Guðjón Magnússon og Helga Óskarsdóttir, þinglýstir eigendur jarðarinnar Helgustaða í Hegranesi, landnúmer 223795, óska eftir heimild til að byggja sauðburðarskýli innan núverandi byggingareits sem samþykktur var á 431. fundi skipulags- og bygginganefndar þann 13.04.2022. Samkvæmt aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 í kafla um almenn skipulagsákvæði um landnotkun á landbúnaðarsvæðum er gert ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við landbúnaðarstarfsemi eins og í þessu tilfelli.
Ekki er verið að sækja um sérstaka lóð undir umrætt skýli þar sem nóg rými er undir bygginguna á núverandi byggingarreit. Fjöldi bygginga yrði þá þrjár í allt á landinu með væntanlegu skýli.
Bygging þessi nýtist sem viðbót við núverandi fjárhús og stendur nærri því og því ekki veruleg hætta á lyktarmengun að núverandi íbúðarhúsi.
Ekki verður gerður nýr vegur að væntanlegu skýli þar sem hann er nú þegar til staðar að núverndi fjárhúsi en þó verður lagður rafstrengur í jörð í skýlið fyrir ljós. Byggingaráform þessi varða ekki hagsmuni annara en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Meðfylgjandi er aðaluppdráttur af væntanlegu skýli gert af Guðmundi Þór Guðmundssyni teikningar nr. 01 og 02 í verki nr. 1225, dags 05.12.2025.
Einnig er meðfylgjandi loftmynd nr. 1.01 í mælikvarða 1:500 sem sýnir staðsetningu skýlis inn núverandi byggingareits eftir sama hönnuð og í sama verki, dags. 26.03.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.