Fara í efni

Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki

Málsnúmer 2610152

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 214. fundur - 22.10.2026

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 204/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins)".

Umsagnarfrestur er til og með 27.10.2026.

Sveitarfélagið fagnar ýmsum þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Þar má sérstaklega nefna einföldun og skýrari afmörkun undanþágu ökutækja björgunarsveita, skýrari reglur um undanþágu dráttarvéla í landbúnaði og undanþágu tiltekinna ökutækja sem ekki eða aðeins að mjög takmörkuðu leyti nota almennt vegakerfi.

Samkvæmt b-lið 1. gr. draganna getur reglubundin verktaka leitt til þess að dráttarvél njóti ekki undanþágu frá kílómetragjaldi. Í greinargerðinni er sérstaklega tekið fram að reglubundin snjómokstursþjónusta teljist ekki tilfallandi notkun og að undanþágan taki annaðhvort til ökutækisins í heild eða það beri fullt gjald. Það sama á við um verktaka sem sjá t.d. um slátt og heyrúllun fyrir bændur. Byggðaráð telur þetta fyrirkomulag geta haft óheppilegar afleiðingar fyrir þjónustu í dreifbýli. Bóndi sem tekur að sér takmarkaðan en reglubundinn snjómokstur fyrir sveitarfélag eða verktöku fyrir bændur í heyskap eða öðru gæti misst undanþáguna þótt dráttarvélin sé að langmestu leyti notuð við landbúnað. Það gæti hækkað tilboð í snjómokstur eða dregið úr framboði þjónustu í t.d. heyskap og aukið kostnað bænda við heyöflun og fleira.

Byggðarráð leggur til að afmörkuð snjómokstursverkefni í þágu sveitarfélaga og aðgerðir vegna ófærðar eða neyðaraðstæðna leiði ekki sjálfkrafa til þess að undanþága falli niður í heild. Setja þarf skýr viðmið um umfang slíkrar notkunar og kanna einfalt fyrirkomulag þar sem gjaldtaka taki aðeins til gjaldskylds hluta aksturs. Þá leggur byggðarráð einnig til að verktaka fyrir bændur við heyöflun og fleira verði undanþegin.

Þrátt fyrir framangreinda jákvæða þætti telur sveitarfélagið brýnt að stjórnvöld horfi mun skýrar til ólíkra áhrifa kílómetragjalds eftir búsetu og landfræðilegum aðstæðum.

Í dreifbýlu sveitarfélagi eru ferðir íbúa vegna atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu, verslunar og almennrar þjónustusóknar að jafnaði lengri og raunhæfir valkostir aðrir en einkabíll takmarkaðri en á þéttbýlli svæðum. Benda skal á að ýmsa heilbrigðisþjónustu eða opinbera þjónustu er eingöngu mögulegt að sækja á Höfuðborgarsvæðið og kallar það á langar ferðir þeirra íbúa sem lengst búa frá þjónustunni. Sama gildir um fjölmarga atvinnuvegi og þjónustu sveitarfélaga. Kílómetragjald sem miðast fyrst og fremst við ekna vegalengd er því í eðli sínu líklegt til að hafa mismunandi fjárhagsleg áhrif eftir búsetu og aðgengi að þjónustu.

Sveitarfélagið telur því mikilvægt að áhrif gjaldtökunnar á landsbyggðina verði metin sérstaklega, ekki aðeins út frá tekjuöflun ríkissjóðs heldur einnig með tilliti til búsetuskilyrða, atvinnustarfsemi, opinberrar þjónustu og kostnaðar sveitarfélaga við að tryggja sambærilega þjónustu yfir stór landsvæði.
Sveitarfélagið Skagafjörður gerir sérstaka athugasemd við að ekki sé lagt til að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi.

Slökkvilið sinna lögbundnu öryggis- og neyðarhlutverki í almannaþágu. Akstur slökkvibifreiða er ekki valkvæð atvinnustarfsemi heldur stór þáttur í almannavörnum nærsamfélagsins.

Þetta skiptir sérstaklega máli hjá landstórum og dreifbýlum sveitarfélögum þar sem viðbragðsaðilar geta þurft að aka langar vegalengdir við útköll. Kílómetragjald á slíkan akstur verður þannig í reynd viðbótarkostnaður sveitarfélags vegna framkvæmdar lögbundinnar almannavarnarþjónustu.

Sveitarfélagið Skagafjörður leggur því eindregið til að 4. gr. laga um kílómetragjald verði breytt þannig að skráðar slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi líkt og björgunarbifreiðar.

Sveitarfélagið gerir jafnframt alvarlega athugasemd við fyrirhugaða hækkun kílómetragjalds um næstu áramót. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um fjárlagafrumvarp ársins 2027 er lagt til að gjaldið hækki um 15,9%, þar af 5,2% vegna verðlagsforsendna og til viðbótar 4 ma.kr. tekjuauka.

Slík hækkun hefur ekki eingöngu bein áhrif á heimili og fyrirtæki heldur getur hún einnig skilað sér óbeint inn í kostnað sveitarfélaga og gjaldskrár þeirra enda hefur þetta bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og hefur þannig áhrif á flesta þjónustusamninga sveitarfélaga. Hækkunin leggst þungt á vöruflutninga og þar af leiðandi hefur hækkunin neikvæð áhrif á vöruverð í dreifðari byggðum þar sem flutningskostnaður leggst af fullum þunga í álagningu verslana sem þurfa að flytja sínar vörur um langar leiðir.

Að mati sveitarfélagsins skapast hér verulegt ósamræmi ef sveitarfélög eru annars vegar hvött til að gæta ýtrasta aðhalds í gjaldskrárhækkunum en ríkið tekur hins vegar ákvarðanir um verulegar hækkanir á gjöldum sem hafa bein og óbein áhrif á kostnaðargrunn lögbundinnar sveitarfélagaþjónustu.

Sveitarfélagið telur sérstaklega óheppilegt ef ríkisvaldshækkanir leiða til þess að sveitarfélögum reynist ómögulegt að standa við markmið um hóflegar gjaldskrárhækkanir nema með því að taka aukinn rekstrarkostnað þjónustunnar á almennan rekstur sveitarfélagsins. Því telur sveitarfélagið mikilvægt að stjórnvöld meti ekki einungis bein áhrif breytinga á kílómetragjaldi, heldur einnig afleidd áhrif í gegnum vísitölutengingu opinberra þjónustusamninga.