Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Gamli bærinn Sauðárkróki - Deiliskipulag
Málsnúmer 2607033Vakta málsnúmer
2.Lóð 70 við Sauðárhlíð - Minnisblað frá Eflu - Bætt umferðaröryggi
Málsnúmer 2609273Vakta málsnúmer
Lagt fram minnisblað “Sæmundarhlíð - Sauðá umferðaröryggisaðgerðir", skjalalykill 115603-MIN-001-V01, dags. 05.10.2026 unnið á Eflu verkfræðistofu af Ragnari Gauta Haukssyni og Elínu Rítu Sveinbjörnsdóttur.
Þar er farið yfir fjórar tillögur að umferðaröryggisaðgerðum við göngu- og hjólaþverun yfir innkeyrslu að bílastæði veitingastaðarins Sauðár við Sæmundarhlíð ásamt áætluðum kostnaði.
Tillögurnar fjórar eru eftirfarandi:
1. Upphækkuð, samfelld þverun: meginúrræði sem lækkar hraða akandi umferðar og skýrir að ökutæki þvera göngu- og hjólaleið.
2. Lýsing: bætir sýnileika þverunar og vegfarenda í myrkri.
3. Merki: viðvörun til ökumanna.
4. Þverlínur: viðbótaraðgerð til að vekja athygli hjólandi vegfarenda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagðar hugmyndir verkfræðistofunnar Eflu að umferðaröryggisaðgerðum og telur þær fullnægjandi. Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að vísa málinu áfram til Byggðaráð Skagafjarðar til formlegrar umfjöllunar og leggur til að ef ákveðið verður að fara í aðgerðir til að bæta umferðaröryggi við innkeysluna að mikilvægt sé að kynna þær framkvæmdir á heimasíðu sveitarfélagsins.
Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vék af fundi við afgreiðslu erindisins og varamaður hans Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað.

3.Laugatún 22 til 32 - Lóðarmál
Málsnúmer 2604181Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar á 106. fundi þeirra þann 17.9.2026, þá bókað:
“Tekið fyrir erindi Búhölda hsf. dags. 22. apríl sl. þar sem m.a. kemur fram:
Stjórn Búhölda hsf. hefur áhuga á að lagfæra óræktarbrekku fyrir austan hús félagsins við Laugatún 22 til 32 á Sauðárkróki. Svæði hefur aldrei verið gengið frá, brekkan brött og ekki er hægt að slá hana og því algjört óræktarsvæði. Það er ósk okkar að Sveitarfélagið Skagafjörður komi að verkinu því færa þarf göngustíg til hægt sé að ná réttun halla. Beðið er um að mæla svæðið út og hnitsetja svo hægt sé að skoða hvað best sé að gera. 22. maí sl. var farið á staðinn ásamt Atla Gunnari Arnórssyni hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, svæðið mælt upp og í framhaldi gerðar tillögur að lagfæringum á þeim hæðarmun sem þar er. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.“
Skipulagsnefnd fagnar því að Búhöldar hsf. vilji ganga frá óræktarsvæði innan úthlutaðra lóða sinna, en telur ekki tilefni til aðkomu sveitarfélagsins að því verkefni þar sem við skoðun á svæðinu er frágangur við lóðarmörk í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir við úthlutun lóðanna.

4.Lindargata 1 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2610086Vakta málsnúmer
Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 7. október síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Sæmundi Eiríkssyni byggingartæknifræðingi, f.h. Spíru ehf.
Umsókn um leyfi til að byggja við kjallara (frysti, kæli og gang) gistiheimilis sem stendur á lóðinni númer 1 við Lindargötu á Sauðárkróki.
Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Klöpp Arkitektar-Verkfræðingar ehf. af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-106 númer A-101, A-102, og A-103, dagsettir sept. 2026.
Skipulagsnefnd bendir á að lóðin Lindargata 1 er innan Verndarsvæðis í byggð.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að gera ekki athugasemd við framlagða umsókn.

5.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr 123 2010
Málsnúmer 2610047Vakta málsnúmer
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 190/2026, "Frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010" sjá nánar hér: https://island.is/samradsgatt/mal/4337 .
Umsagnarfrestur er til og með 16.10.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að senda inn umsögn við frumvarpið í samræmi við umræður fundarins.

6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 95
Málsnúmer 2610007FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 95 þann 09.10.2026.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.