Fara í efni

Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)

Málsnúmer 2610160

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 214. fundur - 22.10.2026

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 198/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)".

Umsagnarfrestur er til og með 25.10.2026.

Sveitarfélagið tekur undir markmið frumvarpsins um að efla faglega getu lögreglu, styrkja rannsóknargetu, auka samhæfingu og skapa sterkari faglegar einingar. Jafnframt er jákvætt að skýrt komi fram í kynningu frumvarpsins að breytingarnar eigi hvorki að leiða til fækkunar starfsfólks lögreglu né lokunar lögreglustöðva og að áfram verði lögð áhersla á staðbundna þjónustu og viðbragðsgetu.

Sveitarfélagið leggur hins vegar ríka áherslu á að þessi markmið verði tryggð við framkvæmd breytinganna en verði ekki aðeins almenn markmið frumvarpsins.

Fyrir Norðurland vestra skiptir grundvallarmáli að fyrirhuguð sameining leiði hvorki til fækkunar stöðugilda né veikingar á staðbundinni löggæslu. Sveitarfélagið gerir því þá skýru kröfu að breytingarnar leiði ekki til fækkunar starfa lögreglu á Norðurlandi vestra og að áfram verði reknar öflugar lögreglustöðvar á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga þar sem lögð verði áhersla á að verja þá þekkingu og sérhæfðu starfsemi sem þegar hefur verið byggð upp í landshlutanum.

Sveitarfélagið leggur sérstaka áherslu á að rannsóknarlögregla verði áfram með fasta starfsstöð í Skagafirði. Sú staðbundna rannsóknargeta sem byggð hefur verið upp skiptir verulegu máli fyrir öryggi íbúa og möguleika lögreglu til að bregðast hratt við þegar alvarleg brot koma upp. Landfræðilegar aðstæður og veðurfar á Norðurlandi gera það að verkum að ekki er hægt að treysta eingöngu á rannsóknargetu sem staðsett er annars staðar í hinu fyrirhugaða, mjög víðfeðma lögregluumdæmi.

Reynslan sýnir mikilvægi þessa. Áður en rannsóknarlögreglumenn voru staðsettir í Skagafirði komu upp tilvik þar sem rannsóknarlögregla komst ekki frá Akureyri vegna veðurs og færðar. Við rannsókn alvarlegra brota getur tími skipt sköpum og tafir haft þau áhrif að rannsóknarhagsmunir spillist. Að mati sveitarfélagsins væri því verulegt skref aftur á bak ef breyting á stjórnskipulagi lögreglu leiddi til þess að staðbundin rannsóknargeta í Skagafirði hyrfi eða veiktist.

Sveitarfélagið telur jafnframt mikilvægt að horfa á breytingarnar út frá byggðasjónarmiðum. Sameining stjórnsýslueininga má ekki leiða til þess að stjórnunar-, sérfræði- og rannsóknarstörf færist smám saman til stærstu þéttbýlisstaðanna. Þvert á móti felast í breytingunum tækifæri til að efla sérhæfð störf á landsbyggðinni. Frumvarpið gerir sérstaklega ráð fyrir að landsbyggðarembættunum verði falin landsbundin og sérhæfð verkefni. Sveitarfélagið hvetur til þess að sú heimild verði nýtt markvisst til að efla sérfræði- og rannsóknarstörf á starfsstöðvum utan stærstu þéttbýlisstaða, þar á meðal á Sauðárkróki.