Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
2.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag
Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer
Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag og ásamt aðalskipulagsbreytingu fyrir Furulund 3-7 í Varmahlíð, uppdráttur nr. SL01, verknúmer 56293200, dags. 14.04.2026 unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Furulundur í Varmahlíð er íbúðarhverfi sem liggur í stórum trjálundi, starfræktur var leikskóli í Furulundi 3 en sú starfsemi hefur verið flutt á lóð Varmahlíðarskóla við Birkimel. Á lóð nr. 5 við Furulund er annað hús í eigu sveitarfélagsins sem ekki er í notkun. Fyrir hluta lóðanna á svæðinu hefur hnitsett afmörkun ekki legið fyrir og ekkert deiliskipulag í gildi. Markmið fyrirhugaðrar deiliskipulagstillögu er að skilgreina lóðarmörk, byggingarreiti og skipulagsskilmála. Skipulagssvæðið er um 5.633 m² að stærð.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa aðalskipulagsbreytingu og skipulagslýsingu fyrir deiliskipulag “Furulund 3-7 í Varmahlíð" í samræmi við 36. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki
Málsnúmer 2602106Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá á 94. fundi skipulagsnefndar þann 26.03.2026, þá bókað:
"Á fundinn komu Viggó Jónsson og Örn Arnarsson (í gegnum fjarfundarbúnað) á fund skipulagsnefndar til að kynna framtíðarsýn þeirra fyrir uppbyggingu á Flæðum á Sauðárkróki og leggja jafnframt fram umsókn um úthlutun tveggja lóða á Flæðum, annars vegar undir byggingu hótels og hins vegar undir byggingu skrifstofuhótels. Skipulagsnefnd fagnar áhuga á uppbyggingu atvinnustarfsemi og hótelreksturs á Sauðárkróki en bendir á að í því deiliskipulagi sem nú er í vinnslu fyrir Flæðarnar á Sauðárkróki er ekki gert ráð fyrir fleiri byggingarreitum á því svæði en undir byggingu nýs menningarhúss og byggingu á lóð vestan við Faxatorg 1. Skipulagsnefnd lýsir sig reiðubúna til samtals varðandi byggingu skrifstofuhótels og hótels á Sauðárkróki. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að fresta erindi um lóðarumsóknir og óskar eftir frekari gögnum frá umsækjendum í samræmi við umræður á fundinum."
Frekari gögn hafa borist frá umsækjendum sem sýna skuggavarpsteikningar fyrir tillögu að mögulegri uppbyggingu hótels á Faxatorgi.
Skipulagsnefnd hafnar umbeðinni staðsetningu fyrir hótelbyggingu á Faxatorgi vegna ætlaðs skuggavarps á Suðurgötuna og felur skipulagsfulltrúa að funda með umsækjendum til að ræða aðrar mögulegar staðsetningar.

4.Stóru-Akrar II L207335 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2604063Vakta málsnúmer
Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 13. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Vigfús Halldórsson byggingarfræðingi, f.h. eiganda lóðarinnar Stóru-Akra II Land L207335.
Umsókn um leyfi til að byggja við íbúðarhús sem stendur á lóðinni Stóru-Akrar II Land L207335. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-01, númer A100, A101, A102 og A001 dagsettir 13.04.2026. Meðfylgjandi umsögn eiganda Stóru-Akrar 1, L146342 og Stóru-Akrar 1 lóð, L214946, dagsett 12.04.2026.
Með umsókninni fylgir greingargerð frá Sigurði Björnssyni fyrir hönd landeigenda sem lýsir fyrirhugaðri framkvæmd og fyrirsjáanlegum áhrifum hennar á umhverfið.
Skilað verður inn samþykki Þjóðminjasafn Íslands vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946.
Fram kemur í erindi byggingarfulltrúa að óskað hafi verið eftir umsögn frá Þjóðminjasafni Íslands og skv. tölvupósti frá umsækjanda einnig frá Minjastofnun vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að fela skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fengnum þeim umsögnum.

5.Hvammur L146574 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.
Málsnúmer 2603215Vakta málsnúmer
Málið áður á dagskrá á 94. fundi skipulagsnefndar þann 26.03.2026, þá bókað:
"Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Guðmundi Þór Guðmundssyni byggingarfræðingi, f.h. Sölku Völku eldhús ehf. Umsókn um leyfi til að byggja við sumarhús sem stendur á lóðinni Hvammi L146574 í Deildardal. Núverandi fjarlægð sumarhús frá Deildardalsvegi er 39 metrar, en viðbyggingin yrði 35 metra frá miðlínu vegar. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir eru í verki 0126, númer A01, A02 og A03, dagsettir 30.01.2026. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og jafnframt fela skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjendum."
Þann 11. og 12. apríl sl. bárust frekari gögn frá umsækjendum og rökstuðningur fyrir undanþágubeiðni frá fjarlægðarákvæði d-liðar 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 sem kveður á um að fjarlægð íbúðar- eða frístundahúsa frá stofn- og tengivegum hér Deildardalsvegi (tengivegur) skuli ekki vera minni en 50 m.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða, með hliðsjón af frekari rökstuðningi, að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félagsmála- og húsnæðisráðuneytis frá d-liðar 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 vegna 50 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Deildardalsvegi. Verði það leyfi veitt hjá Félagsmála- og húsnæðisráðuneytinu er skipulagsfulltrúa falið að afgreiða umbeðinn byggingarreit.

6.Helgustaðir L223795 - Umsókn um byggingarreit - Sauðburðarskýli
Málsnúmer 2511030Vakta málsnúmer
Guðjón Magnússon og Helga Óskarsdóttir, þinglýstir eigendur jarðarinnar Helgustaða í Hegranesi, landnúmer 223795, óska eftir heimild til að byggja sauðburðarskýli innan núverandi byggingareits sem samþykktur var á 431. fundi skipulags- og bygginganefndar þann 13.04.2022. Samkvæmt aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 í kafla um almenn skipulagsákvæði um landnotkun á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemi eins og í þessu tilfelli.
Ekki er verið að sækja um sérstaka lóð undir umrætt skýli þar sem nóg rými er undir bygginguna á núverandi byggingarreit. Fjöldi bygginga yrði þá þrjár í allt á landinu með væntanlegu skýli.
Bygging þessi nýtist sem viðbót við núverandi fjárhús og stendur nærri því og því ekki veruleg hætta á lyktarmengun að núverandi íbúðarhúsi.
Ekki verður gerður nýr vegur að væntanlegu skýli þar sem hann er nú þegar til staðar að núverndi fjárhúsi en þó verður lagður rafstrengur í jörð í skýlið fyrir ljós. Byggingaráform þessi varða ekki hagsmuni annara en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Meðfylgjandi er aðaluppdráttur af væntanlegu skýli gert af Guðmundi Þór Guðmundssyni teikningar nr. 01 og 02 í verki nr. 1225, dags 05.12.2025.
Einnig er meðfylgjandi loftmynd nr. 1.01 í mælikvarða 1:500 sem sýnir staðsetningu skýlis inn núverandi byggingareits eftir sama hönnuð og í sama verki, dags. 26.03.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

7.Ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands vegna fyrirhugaðrar breytingar á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar
Málsnúmer 2603299Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf frá Skógræktarfélagi Íslands, dagsett 28. mars 2026. Í bréfinu er ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands komið á framfæri. Ályktun fundarins beinist að breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla (157. löggjafarþing, mál 265, þskj.949). Leggst fulltrúafundur Skógræktarfélagsins gegn því að mörk tilkynningarskyldu verði lækkuð úr 200 hekturum niður í 100 hektara og telur slíkt vera afturför í viðleitni til eflingar skógræktar og landgæða á Íslandi.
8.Borgarteigur 6 - Lóðarmál - Beiðni um frestun framkvæmda
Málsnúmer 2604077Vakta málsnúmer
Ágúst Andrésson fyrir hönd Norðar ehf. lóðarhafa Borgarteigs 6 óskar eftir fresti til að hefja framkvæmdir á lóðinni til og með 14. ágúst næstkomandi.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að veita umbeðinn frest til framkvæmda til og með 14.08.2026.

9.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 82
Málsnúmer 2603033FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 82 þann 01.04.2026.
10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 83
Málsnúmer 2604012FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 83 þann 14.04.2026.
Fundi slitið - kl. 14:00.
Uppdráttur ásamt greinargerð, verknúmer SSDS-22033C, dags. 15.04.2026 unnin á
Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Helsta markmið deiliskipulagsins er að setja fram stefnu um umgjörð og skipulag fyrir nýtt tjaldsvæði á Sauðárkróki þar sem fyrirhugað er að núverandi tjaldsvæði á Flæðum víki vegna uppbyggingar menningarhúss.
Nýju tjaldsvæði er ætlað að bjóða upp á fjölbreytt og rúmgott svæði til að taka á móti þeim fjölda tjaldsgesta sem koma ár hvert. Einnig er gert ráð fyrir að tjaldsvæðið getið byggst upp í áföngum og stækkað en skipulaginu er ætlað að skapa ramma um uppbyggingu til lengri tíma. Unnin var frumhönnun af svæðinu árið 2024 samhliða staðarvali við vinnslu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 og byggir skipulagið að hluta til á þeirri vinnu.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa skipulagslýsinguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra situr hjá við afgreiðslu málsins.