Fara í efni

Lokun endurhæfingarsundlaugar við HSN

Málsnúmer 2610199

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 215. fundur - 29.10.2026

Sveitarstjóri hefur átt í samtölum við forsvarsmenn HSN um áframhaldandi rekstur endurhæfingarlaugar HSN á Sauðárkróki. Fyrir fundinum liggur tölvupóstur frá Jóni Helga Björnssyni, dagsettur 28. október 2026. Í tölvupóstinum lýsir Jón Helgi áhuga á að finna leiðir til að tryggja rekstur sundlaugarinnar til frambúðar. Í tölvupóstinum fer Jón Helgi þess á leit að sveitarfélagið leggi til heita vatnið í laugina.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við HSN um sambærileg afsláttarkjör og almenningssundlaugar í Skagafirði njóta.