Lagt fram minnisblað “Sæmundarhlíð - Sauðá umferðaröryggisaðgerðir", skjalalykill 115603-MIN-001-V01, dags. 05.10.2026 unnið á Eflu verkfræðistofu af Ragnari Gauta Haukssyni og Elínu Rítu Sveinbjörnsdóttur.
Þar er farið yfir fjórar tillögur að umferðaröryggisaðgerðum við göngu- og hjólaþverun yfir innkeyrslu að bílastæði veitingastaðarins Sauðár við Sæmundarhlíð ásamt áætluðum kostnaði.
Tillögurnar fjórar eru eftirfarandi:
1. Upphækkuð, samfelld þverun: meginúrræði sem lækkar hraða akandi umferðar og skýrir að ökutæki þvera göngu- og hjólaleið.
2. Lýsing: bætir sýnileika þverunar og vegfarenda í myrkri.
3. Merki: viðvörun til ökumanna.
4. Þverlínur: viðbótaraðgerð til að vekja athygli hjólandi vegfarenda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagðar hugmyndir verkfræðistofunnar Eflu að umferðaröryggisaðgerðum og telur þær fullnægjandi. Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að vísa málinu áfram til Byggðaráð Skagafjarðar til formlegrar umfjöllunar og leggur til að ef ákveðið verður að fara í aðgerðir til að bæta umferðaröryggi við innkeysluna að mikilvægt sé að kynna þær framkvæmdir á heimasíðu sveitarfélagsins.
Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vék af fundi við afgreiðslu erindisins og varamaður hans Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað.