Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 41. fundi sínum þann 17.09.2025 að heimila Kaupfélagi Skagfirðinga að vinna deiliskipulag á eigin kostnað (málsnúmer 2409311) skv. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Aðalgötu 16b og Aðalgötu 20b á Sauðárkróki.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi á vinnslustigi fyrir Aðalgötu 16b og 20b dags. 30.08.2026, verknúmer 56293200, uppdráttur nr. DS-01, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagsuppdráttur sýnir uppbyggingaráform innan skipulagssvæðisins. Á skipulagsuppdrætti er sýnd aðkoma inn á svæðið, lóðamörk, byggingarreitir, bílastæði og helstu skilmálar.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að heimilt sé að falla frá auglýsingu skipulagslýsingar þar sem helstu forsendur liggi fyrir í aðalskipulagi, en samhliða þessu þyrfti að gera breytingu á deiliskipulagi gamla bæjarins þar sem svæðið yrði fellt út.
Í vinnslutillögunni er gert ráð fyrir að hús byggt 1922 sem stendur á lóðinni nr. 10 við Freyjugötu sé víkjandi.
Skipulagsnefnd fagnar áhuga á áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu en óskar jafnframt eftir því að fá frekari upplýsingar frá lóðarhöfum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins og fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.