar hraða akandi umferðar og skýrir að ökutæki þvera göngu- og hjólaleið.
2. Lýsing: bætir sýnileika þverunar og vegfarenda í myrkri.
3. Merki: viðvörun til ökumanna.
4. Þverlínur: viðbótaraðgerð til að vekja athygli hjólandi vegfarenda.
Skipulagsnefnd féllst á allar fjórar tillögur Eflu og lagði til við byggðarráð að samþykkja að ráðist verði í þessar aðgerðir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að framlagða tillögu. Byggðarráð vísar kostnaði vegna merkinga á götu og gangstétt til gerðar fjárhagsáætlunar 2027. Lóðarhafi standi sjálfur straum af öðrum kostnaði samkvæmt tillögunni. Verkið verði unnið í samráði við veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

5.Gjaldskrá og samþykkt um gatnagerðargjöld, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld 2027
Málsnúmer 2608183Vakta málsnúmer
Lögð var fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði. Gjaldskráin tekur mið af uppreiknaðri vísitöluhækkun milli ára á gatnagerðargjöld og stofngjald fráveitu. Byggingarleyfis- og þjónustugjöld taka mið af almennri 2,5 % hækkun.
Ein breyting gerð í texta 11. gr. þar sem fellt er út minka og- refaskálar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Styrkbeiðni vegna fasteignaskatts
Málsnúmer 2610188Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
7.Forkaupsréttur sveitarfélags
Málsnúmer 2610195Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. október 2026 frá Bjarka Sigþórssyni þar sem óskað er upplýsinga um hvort sveitarfélagið hyggist nýta sér forkaupsrétt að Sleipni, SH-141. Skipaskráningarnúmer 2635, þar sem til stendur að selja bátinn án aflaheimilda.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsrétt sveitarfélagsins.

8.Furulundur 5 - sala á eign
Málsnúmer 2608151Vakta málsnúmer
Á 214. fundi byggðarráðs samþykkti byggðarráð samhljóða að svara innkomnu tilboði með gagntilboði. Því tilboði hefur nú verið svarað með gagntilboði að upphæð 10 milljónir króna. Bjóðendur eru Felix Jósafatsson og Baldvina Guðrún Valdimarsdóttir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboðinu og felur sveitarstjóra að ganga frá sölu hússins.
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Undirritaður óskar bókað að hann leggst gegn samþykkt fyrirliggjandi tilboðs að fjárhæð 10 milljónir króna. Gagntilboð sveitarfélagsins að fjárhæð 12 milljónir króna fól þá þegar í sér svo mikla tilslökun og telja verður þá fjárhæð algjört lágmarksverð. Flutningskostnaður einn og sér réttlætir ekki frekari verðlækkun, enda fellur slíkur kostnaður einnig til við kaup á nýju húsi sem flutt er frá byggingarstað."

9.Lokun endurhæfingarsundlaugar við HSN
Málsnúmer 2610199Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri hefur átt í samtölum við forsvarsmenn HSN um áframhaldandi rekstur endurhæfingarlaugar HSN á Sauðárkróki. Fyrir fundinum liggur tölvupóstur frá Jóni Helga Björnssyni, dagsettur 28. október 2026. Í tölvupóstinum lýsir Jón Helgi áhuga á að finna leiðir til að tryggja rekstur sundlaugarinnar til frambúðar. Í tölvupóstinum fer Jón Helgi þess á leit að sveitarfélagið leggi til heita vatnið í laugina.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við HSN um sambærileg afsláttarkjör og almenningssundlaugar í Skagafirði njóta.

10.Samráð; Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga
Málsnúmer 2610203Vakta málsnúmer
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 212/2026, "Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga".
Umsagnarfrestur er til og með 17.11.2026.

11.Umsagnarbeiðni; Loftslagslög
Málsnúmer 2610197Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
Byggðarráð telur mikilvægt að loftslagsstefna Íslands byggist á sérstöðu landsins og þeim árangri sem náðst hefur með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland á að fara eigin leið í umhverfis- og loftslagsmálum fremur en að gangast undir kostnaðarsöm viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Áhersluna ætti að byggja á raunverulegum umhverfisbótum, hagkvæmni og innlendri matvælaframleiðslu. Byggðarráð leggst gegn því að loftslagsstefna Íslands og framkvæmd hennar verði í auknum mæli bundin við losunarheimildakerfi Evrópusambandsins eða að slíkt kerfi verði útvíkkað með þeim hætti að aukinn kostnaður leggist á íslenskt atvinnulíf og sveitarfélög.
Byggðarráð leggst jafnframt gegn aukinni skriffinnsku og kostnaði fyrir sveitarfélög og atvinnulíf. Frumvarpið gerir ítarlegar kröfur til sveitarfélaga um loftslagsstefnu, greiningu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar, aðgerðaáætlanir, árlegt mat á árangri, áhættumat og aðlögunaraðgerðir. Slíkar kröfur geta haft í för með sér aukið vinnuálag og kostnað, ekki síst hjá litlum og meðalstórum sveitarfélögum með takmarkaða stjórnsýslu og sérfræðiþekkingu. Byggðarráð leggur því ríka áherslu á að ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og landeigenda verði afmörkuð með skýrum hætti og að öllum nýjum lögbundnum verkefnum fylgi fullnægjandi fjármögnun, samræmdar aðferðir, aðgengileg gögn og faglegur stuðningur af hálfu ríkisins.
Tryggja verður að stjórnvöld nýti upplýsingar sem sveitarfélög, bændur og fyrirtæki hafa þegar afhent ríkisstofnunum áður en frekari upplýsingaskil eru lögð á þessa aðila. Ríkið þarf að samræma eigin upplýsingakerfi og tryggja að gögn séu samnýtt milli stofnana, fremur en að velta kostnaði og vinnu við endurtekna gagnaöflun yfir á sveitarfélög og framleiðendur.
Skagafjörður er landmikið sveitarfélag með öflugan landbúnað og verulegt framlag til innlendrar matvælaframleiðslu, landgræðslu og kolefnisbindingar. Við framkvæmd laganna verður að leggja heildstætt mat á áhrif landbúnaðar og landnotkunar þar sem tekið er tillit til bindingar, bættrar landnýtingar og annarrar umhverfisþjónustu, en ekki eingöngu losunar. Aðgerðir sem tengjast landi og landnotkun þurfa að byggjast á skýrri ábyrgð, raunhæfum gögnum og sanngjörnum hvötum. Ekki verður fallist á að kostnaður eða ábyrgð vegna almennra markmiða ríkisins í loftslagsmálum færist ófjármagnaður yfir á sveitarfélög, landeigendur eða bændur.
Byggðarráð leggur að lokum áherslu á að áður en frumvarpið verður að lögum fari fram fullnægjandi mat á fjárhagslegum áhrifum þess. Þar þarf sérstaklega að meta áhrif á sveitarfélög, landbúnað, innlenda matvælaframleiðslu og fyrirtæki á landsbyggðinni. Framkvæmd laganna verður að styrkja fremur en veikja forsendur búsetu, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar um land allt.

12.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160 2010
Málsnúmer 2610204Vakta málsnúmer
Byggðarráð Skagafjarðar hefur tekið til umfjöllunar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010.
Byggðarráð tekur undir þau meginmarkmið frumvarpsins að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að mannvirkjagerð og gera byggingareftirlit markvissara. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að við breytingar á fyrirkomulagi byggingareftirlits verði tryggt að þær leiði hvorki til lakari þjónustu eða minni gæða né aukins kostnaðar við mannvirkjagerð. Markmið frumvarpsins eru meðal annars að einfalda stjórnsýslu, innleiða áhættumiðað eftirlit og styrkja neytendavernd.
Byggðarráð bendir á að fyrirhugaðar breytingar fela í sér að verkefni sem sveitarfélög og byggingarfulltrúar sinna í dag færast að hluta til til HMS og faggildra skoðunarstofa. Slík breyting getur haft áhrif á tekjur sveitarfélaga því er mikilvægt að fjárhagsleg áhrif breytinganna á sveitarfélögin verði metin með skýrum hætti samhliða lagasetningunni.
Sérstaklega þarf að horfa til áhrifa breytinganna á landsbyggðina. Færsla eftirlitsverkefna til skoðunarstofa getur skapað hættu á auknum kostnaði fyrir framkvæmdaaðila á svæðum þar sem aðgengi að slíkri þjónustu er takmarkað. Ferðakostnaður, ferðatími og framboð þjónustuaðila geta þar skipt verulegu máli. Mikilvægt er því að tryggja að nýtt fyrirkomulag leiði ekki til mismunandi kostnaðar eða þjónustustigs eftir staðsetningu framkvæmdar.
Þá telur byggðarráð mikilvægt að fyrir liggi með hvaða hætti samkeppni og verðmyndun á markaði skoðunarstofa verði tryggð. Einkareknar skoðunarstofur þurfa eðli máls samkvæmt að standa undir kostnaði við starfsemi sína. Takmarkað framboð þjónustuaðila, ekki síst á landsbyggðinni, getur því skapað hættu á að kostnaður framkvæmdaaðila aukist. Mikilvægt er að þetta verði metið sérstaklega áður en hið nýja fyrirkomulag tekur gildi.
Byggðarráð telur jafnframt að samhliða breytingum á ábyrgð og eftirliti með mannvirkjagerð þurfi að stíga frekari skref til að tryggja hagsmuni eigenda og kaupenda fasteigna vegna byggingargalla. Í því samhengi telur byggðarráð rétt að komið verði á tryggingakerfi vegna byggingargalla og að við útfærslu þess verði sérstaklega horft til reynslu og fyrirkomulags í nágrannalöndum Íslands. Slíkt fyrirkomulag gæti verið mikilvægur þáttur í því að styrkja þá neytendavernd sem frumvarpinu er ætlað að bæta.
Byggðarráð leggur því áherslu á að áður en breytingarnar koma til framkvæmda verði sérstaklega tryggt:
að þjónusta og gæði byggingareftirlits skerðist ekki,
að breytingarnar leiði ekki til óhóflegs kostnaðarauka við mannvirkjagerð,
að áhrif á tekjur og verkefni sveitarfélaga verði metin og skýrð,
að jafnt aðgengi að skoðunarþjónustu verði tryggt óháð staðsetningu framkvæmda,
að áhrif verðlagningar og samkeppni skoðunarstofa á kostnað framkvæmdaaðila verði metin, og
að komið verði á fullnægjandi tryggingakerfi vegna byggingargalla með hliðsjón af reynslu nágrannalanda.
Byggðarráð telur mikilvægt að þessi atriði verði tekin til ítarlegrar skoðunar við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins þannig að markmiðum um einfaldara og skilvirkara regluverk verði náð án þess að kostnaður sé færður yfir á framkvæmdaaðila eða þjónusta og aðgengi skerðist, sérstaklega á landsbyggðinni.

Fundi slitið - kl. 11:00.