Fara í efni

Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag

Málsnúmer 2602204

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 92. fundur - 26.02.2026

Farið yfir áherslupunkta, næstu skref varðandi gerð deiliskipulags fyrir tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki.
Frumhönnunin sem unnin var af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands í tengslum við staðarval tjaldsvæðisins sem fór fram við gerð Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
Í ljósi þess að aðstöðuhús verður fært á tjaldsvæði á Nöfum vegna uppbyggingar menningarhúss á Flæðunum, teljum við skynsamlegt að nýta það tækifæri og skipuleggja varanlegt og aðlaðandi tjaldsvæði á Nöfunum. Þar sem þarf að leiða heitt vatn á svæðið og huga að fráveitu og er því hagkvæmt að ganga alla leið og byggja upp metnaðarfulla og skjólgóða framtíðarlausn fremur en bráðabirgðaaðstöðu. Nafirnar eru með frábært útsýni yfir fjörðinn sem býður upp á tækifæri til að skapa eftirsótta upplifun fyrir ferðamenn sem sækja svæðið heim.

Skipulagsnefnd - 95. fundur - 16.04.2026

Lögð fram skipulagslýsing fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki.
Uppdráttur ásamt greinargerð, verknúmer SSDS-22033C, dags. 15.04.2026 unnin á
Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.

Helsta markmið deiliskipulagsins er að setja fram stefnu um umgjörð og skipulag fyrir nýtt tjaldsvæði á Sauðárkróki þar sem fyrirhugað er að núverandi tjaldsvæði á Flæðum víki vegna uppbyggingar menningarhúss.
Nýju tjaldsvæði er ætlað að bjóða upp á fjölbreytt og rúmgott svæði til að taka á móti þeim fjölda tjaldsgesta sem koma ár hvert. Einnig er gert ráð fyrir að tjaldsvæðið getið byggst upp í áföngum og stækkað en skipulaginu er ætlað að skapa ramma um uppbyggingu til lengri tíma. Unnin var frumhönnun af svæðinu árið 2024 samhliða staðarvali við vinnslu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 og byggir skipulagið að hluta til á þeirri vinnu.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa skipulagslýsinguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra situr hjá við afgreiðslu málsins.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Vísað frá 95. fundi skipulagsnefndar frá 16. apríl sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram skipulagslýsing fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki.
Uppdráttur ásamt greinargerð, verknúmer SSDS-22033C, dags. 15.04.2026 unnin á
Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.

Helsta markmið deiliskipulagsins er að setja fram stefnu um umgjörð og skipulag fyrir nýtt tjaldsvæði á Sauðárkróki þar sem fyrirhugað er að núverandi tjaldsvæði á Flæðum víki vegna uppbyggingar menningarhúss.
Nýju tjaldsvæði er ætlað að bjóða upp á fjölbreytt og rúmgott svæði til að taka á móti þeim fjölda tjaldsgesta sem koma ár hvert. Einnig er gert ráð fyrir að tjaldsvæðið getið byggst upp í áföngum og stækkað en skipulaginu er ætlað að skapa ramma um uppbyggingu til lengri tíma. Unnin var frumhönnun af svæðinu árið 2024 samhliða staðarvali við vinnslu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 og byggir skipulagið að hluta til á þeirri vinnu.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa skipulagslýsinguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra situr hjá við afgreiðslu málsins."

Sveitarstjórn samþykkir, með sjö atkvæðum að auglýsa skipulagslýsinguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar VG og óháðra sitja við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd - 99. fundur - 28.05.2026

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, mál nr. 485/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/485 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 29.04.2026- 21.05.2026 og bárust 4 umsagnir.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

Skipulagsnefnd - 102. fundur - 09.07.2026

Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 24.06.2026, verknr. SSDS-2203C unnin af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Hönnuðurinn sat fundarliðinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir vinnslutillöguna.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
Tel ég framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki vera á Nöfunum, í ljósi útivistarperlunnar sem þar liggur. Einnig tel ég þessa fyrirhuguðu staðsetningu tæplega rekstrarhæfa og óheppilega staðsetningu í ljósi núverandi reksturs og háhraða umferðar í nálægð svæðisins.

Ingvar Daði Jóhannsson fulltrúi Byggðalistans, Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helga Þórsdóttir fulltrúi Framsóknar óska bókað:
Við viljum benda á að vitað er um mismunandi skoðanir varðandi framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki. Vilji er til að auglýsa framkomna vinnslutillögu til að ná fram skýrum vilja almennings og annarra hagsmunaaðila og taka upplýsta ákvörðun varðandi framhaldið eftir auglýsingu vinnslutillögunnar.

Gestir

  • Arnar Birgir Ólafsson

Byggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026

Mál tekið fyrir með afbrigðum.
Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
„Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 24.06.2026, unnin af Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir „Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir „Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt áréttar meirhluti byggðarráðs að með auglýsingu tillögunnar sé ekki tekin afstaða til framtíðarstaðsetningar tjaldsvæðis á Sauðárkróki.

Skipulagsnefnd - 104. fundur - 20.08.2026

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir "Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki", mál nr. 485/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/485 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 22.07.2026- 16.08.2026, alls bárust 4 umsagnir.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.

Gestir

  • Arnar Birgir Ólafsson

Skipulagsnefnd - 105. fundur - 03.09.2026

Málið var áður á dagskrá 104. fundar skipulagsnefndar þann 20.08.2026 þar sem farið var yfir umsagnir sem bárust við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki. Afgreiðslu málsins þá frestað.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna.

Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
Tel ég framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki vera á Nöfunum, í ljósi útivistarperlunnar sem þar liggur. Einnig tel ég þessa fyrirhuguðu staðsetningu tæplega rekstrarhæfa og óheppilega í ljósi núverandi reksturs og háhraða umferðar í nálægð svæðisins. Óska ég eftir skýrri afstöðu meirihlutans hvað varðar deiliskipulagið og staðsetninguna.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 53. fundur - 16.09.2026

Vísað frá 105. fundi skipulagsnefndar frá 3. september sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:

"Málið var áður á dagskrá 104. fundar skipulagsnefndar þann 20.08.2026 þar sem farið var yfir umsagnir sem bárust við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki. Afgreiðslu málsins þá frestað.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna."

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun og tillögu:
"Í gildandi Aðalskipulagi fyrir Skagafjörð fyrir árin 2025-2040, sem var samþykkt af sveitarstjórn Skagafjarðar 15. október 2025, var gert ráð fyrir nýju almennu tjaldsvæði við Borgargerði, austan Ársala. Jafnframt var ákveðið að tjaldsvæðið á Nöfum yrði áfram tjaldsvæði sem yrði nýtt þegar stórir íþróttaviðburðir væru haldnir. Í framhaldinu var farið af stað með samþykki sveitarstjórnar í deiliskipulagsgerð af svæðinu. En núna þegar sú vinna er á lokametrunum ákveður núverandi meirihluti að klára hana ekki þrátt fyrir að búið sé að ganga frá skipulagslýsingunni og auglýsa vinnslutillöguna. Einungis fjórar athugasemdir bárust við vinnslutillöguna og eru þær allar frá opinberum fyrirtækjum og telst engin þeirra stórvægileg. Engar athugasemdir bárust frá almenningi.

Þar sem búið er að leggja í bæði mikinn kostnað og vinnu við að gera þetta deiliskipulag teljum við að skynsamlegast væri að klára deiliskipulagið og eiga þannig fullgilt deiliskipulag af þessum reit. Þannig yrði reiturinn líka verðmætari í þeirri umræðu sem er um sölu á rekstri þeirra tjaldsvæða sem sveitarfélagið rekur í dag. Við leggjum því til við sveitarstjórn að hún samþykki að snúa við ákvörðun skipulagsnefndar frá 3. september sl. og samþykki að umrædd deiliskipulagsvinna verði kláruð.

Einar E. Einarsson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir, fulltrúar Framsóknar í sveitarstjórn."

Stutt hlé var gert á fundinum.

Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar. Hún er felld með sex atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Byggðalistans, Högni Elfar Gylfason situr hjá við afgreiðslu málsins.

Eyþór Fannar Sveinsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta:
"Meirihluti ítrekar að verið sé að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Þá verður málið tekið til frekari umfjöllunar þegar fyrir liggja skýrari forsendur um framtíðarrekstur svæðanna."

Sveitarstjórn samþykkir, með sjö atkvæðum, að fresta deiliskipulagsvinnu á meðan unnið er að mótun framtíðarfyrirkomulags reksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagsins. Fulltrúar Framsóknarflokks greiða atkvæði gegn tillögunni.