Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer
Gestir
- Björn Magnús Árnason
2.Gamli bærinn Sauðárkróki - Deiliskipulag
Málsnúmer 2607033Vakta málsnúmer
Páll Jakob Líndal skipulagsráðgjafi sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir minnisblaðið "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - verkferill, vörður og samráð" sem leggur m.a. til drög að rammahugmynd fyrir skipulagssvæðið ásamt tímalínu fyrir framhald skipulagsvinnunnar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

- Páll Jakob Líndal
3.Aðalgata 16b og 20b - Deiliskipulag
Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 41. fundi sínum þann 17.09.2025 að heimila Kaupfélagi Skagfirðinga að vinna deiliskipulag á eigin kostnað (málsnúmer 2409311) skv. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Aðalgötu 16b og Aðalgötu 20b á Sauðárkróki.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi á vinnslustigi fyrir Aðalgötu 16b og 20b dags. 30.08.2026, verknúmer 56293200, uppdráttur nr. DS-01, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagsuppdráttur sýnir uppbyggingaráform innan skipulagssvæðisins. Á skipulagsuppdrætti er sýnd aðkoma inn á svæðið, lóðamörk, byggingarreitir, bílastæði og helstu skilmálar.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að heimilt sé að falla frá auglýsingu skipulagslýsingar þar sem helstu forsendur liggi fyrir í aðalskipulagi, en samhliða þessu þyrfti að gera breytingu á deiliskipulagi gamla bæjarins þar sem svæðið yrði fellt út.
Í vinnslutillögunni er gert ráð fyrir að hús byggt 1922 sem stendur á lóðinni nr. 10 við Freyjugötu sé víkjandi.
Skipulagsnefnd fagnar áhuga á áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu en óskar jafnframt eftir því að fá frekari upplýsingar frá lóðarhöfum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins og fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

4.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
Málið var áður á dagskrá 104. fundar skipulagsnefndar þann 20.08.2026 þar sem farið var yfir umsagnir sem bárust við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki. Afgreiðslu málsins þá frestað.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna.
Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
Tel ég framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki vera á Nöfunum, í ljósi útivistarperlunnar sem þar liggur. Einnig tel ég þessa fyrirhuguðu staðsetningu tæplega rekstrarhæfa og óheppilega í ljósi núverandi reksturs og háhraða umferðar í nálægð svæðisins. Óska ég eftir skýrri afstöðu meirihlutans hvað varðar deiliskipulagið og staðsetninguna.

5.Skagfirðingabraut 45, Sauðárkróki, 2. hæð, F2132154 - Beiðni um heimild til að stækka svalir
Málsnúmer 2602024Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að svari til lóðarhafa Skagfirðingabrautar 47 vegna bréfs þeirra mótt. 22. maí 2026 varðandi grenndarkynningu á stækkun svala við Skagfirðingabraut 45.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að svari og felur skipulagsfulltrúa að svara ofangreindu erindi lóðarhafa Skagfirðingabrautar 47 í samræmi við umræður fundarins.

6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 92
Málsnúmer 2608016FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 92 þann 21.08.2026.
Fundi slitið - kl. 15:30.
Hildur Hartmannsdóttir fór yfir hugmyndafræðina fyrir opna svæðið og Björn Magnús Árnason hjá Stoð ehf. verkfræðistofu fór yfir áframhaldandi útfærslu fyrir íbúðarbyggðina.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.