Fara í efni

Stóru-Akrar II L207335 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2604063

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 95. fundur - 16.04.2026

Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 13. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Vigfús Halldórsson byggingarfræðingi, f.h. eiganda lóðarinnar Stóru-Akra II Land L207335.
Umsókn um leyfi til að byggja við íbúðarhús sem stendur á lóðinni Stóru-Akrar II Land L207335. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-01, númer A100, A101, A102 og A001 dagsettir 13.04.2026. Meðfylgjandi umsögn eiganda Stóru-Akrar 1, L146342 og Stóru-Akrar 1 lóð, L214946, dagsett 12.04.2026.
Með umsókninni fylgir greingargerð frá Sigurði Björnssyni fyrir hönd landeigenda sem lýsir fyrirhugaðri framkvæmd og fyrirsjáanlegum áhrifum hennar á umhverfið.
Skilað verður inn samþykki Þjóðminjasafn Íslands vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946.

Fram kemur í erindi byggingarfulltrúa að óskað hafi verið eftir umsögn frá Þjóðminjasafni Íslands og skv. tölvupósti frá umsækjanda einnig frá Minjastofnun vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að fela skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fengnum þeim umsögnum.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Vísað frá 95. fundi skipulagsnefndar frá 16. apríl sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 13. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Vigfús Halldórsson byggingarfræðingi, f.h. eiganda lóðarinnar Stóru-Akra II Land L207335.
Umsókn um leyfi til að byggja við íbúðarhús sem stendur á lóðinni Stóru-Akrar II Land L207335. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-01, númer A100, A101, A102 og A001 dagsettir 13.04.2026. Meðfylgjandi umsögn eiganda Stóru-Akrar 1, L146342 og Stóru-Akrar 1 lóð, L214946, dagsett 12.04.2026.
Með umsókninni fylgir greingargerð frá Sigurði Björnssyni fyrir hönd landeigenda sem lýsir fyrirhugaðri framkvæmd og fyrirsjáanlegum áhrifum hennar á umhverfið.
Skilað verður inn samþykki Þjóðminjasafn Íslands vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946.

Fram kemur í erindi byggingarfulltrúa að óskað hafi verið eftir umsögn frá Þjóðminjasafni Íslands og skv. tölvupósti frá umsækjanda einnig frá Minjastofnun vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að fela skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fengnum þeim umsögnum."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fengnum umsögnum frá Þjóðminjasafni Íslands og frá Minjastofnun vegna Stóru-Akrar 1 lóð, L214946.