Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

210. fundur 22. september 2026 kl. 15:00 - 17:43 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Jódís Helga Káradóttir varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Högni Elfar Gylfason
Starfsmenn
  • Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Gjaldskrá fasteignaskatts og lóðarleigu 2027

Málsnúmer 2608181Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá fasteignaskatts, lóðar- og landleigu fyrir árið 2027. Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði tíu, frá 1. febrúar 2027 til 1. nóvember 2027. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 28.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2027. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga í maí og eigi síðar en 10. maí 2027, séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutföll fasteignaskatts fyrir árið 2027 verði eftirfarandi:

A-flokkur: 0,430% af fasteignamati en var 0,435% árið 2026.
B-flokkur: 1,32% af fasteignamati, óbreytt frá fyrra ári.
C-flokkur: 1,65% af fasteignamati, óbreytt frá fyrra ári.

Með framangreindri breytingu er lagt til að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækki frá fyrra ári.

Lóðarleiga verði jafnframt óbreytt frá árinu 2026. Landleiga beitarlands haldist jafnframt óbreytt milli ára.

Byggðarráð telur mikilvægt að rekja áfram stefnu sveitarfélagsins um hóflega gjaldtöku gagnvart íbúum eftir því sem fjárhagsleg staða sveitarfélagsins leyfir. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til er fasteignaskattur í A-flokki lækkaður þriðja árið í röð.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2027

Málsnúmer 2608209Vakta málsnúmer

Lagðar fram reglur um afslátt af fasteignaskatti 2027.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að hækka viðmiðunarfjárhæðir varðandi tekjumörk um 5,2% frá reglum ársins 2026 og að hámarksafsláttur haldist óbreyttur í 100.000 kr. Málinu vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Útsvarshlutfall 2027

Málsnúmer 2608210Vakta málsnúmer

Á árinu 2026 er útsvarshlutfall 14,97% eftir samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga frá 15.12.2023 um tekjustofna vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Umræða tekin um útsvarshlutfall ársins 2027.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2027 og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Beiðni um upplýsingar vegna stefnumótunar í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 2607026Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Skrifstofu sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála hjá Innviðaráðuneytinu, dagsettur 6. júlí 2026. Með tölvupóstinum fylgir spurningalisti til sveitarfélaga vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Sveitarstjóri ásamt sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs hafa unnið drög að svörum við spurningalistanum og lögðu fram á fundi byggðarráðs.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að senda inn framlögð svör með áorðnum breytingum við spurningum ráðuneytisins.

5.Beiðni um upplýsingar vegna kjaramála

Málsnúmer 2609143Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá formönnum VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Fagfélaganna, dagsett 14. september 2026, þar sem vísað er til yfirlýsingar ríkis og sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga árið 2024 um aðgerðir til stuðnings verðstöðugleika og lækkun verðbólgu.

Í bréfinu eru lagðar fyrir spurningar fyrir byggðarráð sem bréfritarar óska svara við um hvað sveitarfélagið Skagafjörður er tilbúið að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að bregðast við innsendu erindi með eftirfaraindi hætti:

Spurning: Mun Sveitarfélagið Skagafjörður endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa?
Svar: Skagafjörður hefur síðastliðin ár eingöngu haft mjög hóflegar gjaldskrárhækkanir, þar sem gjaldskrár hafa öll síðustu ár hækkað langt undir þróun verðlags. Miðað var við 3,7% hækkun við gerð fjárhagsáætlunar 2025 þegar verðbólga líðandi árs var 4,8%, miðað var við 2,7% hækkun við gerð fjárhagsáætlunar 2026 á meðan að verðbólga var 4,5%. Auk þess hefur byggðarráð samþykkt að miðað skuli við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands í gjaldskrárhækkunum sveitarfélagsins sem og hækkun rekstrarliða í sambandi við fjárhagsáætlanagerð 2027, sem er 2,5% og er 12 mánaða verðbólga í ágúst 5,6%. Það er því ljúft og skylt að segja frá því að sveitarfélagið hefur verið mjög hóflegt í hækkunum gjaldskráa og öll síðustu ár hafa hækkanir verið undir verðlagsþróun tímabilsins. Skagafirði er umhugað um að leggja sitt af mörkum til að létta álögum af íbúum og fyrirtækjum í Skagafirði og stefnir að því að gjaldskrár taki hóflegum hækkunum eða lækkunum eftir því sem fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins leyfir.

Spurning: Hvaða aðgerðir hyggst Sveitarfélagið Skagafjörður ráðast í til að tryggja nægilegt
framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
Svar: Skagafjörður á skipulagðar lóðir, tilbúnar til úthlutunar í öllum þéttbýliskjörnum Skagafjarðar og er í virku samtali við áhugasama aðila, bæði félög og einkaaðila um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu.

Spurning: Hvernig hyggst Sveitarfélagið Skagafjörður leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
Svar: Skagafjörður leggur allt kapp á að börn hafi fengið úthlutuðu leikskólaplássi frá 12 mánaða aldri. Sveitarfélagið býður jafnframt upp á foreldragreiðslur til foreldra sem ekki hafa fengið úthlutuðu plássi.

Hvaða aðrar aðgerðir telur Sveitarfélagið Skagafjörður mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Byggðarráð telur að með hóflegri gjaldtöku, lækkun fasteignaskatta, ábyrgri fjármálastjórn og stuðningi við uppbyggingu húsnæðis sé sveitarfélagið að leggja mikilvægt framlag til þeirra markmiða sem kjarasamningar aðila vinnumarkaðarins fela í sér um verðstöðugleika og bætta afkomu heimilanna. Byggðarráð bendir jafnframt á að lækkun fasteignaskatta þriðja árið í röð er ein skýrasta aðgerð sveitarfélagsins til að draga úr álögum á heimili á tímum þar sem mikilvægt er að allir aðilar samfélagsins leggi sitt af mörkum til lækkunar verðbólgu og vaxta.

6.Þjóðarsátt um verðstöðuleika

Málsnúmer 2609189Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands (SGS), dags. 16. september 2026, um þjóðarsátt um verðstöðugleika og þátttöku sveitarfélaga í að halda aftur af gjaldskrárhækkunum á gildistíma kjarasamninga.

Í erindinu bendir SGS á að forsendur gildandi kjarasamninga hafa brugðist og að nauðsynlegt sé að allir lykilaðilar samfélagsins taki þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum. SGS leggur til að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir sem hafa áhrif á verðmyndun skuldbindi sig til að halda aftur af hækkunum og miða við að verð og gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að bregðast við innsendu erindi með eftirfarandi hætti:

Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að allir lykilaðilar samfélagsins leggi sitt af mörkum til að stuðla að verðstöðugleika og lægri vöxtum. Byggðarráð bendir á að við samþykkt forsendna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 hafi verið lögð áhersla á hóflegar gjaldskrárhækkanir og að almennt skuli miðað við að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki ekki umfram 2,5%, sem samræmist verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands og þeim sjónarmiðum sem fram koma í erindi SGS.

Skagafjörður hefur síðustu ár markvisst gætt hófs í gjaldskrárbreytingum. Við gerð fjárhagsáætlunar 2025 var miðað við 3,7% hækkun gjaldskráa þegar verðbólga nam 4,8% og við gerð fjárhagsáætlunar 2026 var miðað við 2,7% hækkun þegar verðbólga var 4,5%. Fyrir árið 2027 hefur verið ákveðið að miða við 2,5% hækkun, þrátt fyrir að tólf mánaða verðbólga í ágúst hafi mælst 5,6%.

Byggðarráð telur að sveitarfélagið hafi þannig þegar lagt sitt af mörkum til að halda aftur af kostnaðarhækkunum og létta álögum af heimilum í Skagafirði. Áfram verður stefnt að því að gjaldskrár taki aðeins hóflegum breytingum, eða lækki eftir því sem fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins leyfir.

7.Ísland 2030 - Atvinnuhættir og menning

Málsnúmer 2609190Vakta málsnúmer

Útgáfufyrirtækið SagaZ ehf. kynnir ritverkið ÍSLAND, atvinnuhættir og menning, sem hefur komið út á tíu ára fresti frá árinu 1990. Verkið geymir upplýsingar um helstu fyrirtæki, stofnanir, félög og samtök landsins ásamt yfirlitsgreinum um sögu, menningu, atvinnulíf og samfélag. Jafnframt er unnið að frekari stafrænni uppbyggingu verksins. Markmið útgáfunnar er að varðveita og miðla upplýsingum um atvinnu- og menningarsögu þjóðarinnar og veita heildstæða yfirsýn yfir íslenskt samfélag.

Óskað er eftir þátttöku Sveitarfélagsins Skagafjarðar í útgáfu ritsins, en kostnaður vegna þessa er 455.000 kr.

Byggðarráð telur sér því miður ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni.

8.Endurhæfum Reykjalund - Styrkbeiðni

Málsnúmer 2609196Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Hollvinum Reykjalundar vegna landssöfnunarinnar Endurhæfum Reykjalund, dags. 17. september 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélaga við brýnni þörf fyrir uppbyggingu og endurbætur á húsakosti Reykjalundar, m.a. endurbyggingu sjúkraþjálfunarálmu. Óskað er eftir að sveitarfélagið Skagafjörður taki þátt í verkefninu.

Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni en óskar Hollvinum Reykjalundar góðs gengis með landssöfnunina.

Samþykkt samhljóða.

9.Samningur um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum

Málsnúmer 2609206Vakta málsnúmer

Þann 4. júní 2024 undirrituðu Sótahnjúkur ehf. og sveitarfélagið Skagafjörður samning um rekstur sundlaugarinnar að Sólgörðum í kjölfar útboðs. Sá samningur gildir til 31. desember 2026 og því tímabært að ákveða hver næstu skref verða í þessu máli.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri sundlaugarinnar að Sólgörðum frá og með næstu áramótum. Við auglýsingu eftir rekstraraðila skal tekið mið af gildandi rekstrarsamningi.

10.Fyrirspurn um kostnaðarmat vegna bættrar lýsingar í hesthúsahverfi

Málsnúmer 2608307Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn frá Jódísi Helgu Káradóttur um áframhaldandi uppbyggingu innviða í hesthúsahverfinu við Flæðagerði á Sauðárkróki, einkum varðandi götulýsingu, bundið slitlag gatna og áfangaskipta framkvæmdaráætlun fyrir hverfið.

Byggðarráð þakkar fyrir innsent erindi og samþykkir samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

11.Furulundur 5 - sala á eign

Málsnúmer 2608151Vakta málsnúmer

Skagafjörður auglýsti til sölu fasteignina Furulund 5, F214-0798. Húsið skal selt til flutnings.

Borist hafa tvö tilboð í eignina.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna báðum tilboðum í eignina.

12.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 2609201Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.

Fundi slitið - kl. 17:43.