Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki
Málsnúmer 2602106
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 94. fundur - 26.03.2026
Gestir
- Viggó Jónsson
- Örn Arnarsson
Skipulagsnefnd - 95. fundur - 16.04.2026
Málið áður á dagskrá á 94. fundi skipulagsnefndar þann 26.03.2026, þá bókað:
"Á fundinn komu Viggó Jónsson og Örn Arnarsson (í gegnum fjarfundarbúnað) á fund skipulagsnefndar til að kynna framtíðarsýn þeirra fyrir uppbyggingu á Flæðum á Sauðárkróki og leggja jafnframt fram umsókn um úthlutun tveggja lóða á Flæðum, annars vegar undir byggingu hótels og hins vegar undir byggingu skrifstofuhótels. Skipulagsnefnd fagnar áhuga á uppbyggingu atvinnustarfsemi og hótelreksturs á Sauðárkróki en bendir á að í því deiliskipulagi sem nú er í vinnslu fyrir Flæðarnar á Sauðárkróki er ekki gert ráð fyrir fleiri byggingarreitum á því svæði en undir byggingu nýs menningarhúss og byggingu á lóð vestan við Faxatorg 1. Skipulagsnefnd lýsir sig reiðubúna til samtals varðandi byggingu skrifstofuhótels og hótels á Sauðárkróki. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að fresta erindi um lóðarumsóknir og óskar eftir frekari gögnum frá umsækjendum í samræmi við umræður á fundinum."
Frekari gögn hafa borist frá umsækjendum sem sýna skuggavarpsteikningar fyrir tillögu að mögulegri uppbyggingu hótels á Faxatorgi.
Skipulagsnefnd hafnar umbeðinni staðsetningu fyrir hótelbyggingu á Faxatorgi vegna ætlaðs skuggavarps á Suðurgötuna og felur skipulagsfulltrúa að funda með umsækjendum til að ræða aðrar mögulegar staðsetningar.

Skipulagsnefnd - 101. fundur - 25.06.2026
Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.
Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.
Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026
Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Vísað frá 101. fundi skipulagsnefndar frá 25. júní sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.
Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.
Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022."
Forseti gerði að tillögu sinni að málinu yrði vísað til byggðarráðs.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með átta atkvæðum.
Stutt hlé gert á fundi.

Byggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026
Viggó Jónsson og Örn Arnarsson kynntu hugmyndir sínar um uppbyggingu hótels og skrifstofubyggingar á Flæðunum á Sauðárkróki. Málið tengist umsókn þeirra um þróunarreit fyrir verkefnið. Farið var yfir þau svæði sem helst koma til greina fyrir slíka starfsemi á Sauðárkróki og rætt um möguleika og forsendur uppbyggingar.
Byggðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
Byggðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
Byggðarráð Skagafjarðar - 203. fundur - 21.07.2026
Vísað frá 51. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026 til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Vísað frá 101. fundi skipulagsnefndar frá 25. júní sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.
Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.
Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022."
Forseti gerði að tillögu sinni að málinu yrði vísað til byggðarráðs.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með átta atkvæðum.
Byggðarráð þakkar fyrir framlagða umsókn um úthlutun tveggja lóða á Sauðárkróki og fagnar þeim áhuga sem umsækjendur sýna uppbyggingu atvinnustarfsemi og ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Umsóknin er tvíþætt og er því afgreidd í tveimur aðskildum liðum.
1. Óstofnuð lóð norðan og vestan við Sundlaug Sauðárkróks
Svæðið sem um ræðir er innan deiliskipulagðs svæðis þar sem ekki er gert ráð fyrir frekara byggingarmagni eða nýjum byggingarreit fyrir þá starfsemi sem umsóknin tekur til. Fyrirhuguð staðsetning er jafnframt á mikilvægu svæði milli sundlaugarinnar og lóðar undir fyrirhugað menningarhús og er ekki talin samræmast þeirri heildarsýn sem lögð hefur verið til grundvallar við þróun svæðisins.
Í umsókn er vísað til 8. gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða. Byggðarráð telur að heimildarákvæði greinarinnar sé fyrst og fremst ætlað að skapa möguleika til undantekninga þegar sérstakar málefnalegar ástæður eða sérstakar aðstæður réttlæta frávik frá hefðbundnu úthlutunarferli. Byggðarráð telur ekki að slíkar sérstakar aðstæður séu fyrir hendi í þessu tilviki sem réttlæta úthlutun lóðar á svæði þar sem hvorki er gert ráð fyrir byggingarreit né frekari uppbyggingu samkvæmt gildandi skipulagi.
Þá telur byggðarráð að viðbótarbygging á þessu svæði falli illa að þeirri ásýnd og skipulagslegu heild sem verið er að móta á svæðinu í kringum sundlaugina og fyrirhugað menningarhús. Ekki verður séð að byggingin samræmist þeim markmiðum sem liggja að baki uppbyggingu svæðisins eða bæti heildarmynd þess.
Með vísan til framangreinds samþykkir byggðarráð samhljóða að hafna erindinu.
2. Faxatorg 2 og möguleg sameining Faxatorgs 1 og 2
Byggðarráð tekur mjög jákvætt í þann áhuga sem umsækjendur sýna uppbyggingu hótels á Sauðárkróki. Ljóst er að þörf er fyrir aukið gistirými í sveitarfélaginu og telur byggðarráð að frekari uppbygging á því sviði geti haft jákvæð áhrif á atvinnulíf, ferðaþjónustu og þróun miðbæjarins.
Hins vegar vísar byggðarráð til fyrri afgreiðslna skipulagsnefndar vegna fyrri erinda frá umsækjendum þar sem umbeðinni staðsetningu fyrir hótelbyggingu á Faxatorgi var hafnað. Í þeirri afgreiðslu var sérstaklega vísað til áhrifa fyrirhugaðs byggingarmagns og hæðar húss á nærliggjandi byggð, meðal annars vegna skuggavarps á Suðurgötu.
Þá liggja fyrir skipulagsforsendur fyrir lóðinni Faxatorgi 2 samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Lóðin er 1.151 m² að stærð en byggingarreitur hennar er 716 m². Hámarks byggingarmagn á lóðinni er 1.000 m², hámarks nýtingarhlutfall 0,87, hámarkshæð byggingar 8 metrar og hámarksfjöldi hæða tvær. Byggðarráð telur að þær hugmyndir sem fram koma í umsókninni rúmist ekki innan þessara skipulagsforsendna og að lóðin geti ekki borið það byggingarmagn og þá hæð sem umsækjendur horfa til.
Jafnframt er í umsókn gert ráð fyrir hugsanlegri sameiningu lóðanna Faxatorg 1 og Faxatorg 2. Sveitarfélagið er eigandi að fasteigninni á Faxatorgi 1 og er sú eign nú í virku söluferli. Ekki er því unnt að fallast á slíka sameiningu eða skuldbinda sveitarfélagið til ráðstöfunar eignarinnar með þeim hætti, enda myndi það hafa veruleg áhrif á söluferli hennar, nýtingarmöguleika og verðmæti.
Byggðarráð lýsir þó yfir vilja til áframhaldandi samtals við umsækjendur um uppbyggingu hótels á Sauðárkróki og er reiðubúið til að vinna með þeim að því að finna hentugri staðsetningu fyrir verkefnið í samræmi við skipulagsforsendur sveitarfélagsins og í góðu samráði við umsækjendur.

Skipulagsnefnd fagnar áhuga á uppbyggingu atvinnustarfsemi og hótelreksturs á Sauðárkróki en bendir á að í því deiliskipulagi sem nú er í vinnslu fyrir Flæðarnar á Sauðárkróki er ekki gert ráð fyrir fleiri byggingarreitum á því svæði en undir byggingu nýs menningarhúss og byggingu á lóð vestan við Faxatorg 1. Skipulagsnefnd lýsir sig reiðubúna til samtals varðandi byggingu skrifstofuhótels og hótels á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að fresta erindi um lóðarumsóknir og óskar eftir frekari gögnum frá umsækjendum í samræmi við umræður á fundinum.