Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
Byggðarráð telur mikilvægt að loftslagsstefna Íslands byggist á sérstöðu landsins og þeim árangri sem náðst hefur með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland á að fara eigin leið í umhverfis- og loftslagsmálum fremur en að gangast undir kostnaðarsöm viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Áhersluna ætti að byggja á raunverulegum umhverfisbótum, hagkvæmni og innlendri matvælaframleiðslu. Byggðarráð leggst gegn því að loftslagsstefna Íslands og framkvæmd hennar verði í auknum mæli bundin við losunarheimildakerfi Evrópusambandsins eða að slíkt kerfi verði útvíkkað með þeim hætti að aukinn kostnaður leggist á íslenskt atvinnulíf og sveitarfélög.
Byggðarráð leggst jafnframt gegn aukinni skriffinnsku og kostnaði fyrir sveitarfélög og atvinnulíf. Frumvarpið gerir ítarlegar kröfur til sveitarfélaga um loftslagsstefnu, greiningu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar, aðgerðaáætlanir, árlegt mat á árangri, áhættumat og aðlögunaraðgerðir. Slíkar kröfur geta haft í för með sér aukið vinnuálag og kostnað, ekki síst hjá litlum og meðalstórum sveitarfélögum með takmarkaða stjórnsýslu og sérfræðiþekkingu. Byggðarráð leggur því ríka áherslu á að ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og landeigenda verði afmörkuð með skýrum hætti og að öllum nýjum lögbundnum verkefnum fylgi fullnægjandi fjármögnun, samræmdar aðferðir, aðgengileg gögn og faglegur stuðningur af hálfu ríkisins.
Tryggja verður að stjórnvöld nýti upplýsingar sem sveitarfélög, bændur og fyrirtæki hafa þegar afhent ríkisstofnunum áður en frekari upplýsingaskil eru lögð á þessa aðila. Ríkið þarf að samræma eigin upplýsingakerfi og tryggja að gögn séu samnýtt milli stofnana, fremur en að velta kostnaði og vinnu við endurtekna gagnaöflun yfir á sveitarfélög og framleiðendur.
Skagafjörður er landmikið sveitarfélag með öflugan landbúnað og verulegt framlag til innlendrar matvælaframleiðslu, landgræðslu og kolefnisbindingar. Við framkvæmd laganna verður að leggja heildstætt mat á áhrif landbúnaðar og landnotkunar þar sem tekið er tillit til bindingar, bættrar landnýtingar og annarrar umhverfisþjónustu, en ekki eingöngu losunar. Aðgerðir sem tengjast landi og landnotkun þurfa að byggjast á skýrri ábyrgð, raunhæfum gögnum og sanngjörnum hvötum. Ekki verður fallist á að kostnaður eða ábyrgð vegna almennra markmiða ríkisins í loftslagsmálum færist ófjármagnaður yfir á sveitarfélög, landeigendur eða bændur.
Byggðarráð leggur að lokum áherslu á að áður en frumvarpið verður að lögum fari fram fullnægjandi mat á fjárhagslegum áhrifum þess. Þar þarf sérstaklega að meta áhrif á sveitarfélög, landbúnað, innlenda matvælaframleiðslu og fyrirtæki á landsbyggðinni. Framkvæmd laganna verður að styrkja fremur en veikja forsendur búsetu, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar um land allt.