Fara í efni

Útboð vátrygginga 2026

Málsnúmer 2609261

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 215. fundur - 29.10.2026

Lögð var fram niðurstaða nýafstaðins útboðs á vátryggingum fyrir sveitarfélagið. Útboðið nær til vátrygginga sveitarfélagsins Skagafjarðar og tengdra aðila fyrir tímabilið 2027-2029. Útboðsgögnin samanstóðu af útboðslýsingu, tilboðsskjali og svörum við fyrirspurnum. Útboðið var auglýst á TED (EES) og útboðsvefnum. Sjóvá, TM, VÍS og Vörður óskuðu eftir gögnunum og skiluðu öll tilboði. VÍS lagði fram lægsta tilboðið og fékk flest stig samkvæmt matsforsendum útboðsins. Tilboðið uppfyllir öll skilyrði útboðsins. Um lækkun er að ræða frá núverandi viðskiptakjörum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði VÍS og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga frá samningum fyrir hönd sveitarfélagsins.