Byggðarráð Skagafjarðar hefur tekið til umfjöllunar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010.
Byggðarráð tekur undir þau meginmarkmið frumvarpsins að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að mannvirkjagerð og gera byggingareftirlit markvissara. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að við breytingar á fyrirkomulagi byggingareftirlits verði tryggt að þær leiði hvorki til lakari þjónustu eða minni gæða né aukins kostnaðar við mannvirkjagerð. Markmið frumvarpsins eru meðal annars að einfalda stjórnsýslu, innleiða áhættumiðað eftirlit og styrkja neytendavernd.
Byggðarráð bendir á að fyrirhugaðar breytingar fela í sér að verkefni sem sveitarfélög og byggingarfulltrúar sinna í dag færast að hluta til til HMS og faggildra skoðunarstofa. Slík breyting getur haft áhrif á tekjur sveitarfélaga því er mikilvægt að fjárhagsleg áhrif breytinganna á sveitarfélögin verði metin með skýrum hætti samhliða lagasetningunni.
Sérstaklega þarf að horfa til áhrifa breytinganna á landsbyggðina. Færsla eftirlitsverkefna til skoðunarstofa getur skapað hættu á auknum kostnaði fyrir framkvæmdaaðila á svæðum þar sem aðgengi að slíkri þjónustu er takmarkað. Ferðakostnaður, ferðatími og framboð þjónustuaðila geta þar skipt verulegu máli. Mikilvægt er því að tryggja að nýtt fyrirkomulag leiði ekki til mismunandi kostnaðar eða þjónustustigs eftir staðsetningu framkvæmdar.
Þá telur byggðarráð mikilvægt að fyrir liggi með hvaða hætti samkeppni og verðmyndun á markaði skoðunarstofa verði tryggð. Einkareknar skoðunarstofur þurfa eðli máls samkvæmt að standa undir kostnaði við starfsemi sína. Takmarkað framboð þjónustuaðila, ekki síst á landsbyggðinni, getur því skapað hættu á að kostnaður framkvæmdaaðila aukist. Mikilvægt er að þetta verði metið sérstaklega áður en hið nýja fyrirkomulag tekur gildi.
Byggðarráð telur jafnframt að samhliða breytingum á ábyrgð og eftirliti með mannvirkjagerð þurfi að stíga frekari skref til að tryggja hagsmuni eigenda og kaupenda fasteigna vegna byggingargalla. Í því samhengi telur byggðarráð rétt að komið verði á tryggingakerfi vegna byggingargalla og að við útfærslu þess verði sérstaklega horft til reynslu og fyrirkomulags í nágrannalöndum Íslands. Slíkt fyrirkomulag gæti verið mikilvægur þáttur í því að styrkja þá neytendavernd sem frumvarpinu er ætlað að bæta.
Byggðarráð leggur því áherslu á að áður en breytingarnar koma til framkvæmda verði sérstaklega tryggt:
að þjónusta og gæði byggingareftirlits skerðist ekki,
að breytingarnar leiði ekki til óhóflegs kostnaðarauka við mannvirkjagerð,
að áhrif á tekjur og verkefni sveitarfélaga verði metin og skýrð,
að jafnt aðgengi að skoðunarþjónustu verði tryggt óháð staðsetningu framkvæmda,
að áhrif verðlagningar og samkeppni skoðunarstofa á kostnað framkvæmdaaðila verði metin, og
að komið verði á fullnægjandi tryggingakerfi vegna byggingargalla með hliðsjón af reynslu nágrannalanda.
Byggðarráð telur mikilvægt að þessi atriði verði tekin til ítarlegrar skoðunar við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins þannig að markmiðum um einfaldara og skilvirkara regluverk verði náð án þess að kostnaður sé færður yfir á framkvæmdaaðila eða þjónusta og aðgengi skerðist, sérstaklega á landsbyggðinni.