Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

214. fundur 22. október 2026 kl. 08:15 - 10:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Tilnefning fulltrúa í samgöngu- og innviðanefnd SSNV

Málsnúmer 2610155Vakta málsnúmer

Á haustþingi SSNV, sem haldið var á Hótel Laugarbakka 1. október 2026, var samþykkt að endurskipa samgöngu- og innviðanefnd SSNV. Nefndina skipar einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi á Norðurlandi vestra. Hlutverk hennar er að yfirfara gildandi samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra frá apríl 2024 og uppfæra hana eftir þörfum, og skal endurnýjuð áætlun lögð fyrir ársþing SSNV 2027. Sveitarfélagið er beðið að tilnefna sinn fulltrúa í nefndina eigi síðar en 30. október 2026.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Svein Þ. Finster Úlfarsson og Guðnýju Axelsdóttur til samgöngu- og innviðanefndar SSNV.

2.Tilnefning í vinnuhóp um málefni Upprekstrarfélags um Eyvindarstaðaheiði

Málsnúmer 2610169Vakta málsnúmer

Ráðgert er að setja saman vinnuhóp um málefni skálans við Ströngukvísl á Eyvindastaðaheiði.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Sólborgu Sigurrós Borgarsdóttur og Magnús Barðdal Reynisson sem fulltrúa Skagafjarðar í vinnuhópnum.

3.Kostnaðarhlutdeild til sporna gegn ágangi Svartár

Málsnúmer 2610168Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 15. október 2026, frá Svavari Pálssyni, sveitarstjóra Húnabyggðar. Í tölvupóstinum er borið upp erindi vegna aðgerða við Stafnsrétt til umfjöllunar. Málið má rekja til fjárskaðans við Stafnsrétt árið 1976, þegar fjöldi fjár fórst, m.a. fé sem talið er hafa verið úr Skagafirði. Nú hefur skapast hætta á að rof Svartár í Húnabyggð komist að grafreit fjárins og að jarðvegur og leifar berist í ána.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að óska eftir frekari gögnum.

4.Beiðni um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna viðburða á barnamenningarhátíðinni Skúnaskralli

Málsnúmer 2609145Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Berglindi Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNV þar sem hún fer þess á leit að fá afnot af húsnæði Skagafjarðar endurgjaldslaust fyrir viðburði vegna barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskrall sem fram fer dagana 21. október til 4. nóvember.

Um er að ræða viðburði sem fram fara m.a. á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, í grunnskólum Skagafjarðar og öðrum stofnunum, á opnunartíma þeirra stofnanna sem um ræðir. Að hluta til er verið að óska eftir aðgangi að húsum sem sveitarfélagið hefur gert samninga við rekstraraðila og hefur því ekki fullt forræði til að úthluta þeim húsum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita endurgjaldslaust húsnæði sem er á fullu forræði Skagafjarðar, í samráði við húsráðanda á hverjum stað. Byggðarráð áréttar að haft verði samband beint við rekstraraðila húsnæðis sem ekki eru á forræði sveitarfélagsins.

5.Tilnefning fulltrúa í stjórn Hafnarsambandsins

Málsnúmer 2610178Vakta málsnúmer

Hafnasambandsþing 2026 fer fram dagana 22. og 23. október. Á þinginu verður kosið í stjórn Hafnasambands Íslands til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn Hafnasambands Íslands eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og hafnarstjórnum, auk varamanna þeirra. Að auki eru kjörgengir starfsmenn hafna og sveitarfélaga.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Sólborgu Sigurrós Borgarsdóttur til stjórnarsetu í Hafnasambandi Íslands.

6.Furulundur 5 - sala á eign

Málsnúmer 2608151Vakta málsnúmer

Skagafjörður auglýsti til sölu fasteignina Furulund 5, F214-0798. Húsið skal selt til flutnings. Áður hafa borist tvö tilboð í eignina sem byggðarráð hafnaði.

Lagt var fram kauptilboð í Furulund 5 sem gildir til kl. 15:00 fimmtudaginn 22. október nk.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að svara tilboðinu með gagntilboði. Byggðarráð felur Fasteignasölu Sauðárkróks að svara tilboðinu.

7.styrkumsóknir til stjórnarráðs, farsæld barna

Málsnúmer 2610170Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Söru Björk Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra farsældarráðs hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), dags. 6. október 2026. Í tölvupóstinum óskar Sara eftir stuðningi sveitarfélagsins við styrkumsóknir vegna verkefna á sviði farsældar barna á Norðurlandi vestra og samþykki fyrir því að SSNV sæki um styrkina fyrir hönd sveitarfélaganna. Þrjár styrkhugmyndanna byggja á aðgerðaáætlun farsældarráðs Norðurlands vestra og sú fjórða lýtur að samræmdu heildarmati á stuðningsþörf barna.

Fyrir fundinum lágu jafnframt fyrir styrkumsóknir og lýsingar á fyrirhuguðum verkefnum, þ.e. fræðsla skólabílstjóra, kortlagning á aðstöðumun og kostnaði barna í íþrótta- og tómstundastarfi, Farsældarvika og Farsældardagur Norðurlands vestra og samræmt heildarmat á stuðningsþörf barna.

Byggðarráð tekur jákvætt í framlagðar styrkumsóknir vegna verkefna á sviði farsældar barna á Norðurlandi vestra. Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita verkefnunum stuðningsyfirlýsingu sína og felur SSNV að sækja um styrkina fyrir hönd sveitarfélagsins í samræmi við framlögð gögn.

8.Kauptilboð í félagsheimilið Skagasel

Málsnúmer 2609248Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 211. fundar byggðarráðs þann 1. október sl. Á þeim fundi sammæltist byggðarráð um að óska eftir lengri gildistíma kauptilboðs auk þess sem óskað var eftir frekari upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu hússins. Bjóðandi varð ekki við ósk um lengri frest og hefur fallið frá kauptilboðinu.

9.Beiðni um samning vegna nýtingar Drangeyjar

Málsnúmer 2608086Vakta málsnúmer

Mál síðast á dagskrá 209. fundar byggðarráðs þann 17. september sl. Þá voru lögð fram drög að samningi milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Drangeyjarferða ehf. um nýtingu Drangeyjar til ferðaþjónustu. Þá samþykkti byggðarráð fyrir sitt leiti drögin og liggja nú fyrir athugasemdir frá forsvarsmönnum Drangeyjarferða ehf. um samningsdrögin. Samningurinn er því lagður fram að nýju til afgreiðslu byggðarráðs að teknu tilliti til athugasemda forsvarsmanna Drangeyjarferða ehf.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Skagafjarðar.

10.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki

Málsnúmer 2610152Vakta málsnúmer

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 204/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins)".

Umsagnarfrestur er til og með 27.10.2026.

Sveitarfélagið fagnar ýmsum þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Þar má sérstaklega nefna einföldun og skýrari afmörkun undanþágu ökutækja björgunarsveita, skýrari reglur um undanþágu dráttarvéla í landbúnaði og undanþágu tiltekinna ökutækja sem ekki eða aðeins að mjög takmörkuðu leyti nota almennt vegakerfi.

Samkvæmt b-lið 1. gr. draganna getur reglubundin verktaka leitt til þess að dráttarvél njóti ekki undanþágu frá kílómetragjaldi. Í greinargerðinni er sérstaklega tekið fram að reglubundin snjómokstursþjónusta teljist ekki tilfallandi notkun og að undanþágan taki annaðhvort til ökutækisins í heild eða það beri fullt gjald. Það sama á við um verktaka sem sjá t.d. um slátt og heyrúllun fyrir bændur. Byggðaráð telur þetta fyrirkomulag geta haft óheppilegar afleiðingar fyrir þjónustu í dreifbýli. Bóndi sem tekur að sér takmarkaðan en reglubundinn snjómokstur fyrir sveitarfélag eða verktöku fyrir bændur í heyskap eða öðru gæti misst undanþáguna þótt dráttarvélin sé að langmestu leyti notuð við landbúnað. Það gæti hækkað tilboð í snjómokstur eða dregið úr framboði þjónustu í t.d. heyskap og aukið kostnað bænda við heyöflun og fleira.

Byggðarráð leggur til að afmörkuð snjómokstursverkefni í þágu sveitarfélaga og aðgerðir vegna ófærðar eða neyðaraðstæðna leiði ekki sjálfkrafa til þess að undanþága falli niður í heild. Setja þarf skýr viðmið um umfang slíkrar notkunar og kanna einfalt fyrirkomulag þar sem gjaldtaka taki aðeins til gjaldskylds hluta aksturs. Þá leggur byggðarráð einnig til að verktaka fyrir bændur við heyöflun og fleira verði undanþegin.

Þrátt fyrir framangreinda jákvæða þætti telur sveitarfélagið brýnt að stjórnvöld horfi mun skýrar til ólíkra áhrifa kílómetragjalds eftir búsetu og landfræðilegum aðstæðum.

Í dreifbýlu sveitarfélagi eru ferðir íbúa vegna atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu, verslunar og almennrar þjónustusóknar að jafnaði lengri og raunhæfir valkostir aðrir en einkabíll takmarkaðri en á þéttbýlli svæðum. Benda skal á að ýmsa heilbrigðisþjónustu eða opinbera þjónustu er eingöngu mögulegt að sækja á Höfuðborgarsvæðið og kallar það á langar ferðir þeirra íbúa sem lengst búa frá þjónustunni. Sama gildir um fjölmarga atvinnuvegi og þjónustu sveitarfélaga. Kílómetragjald sem miðast fyrst og fremst við ekna vegalengd er því í eðli sínu líklegt til að hafa mismunandi fjárhagsleg áhrif eftir búsetu og aðgengi að þjónustu.

Sveitarfélagið telur því mikilvægt að áhrif gjaldtökunnar á landsbyggðina verði metin sérstaklega, ekki aðeins út frá tekjuöflun ríkissjóðs heldur einnig með tilliti til búsetuskilyrða, atvinnustarfsemi, opinberrar þjónustu og kostnaðar sveitarfélaga við að tryggja sambærilega þjónustu yfir stór landsvæði.
Sveitarfélagið Skagafjörður gerir sérstaka athugasemd við að ekki sé lagt til að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi.

Slökkvilið sinna lögbundnu öryggis- og neyðarhlutverki í almannaþágu. Akstur slökkvibifreiða er ekki valkvæð atvinnustarfsemi heldur stór þáttur í almannavörnum nærsamfélagsins.

Þetta skiptir sérstaklega máli hjá landstórum og dreifbýlum sveitarfélögum þar sem viðbragðsaðilar geta þurft að aka langar vegalengdir við útköll. Kílómetragjald á slíkan akstur verður þannig í reynd viðbótarkostnaður sveitarfélags vegna framkvæmdar lögbundinnar almannavarnarþjónustu.

Sveitarfélagið Skagafjörður leggur því eindregið til að 4. gr. laga um kílómetragjald verði breytt þannig að skráðar slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi líkt og björgunarbifreiðar.

Sveitarfélagið gerir jafnframt alvarlega athugasemd við fyrirhugaða hækkun kílómetragjalds um næstu áramót. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um fjárlagafrumvarp ársins 2027 er lagt til að gjaldið hækki um 15,9%, þar af 5,2% vegna verðlagsforsendna og til viðbótar 4 ma.kr. tekjuauka.

Slík hækkun hefur ekki eingöngu bein áhrif á heimili og fyrirtæki heldur getur hún einnig skilað sér óbeint inn í kostnað sveitarfélaga og gjaldskrár þeirra enda hefur þetta bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og hefur þannig áhrif á flesta þjónustusamninga sveitarfélaga. Hækkunin leggst þungt á vöruflutninga og þar af leiðandi hefur hækkunin neikvæð áhrif á vöruverð í dreifðari byggðum þar sem flutningskostnaður leggst af fullum þunga í álagningu verslana sem þurfa að flytja sínar vörur um langar leiðir.

Að mati sveitarfélagsins skapast hér verulegt ósamræmi ef sveitarfélög eru annars vegar hvött til að gæta ýtrasta aðhalds í gjaldskrárhækkunum en ríkið tekur hins vegar ákvarðanir um verulegar hækkanir á gjöldum sem hafa bein og óbein áhrif á kostnaðargrunn lögbundinnar sveitarfélagaþjónustu.

Sveitarfélagið telur sérstaklega óheppilegt ef ríkisvaldshækkanir leiða til þess að sveitarfélögum reynist ómögulegt að standa við markmið um hóflegar gjaldskrárhækkanir nema með því að taka aukinn rekstrarkostnað þjónustunnar á almennan rekstur sveitarfélagsins. Því telur sveitarfélagið mikilvægt að stjórnvöld meti ekki einungis bein áhrif breytinga á kílómetragjaldi, heldur einnig afleidd áhrif í gegnum vísitölutengingu opinberra þjónustusamninga.

11.Samráð; Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 2610124Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 191/2026, "Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga".

Umsagnarfrestur er til og með 13.11.2026.

Skagafjörður fagnar þeirri vinnu sem fram fer við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga og telur mikilvægt að fyrir liggi góðar og samanburðarhæfar upplýsingar sem geti stutt við stefnumótun og ákvarðanatöku til lengri tíma.

Sveitarfélagið leggur þó áherslu á að við mótun og notkun viðmiðanna verði tekið ríkt tillit til þess hversu ólíkar aðstæður sveitarfélaga eru. Landfræðileg stærð, dreifð byggð, fjarlægðir, fjöldi byggðarkjarna og ólík kostnaðaruppbygging við veitingu þjónustu geta haft veruleg áhrif á rekstur og þróun sveitarfélaga. Mikilvægt er að sameiginleg viðmið nái utan um þennan fjölbreytileika og leiði ekki til einfaldaðs samanburðar milli sveitarfélaga sem búa við ólíkar forsendur.

Sérstaklega telur sveitarfélagið mikilvægt að mat á fjárhagslegri sjálfbærni taki mið af umfangi lögbundinnar þjónustu, kostnaði við rekstur innviða og getu sveitarfélaga til að veita íbúum góða þjónustu til lengri tíma. Í umræðuskjalinu kemur fram að ekki liggi fyrir sameiginleg niðurstaða um hvaða upplýsingar eða kennitölur lýsi fjárhagslegri sjálfbærni sveitarfélaga best.

Jafnframt telur sveitarfélagið mikilvægt að viðmiðin verði fyrst og fremst gagnlegt stjórntæki fyrir sveitarfélög og ríki, en leiði ekki til aukinnar stjórnsýslu eða óþarfa skýrslugjafar. Niðurstöður mælinganna þurfa jafnframt að nýtast við stefnumótun ríkisins, enda ráðast forsendur sjálfbærrar byggðaþróunar ekki eingöngu af ákvörðunum sveitarfélaganna sjálfra.

Skagafjörður styður því áframhaldandi vinnu við mótun viðmiðanna með þeirri áherslu að þau verði einföld, gagnleg og sveigjanleg og endurspegli ólíkar aðstæður sveitarfélaga um allt land.

12.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106 1999

Málsnúmer 2610091Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 156. mál - frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október nk.

Sveitarfélagið Skagafjörður tekur undir markmið frumvarpsins um að styrkja hlutverk Byggðastofnunar og skýra stöðu hennar á sviði atvinnu- og byggðaþróunar.

Sveitarfélagið vekur hins vegar sérstaka athygli á því að í greinargerð frumvarpsins kemur fram að fallið hafi verið frá fyrri áformum um að lögfesta að Byggðastofnun skuli staðsett á Sauðárkróki. Sveitarfélagið telur mikilvægt að það ákvæði verði tekið upp að nýju.

Byggðastofnun hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að stuðla að jafnvægi í byggðaþróun og störfum hins opinbera. Það væri því í fullu samræmi við markmið frumvarpsins um byggðafestu stofnunarinnar að tryggja með skýrum hætti áframhaldandi staðsetningu hennar á Sauðárkróki. Fjölmörg dæmi eru um að opinber störf séu skilgreind á höfuðborgarsvæðinu og því þykir byggðarráði eðlilegt að slíkt megi skilgreina með skýrum hætti um staðsetningu Byggðastofnunnar á Sauðárkróki eins og gert var í fyrri drögum. Þannig verði með lagasetningunni tryggt að höfuðstöðvar og kjarnastarfsemi verði áfram á Sauðárkróki eins og verið hefur.

Sveitarfélagið leggur því til að í frumvarpið verði tekið ákvæði þess efnis að Byggðastofnun hafi aðsetur á Sauðárkróki.

13.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)

Málsnúmer 2610160Vakta málsnúmer

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 198/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)".

Umsagnarfrestur er til og með 25.10.2026.

Sveitarfélagið tekur undir markmið frumvarpsins um að efla faglega getu lögreglu, styrkja rannsóknargetu, auka samhæfingu og skapa sterkari faglegar einingar. Jafnframt er jákvætt að skýrt komi fram í kynningu frumvarpsins að breytingarnar eigi hvorki að leiða til fækkunar starfsfólks lögreglu né lokunar lögreglustöðva og að áfram verði lögð áhersla á staðbundna þjónustu og viðbragðsgetu.

Sveitarfélagið leggur hins vegar ríka áherslu á að þessi markmið verði tryggð við framkvæmd breytinganna en verði ekki aðeins almenn markmið frumvarpsins.

Fyrir Norðurland vestra skiptir grundvallarmáli að fyrirhuguð sameining leiði hvorki til fækkunar stöðugilda né veikingar á staðbundinni löggæslu. Sveitarfélagið gerir því þá skýru kröfu að breytingarnar leiði ekki til fækkunar starfa lögreglu á Norðurlandi vestra og að áfram verði reknar öflugar lögreglustöðvar á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga þar sem lögð verði áhersla á að verja þá þekkingu og sérhæfðu starfsemi sem þegar hefur verið byggð upp í landshlutanum.

Sveitarfélagið leggur sérstaka áherslu á að rannsóknarlögregla verði áfram með fasta starfsstöð í Skagafirði. Sú staðbundna rannsóknargeta sem byggð hefur verið upp skiptir verulegu máli fyrir öryggi íbúa og möguleika lögreglu til að bregðast hratt við þegar alvarleg brot koma upp. Landfræðilegar aðstæður og veðurfar á Norðurlandi gera það að verkum að ekki er hægt að treysta eingöngu á rannsóknargetu sem staðsett er annars staðar í hinu fyrirhugaða, mjög víðfeðma lögregluumdæmi.

Reynslan sýnir mikilvægi þessa. Áður en rannsóknarlögreglumenn voru staðsettir í Skagafirði komu upp tilvik þar sem rannsóknarlögregla komst ekki frá Akureyri vegna veðurs og færðar. Við rannsókn alvarlegra brota getur tími skipt sköpum og tafir haft þau áhrif að rannsóknarhagsmunir spillist. Að mati sveitarfélagsins væri því verulegt skref aftur á bak ef breyting á stjórnskipulagi lögreglu leiddi til þess að staðbundin rannsóknargeta í Skagafirði hyrfi eða veiktist.

Sveitarfélagið telur jafnframt mikilvægt að horfa á breytingarnar út frá byggðasjónarmiðum. Sameining stjórnsýslueininga má ekki leiða til þess að stjórnunar-, sérfræði- og rannsóknarstörf færist smám saman til stærstu þéttbýlisstaðanna. Þvert á móti felast í breytingunum tækifæri til að efla sérhæfð störf á landsbyggðinni. Frumvarpið gerir sérstaklega ráð fyrir að landsbyggðarembættunum verði falin landsbundin og sérhæfð verkefni. Sveitarfélagið hvetur til þess að sú heimild verði nýtt markvisst til að efla sérfræði- og rannsóknarstörf á starfsstöðvum utan stærstu þéttbýlisstaða, þar á meðal á Sauðárkróki.

14.Umsagnarbeiðni; Þingsályktunartillaga um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá

Málsnúmer 2610139Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 88. mál - tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.

Sveitarfélagið Skagafjörður fagnar því að til skoðunar sé að endurskoða heildstætt lagaumgjörð um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og aðra náttúruvá. Mikilvægt er að skýr ábyrgð sé á áhættumati, áætlanagerð og undirbúningi varnaraðgerða og að sveitarfélög geti byggt ákvarðanir sínar á samræmdu og faglegu áhættumati.

Sveitarfélagið leggur sérstaka áherslu á að samhliða endurskoðuninni verði tryggð öflug og fyrirsjáanleg fjármögnun ríkisins á nauðsynlegum varnarmannvirkjum. Slík verkefni geta verið umfangsmikil og kostnaðarsöm og mikilvægt að fjárhagsleg geta einstakra sveitarfélaga ráði ekki því hversu vel hægt er að verja byggð, hafnir og mikilvæga innviði gegn náttúruvá.

Jafnframt telur sveitarfélagið mikilvægt að við endurskoðunina verði sérstaklega horft til strandbyggða, hafnarsvæða og annarra svæða þar sem samfélagslega mikilvægir innviðir eru nálægt sjó, auk áhrifa hækkandi sjávarstöðu og aukinnar hættu á sjávarflóðum.

Sveitarfélagið Skagafjörður styður því markmið tillögunnar um heildstæðari umgjörð málaflokksins og telur mikilvægt að sveitarfélög hafi virka aðkomu að þeirri vinnu.

15.Samráð;Drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030

Málsnúmer 2610180Vakta málsnúmer

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 210/2026, "Drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030".

Umsagnarfrestur er til og með 26.10.2026.

16.Lýðheilsuvísar 2026 og 2025 greindir fyrir Skagafjörð ofl.

Málsnúmer 2610153Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Gígju Gunnarsdóttur, verkefnastjóra Heilsueflandi samfélags hjá embætti landlæknis, dags. 13. október 2026, varðandi lýðheilsuvísa 2025 og 2026 fyrir Skagafjörð.

Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða um heilsu og líðan íbúa og tengda áhrifaþætti og sé þeim ætlað að styðja sveitarfélög og heilbrigðisþjónustu við að greina stöðu, styrkleika og áskoranir í nærumhverfi og nýta niðurstöðurnar við markvissa heilsueflingu og forvarnir. Með erindinu fylgja lýðheilsuvísar fyrir Skagafjörð fyrir árin 2025 og 2026. Gögnin sýna stöðu sveitarfélagsins á fjölbreyttum mælikvörðum sem snúa m.a. að samfélagslegum þáttum, lifnaðarháttum, líðan, heilsu og sjúkdómum og gera samanburð við heilbrigðisumdæmið og landið í heild.

Fundi slitið - kl. 10:15.