Sveitarstjórn Skagafjarðar
1.Byggðarráð Skagafjarðar - 197
Málsnúmer 2606001FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Lögð voru fram drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Erindisbréf byggðarráðs, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 26. maí 2026 frá Halldóri Gunnlaussyni, framkvæmdastjóra Farskólans. Í tölvupóstinum er boðað til aðalfundar Farskólans sem haldinn verður fimmtudaginn 11. júní næstkomandi klukkan 14:00 í húsnæði Farskólans við Faxatorg. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Eitt kauptilboð hefur borist í eignina Háholt, fasteignanúmer F2241037.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna tilboðinu og felur Evu Dögg Bergþórsdóttur hjá Fasteignasölu Sauðárkróks að svara tilboðinu. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 93/2026, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)".
Umsagnarfrestur er til og með 19.06.2026.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að ráðist sé í vinnu við endurskoðun hafnalaga og tekur undir mikilvægi þess að skýra lagagrundvöll gjaldtöku hafna.
Hafnir gegna lykilhlutverki í innviðum landsins og eru undirstaða atvinnulífs víða um land. Þá eru hafnir mikilvægar fyrir þróun ferðaþjónustu með móttöku skemmtiferðaskipa, sér í lagi á svæðum sem eru utan alfararleiðar. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hafnir geti staðið undir fjárfestingum í uppbyggingu mannvirkja til að styðja við framtíðartækifæri í atvinnuþróun viðkomandi svæða.
Í þessu samhengi bendir byggðarráð á að hafnarmannvirki eru fjárfrekir innviðir þar sem uppbygging, viðhald og endurnýjun mannvirkja krefst verulegrar langtímafjárfestingar sem erfitt er að standa undir eingöngu með rekstrartekjum, sérstaklega í smærri byggðarlögum. Hafnarbótasjóður gegnir þar lykilhlutverki við að jafna aðstöðu hafna og tryggja að unnt sé að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir þrátt fyrir mismunandi rekstrarforsendur og tekjugrunn.
Byggðarráð leggur áherslu á að samhliða skýrari heimildum til gjaldtöku verði tryggt að fjármögnunarumhverfi hafna sé heildstætt og stöðugt, þar sem samspil tekna hafnarsjóða og framlaga úr Hafnabótasjóði gerir höfnum kleift að fjárfesta í uppbyggingu til framtíðar. Nauðsynlegt er að ríkið tryggi sjóðnum nægilegt fjármagn til að unnt sé að standa undir mótframlögum til fjárfestinga í hafnarmannvirkjum, enda eru slík verkefni forsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar.
Byggðarráð bendir þá einnig á að hafnir eru sér skipulagssvæði. Hagræða mætti í stjórnsýslu sveitarfélaga ef skipulagsmál sveitarfélagsins í heild væru á einni hendi, það er skipulagsnefndar hvers sveitarfélags fyrir sig.
Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Lagður fram tölvupóstur frá Jafnréttisstofu dagsettur 27. maí 2026. Í tölvupóstinum er boðað til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður í Múlabergi á Akureyri, fimmtudaginn 17. september 2026 milli klukkan 9:30 til 15:00. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
2.Byggðarráð Skagafjarðar - 198
Málsnúmer 2606008FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 198 Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað undir þessum lið.
Hólmfríður kynnti hugmyndir um að koma á fót nýju rannsóknarsetri HÍ á Hólum með áherslu á rannsóknir á íslenska hestinum.
Byggðarráð þakkar Hólmfríði fyrir góða kynningu og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við rektor. Bókun fundar Afgreiðsla 198. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 198 Lögð var fram beiðni um viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2026.
Í framlögðum viðauka er gert ráð fyrir 1,6 m.kr. útgjöldum vegna tölvukaupa fyrir kjörna fulltrúa, 2 m.kr. útgjöldum vegna milliuppgjörs fjárhags sveitarfélagsins í kjölfar eignabreytinga ásamt áætluðum kostnaði að upphæð 5 m.kr. við framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst næstkomandi og 5 m.kr. endurgreiðslu ríkisins fyrir framangreindri þjóðaratkvæðagreiðslu. Samtals 3,2 m.kr. rekstrarviðauki.
Einnig eru framkvæmdir við klæðningu vesturhliðar A-álmu Árskóla áætlaðar 11,4 m.kr. auk 4,2 m.kr. til hönnunar og uppsetningar útboðsgagna vegna framkvæmda við Grundarstíg á Sauðárkróki.
Niðurstaða viðaukans er lækkun á handbæru fé um 18,8 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 198 Umræður voru teknar um forsendur rammaáætlunar 2027.
Lagt er til að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands um hækkun verðlags á rekstrarliðum. Launaliður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum.
Í ljósi þess að fasteignamat hækkar einungis að meðaltali um 2,8% sem er umtalsvert undir verðbólguspám er gert ráð fyrir því að álagningarstuðlar haldist óbreyttir.
Grunnur rammaáætlunar verður samþykkt fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2026 með þeim viðaukum sem hafa verið samþykktir við stofnun rammans.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 198. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 198 Lagður var fram tölvupóstur frá Kristínu Bjarnadóttur, formanns sóknarnefndar Hofsóskirkju, dagsettur 16. júní 2026.
Í tölvupóstinum fer Kristín þess á leit við sveitarfélagið að sveitarfélagið taki þátt í efniskostnaði vegna efnis í kirkjugarðsstígs frá Hofsóskirkju að kirkjugarðinum, með vísan til 13. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Kostnaður vegna efnis og flutnings er 1,5 m.kr. Byggðarráð áréttar að vegna kostnaðarþátttöku sveitarfélags skal umsókn berast sveitarfélaginu ekki síðar en í september árinu áður.
Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að tryggja fjármagnið í fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 198. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
3.Byggðarráð Skagafjarðar - 199
Málsnúmer 2606019FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 199 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 199. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 199 Lögð voru fram drög að samkomulagi milli Háskóla Íslands á Hólum, sveitarfélagsins Skagafjarðar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um stofnun Rannsóknarseturs íslenska hestsins.
Í samkomulaginu er lagt til að sameina Sögusetur íslenska hestsins og Akademíu íslenska hestsins, sem hvoru tveggja er staðsett á Hólum, í Rannsóknasetur íslenska hestsins á Hólum, sem verður 14. setur Stofnunar rannsóknarsetra HÍ. Lagt er til að Rannsóknasetur íslenska hestsins verði staðsett í húsnæði Hestafræðideildar Háskóla Íslands á Hólum. Mun þetta rannsóknarsetur leggja sérstaka áherslu á rannsóknir tengdar íslenska hestinum.
Ráðuneytið leggur til fjármögnun vegna stofnunar og reksturs setursins, en sveitarfélagið Skagafjörður leggur til árlegt framlag til ráðningar verkefnastjóra í hálft starf. Háskóli Íslands á Hólum ber ábyrgð á faglegri uppbyggingu setursins í samráði við hagaðila.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 199. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 199 Eyþór Fannar Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lögð fram umsókn frá Bílaklúbbi Skagafjarðar, dagsett 12. júní 2026, þar sem sótt er um leyfi til að halda rallaksturskeppni í Skagafirði 25. júlí nk. Keppnin er fjórða keppnin í Íslandsmeistaramóti Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) og fer fram í samræmi við reglur AKÍS og reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir, með áorðnum breytingum. Ráðgert er að keppnin fari fram með hefðbundnu sniði og eknar verði sérleiðir um þá vegi sem verið hefur undanfarin ár. Þannig verði farnar sérleiðir um Mælifellsdal og Vesturdal.
Byggðarráð samþykkir erindið með tveimur atkvæðum fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt. Bókun fundar Eyþór Fannar Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.
Afgreiðsla 199. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 199 Lögð voru fram drög að uppfærðri samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Í upphafi kjörtímabils hefur aðalmönnum staðið til boða styrkur til tækjakaupa. Lagt er til að formfesta heimild til tækjakaupa að upphæð 170.000 króna.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa í Skagafirði og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Skagafirði, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
4.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47
Málsnúmer 2606012FVakta málsnúmer
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Sveitarstjóri setti fundinn og lagði fram tillögu um Davíð Loga Jónsson sem formann, Guðbjörgu Konráðsdóttur sem varaformann og Sylvíu Sif Halldórsdóttur sem ritara nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Formaður tók við fundarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Umræður um svarbréf frá umsækjendum um rekstur á Félagsheimilinu Ljósheimum. Umsækjendur sendu inn erindi þar sem óskað er eftir öðrum forsendum en tilgreind voru í framlögðum samningi.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni umsækjenda og felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Lagt fram erindi frá Guðrúnu Kristínu Eiríksdóttur, dags. 9. júní 2026 þar sem hún óskar eftir úrsögn úr hússtjórn Félagsheimilisins Melsgils.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða úrsögn Guðrúnar Kristínu úr hússtjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Lagt fram til kynningar skjal frá Markaðsstofu Norðurlands, dags. 21. apríl 2026, þar sem greint er frá því helsta í starfi Flugklasans Air 66N undanfarna mánuði.
Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Lagt fram erindi frá Stefáni Boga Sveinssyni formanni, f.h. framkvæmdastjórnar MHR, dags. 11. júní 2026. Boðað er til aðalfundar MHR (Miðstöðvar héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu) sem fram fer fimmtudaginn 25. júní nk.
Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
5.Fræðslunefnd - 49
Málsnúmer 2606015FVakta málsnúmer
-
Fræðslunefnd - 49 Sveitarstjóri bar upp eftirfarandi tillögu um kjör formanns, varaformanns og ritara fræðslunefndar: Lagt er til að Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi L-lista verði kjörin formaður, Rósanna Valdimarsdóttir fulltrúi D-lista varaformaður og Elfa Björk Víðisdóttir fulltrúi M-lista ritari. Sigurlína Erla Magnúsdóttir fulltrúi B-lista situr fundina sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Lögð voru fram drög að erindisbréfi fræðslunefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, erindisbréf fræðslunefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
-
Fræðslunefnd - 49 Tillaga að skóladagatölum grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu skólaráðanna skv. grunnskólalögum. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl grunnskólanna samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Tillaga að skóladagatölum leikskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu foreldraráða skv. lögum um leikskóla. Ársalir óska eftir að nýta tvo starfsdaga til námsferðar í maí 2027 og óska jafnframt eftir því að bæta við starfsdegi vegna ferðarinnar eins og tíðkast hefur þegar leikskólar fara í námsferð. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl leikskóla samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2026, sem eru eftirfarandi: 27. ágúst, 24. september, 29. október, 26. nóvember. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Lagður fram tölvupóstur dags. 10. júní 2026 þar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 99/2026, „Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla“. Umsagnarfrestur er til og með 8. júlí 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
6.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48
Málsnúmer 2606007FVakta málsnúmer
Hlé gert á fundi.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi og Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir tók við stjórn fundar. Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir bar fundarliði upp til afgreiðslu sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs setti fundinn í fjarveru sveitarstjóra.
Sviðsstjóri gerði tillögu um Guðlaug Skúlason sem formann nefndarinnar og Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur sem varaformann nefndarinnar.
Fleiri tilnefningar bárust ekki og skoðast þau því rétt kjörin.
Guðlaugur Skúlason tók við fundarstjórn að þessum lið afgreiddum. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Lögð voru fram drög að erindisbréfi landbúnaðar- og innviðanefndar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir erindisbréfið samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, erindisbréf landbúnaðar- og innviðanefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd austur Fljóta. Nefndina skipa;
Jóhannes Ríkharðsson Fjallskilastjóri
Brúnastaðir
Jón Elvar Númason Aðalmaður
Þrasastaðir
Ólafur Jónsson
Aðalmaður
Helgustaðir
Halldór Gunnar Hálfdánarson Varamaður
Molastaðir
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd vestur Fljóta og Hrolleifsdals. Nefndina skipa;
Kristófer Orri Hlynsson
Fjallskilastjóri Syðsti-Mór
Gestur Stefánsson
Aðalmaður
Arnarstöðum
Helgi Hjörvar Hjartarsson Aðalmaður Minni Reykjum
Arnþrúður Heimisdóttir
Varamaður
Langhús
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Hofsóss og Unadals. Nefndina skipa;
Erlingur Sigurðsson
Fjallskilastjóri Hugljótsstöðum
Bjarni Salberg Pétursson Aðalmaður
Mannskaðahóll
Jónas Þór Einarsson
Aðalmaður
Grund 2
Friðgeir Ingi Jóhannsson Varamaður
Suðurbraut 5, Hofsósi
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Deildardals. Nefndina skipa;
Rúnar Páll D.Hreinsson
Fjallskilastjóri Grindur
Jón Einar Kjartansson
Aðalmaður
Hlíðarendi
Sigmundur Jóhannesson
Aðalmaður
Miðhús
Gísli Gíslason
Varamaður
Þúfur
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Hegraness. Nefndina skipa;
Elvar Örn Birgisson
Fjallskilastjóri
Ríp
Jóhann Már Jóhannsson
Aðalmaður
Keflavík
Þórarinn Leifsson
Aðalmaður
Keldudalur
Sigfríður Sigurjónsdóttir Varamaður
Garður
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Skarðsdeildar. Nefndina skipa;
Úlfar Sveinsson
Fjallskilastjóri
Syðri-Ingveldarstaðir
Camilla Munk Sörensen
Aðalmaður
Fagranesi
Ásta Einarsdóttir
Aðalmaður
Veðramóti
Andrés Helgasson
Varamaður
Tungu
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Sauðárkróks. Nefndina skipa;
Stefán Öxndal Reynisson
Fjallskilastjóri Grundarstíg 2, Sauðárkróki
Ingólfur Geirsson Aðalmaður Bárustíg 14 550 Sauðarkrók
Þórarinn Hlöðversson
Varafjallskilastjóri
Þorbjörg Ágústsdóttir Varamaður Grundarstíg 2 Sauðárkróki
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Skaga. Nefndina skipa;
Steinn Leó Rögnvaldsson
Fjallskilastjóri Hraun
Bjarni Egilsson Aðalmaður Hvalnesi
Sveinfríður Á. Jónsdóttir Aðalmaður
Gauksstaðir
Merete Kristiansen Rabölle Varamaður
Hraun
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Staðardeildar. Nefndina skipa;
Linda Jónsdóttir
Fjallskilastjóri
Árgerði
Hrefna Hafsteinsdóttir Varafjallskilastjóri Hóli
Þröstur Erlingsson
Aðalmaður
Birkihlíð
Sæmundur Jónsson Varamaður Lyngási
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Seyludeildar - úthluta. Nefndina skipa;
Einar Kári Magnússon Fjallskilastjóri Garðhúsum
Bjarni Bragason
Aðalmaður Halldórstaðir
Ólafur Atli Sindrason
Aðalmaður
Grófargili
Ingimar Ingimarsson
Varamaður
Ytra-Skörðugil
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir með tveimur atkvæðum tillögu um skipan í fjallskilanefnd Seyludeildar-framhluta og Lýtingsstaðadeildar. Nefndina skipa;
Þórunn Eyjólfsdóttir Fjallskilastjóri Kvíholt
Björn Grétar Friðriksson Aðalmaður
Ytra-Vallholt
Sverrir Þór Þórarinsson Aðalmaður Gilhagi
Sara María Ásgeirsdóttir Varamaður Hamrahlíð
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Hofsafréttar. Nefndina skipa;
Jón Ragnar Gíslason
Fjallskilastjóri
Bjarnastaðarhlíð
Steindór Búi Sigurbergsson
Aðalmaður
Bústaðir l
Borgþór Bragi Borgþórsson
Aðalmaður
Hofsvellir
Guðjón Ólafur Guðjónsson
Varamaður Stekkjarholti
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Upprekstrarfélags Akrahrepps. Nefndina skipa;
Stefán Ingi Gestsson Fjallskilastjóri Höskuldsstaðir
Agnar H. Gunnarsson Aðalmaður
Miklibær
Þorkell Gíslason Aðalmaður
Víðivellir
Eiríkur Skarphéðinsson
Varamaður Djúpidalur
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 48 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða tillögu um skipan í fjallskilanefnd Hóla- og Viðvíkurdeildar. Nefndina skipa;
Víðir Sigurðsson Fjallskilastjóri Kjarvalsstöðum
Bergur Gunnarsson
Aðalmaður
Narfastöðum
Friðrik Andri Atlason
Aðalmaður
Fagraholt
Jóhann Ingi Haraldsson
Varamaður
Ásgeirsbrekku
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með átta atkvæðum.
7.Skipulagsnefnd - 100
Málsnúmer 2606011FVakta málsnúmer
Fundargerð 100. fundar skipulagsnefndar frá 18. júní 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 51. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulagsnefnd - 100 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs setur fundinn í fjarveru sveitarstjóra.
Sviðsstjóri gerir tillögu um Ingvar Daða Jóhannsson sem formann nefndarinnar og Jón Daníel Jónsson sem varaformann. Einnig gerir sviðsstjóri að tillögu sinni að gera Jódísi Helgu Káradóttur að ritara nefndarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna samhljóða.
Í framhaldinu afhendir sviðsstjóri fundarstjórn yfir á kjörinn formann nefndarinnar og víkur af fundi.
Skipulagsfulltrúi fer yfir starfssvið og helstu verkefni skipulagsnefndar. Bókun fundar Afgreiðsla 100. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
8.Skipulagsnefnd - 101
Málsnúmer 2606021FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 101 Stefán Logi Haraldsson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir fyrir hönd Flugu hf., þinglýsts lóðarhafa Flæðagerðis, landnr. 189714, sem hefur staðfangið Svaðastaðir reiðhöll skv. gildandi deiliskipulagi, óska eftir heimild til að láta vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flæðagerðis á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsækjandi telur að um óverulega breytingu sé að ræða og breytingin falli því undir 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarsvæðið er sýnt á meðfylgjandi breytingartillögu og afmarkast af lóðamörkum Flæðagerðis, L189714, eins og breytingartillaga sýnir. Breytingin varðar stækkun lóðarinnar um 4,5 m til suðurs eða um 373 m² og stækkun byggingareits um 1859 m². Hámarks byggingarmagn lækkar til sæmræmis og svo hámarks byggingarmagn verður svipað. Breytingarsvæðið er á íþróttasvæði nr. ÍÞ-404, í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035.
Framkvæmdir í tengslum við breytinguna falla ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Að fenginni heimild, til að láta vinna breytingu deiliskipulagi skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er lögð fram meðfylgjandi tillaga óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flæðigerðis, íþróttasvæðis hestamanna, greinargerð og skipulagsuppdráttur nr. DS01, í verki 56291703, dags. 15.06.2026, unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Umhverfisáhrif breytingar eru óveruleg umfram áhrif gildandi deiliskipulags Flæðigerðis, með síðari breytingum. Breytingarsvæðið er fjarri allri íbúðabyggð og næstu íbúðarhús eru í um 1,4 km fjarlægð. Skv. deiliskipulagi fyrir breytingu er þegar gert ráð fyrir uppbyggingu á svæðinu sem breytingin tekur til. Þegar er umferð fólks og hesta um svæðið. Það má því ætla að breytingin, sem hér er til umfjöllunar, hafi óveruleg áhrif á annað dýralíf í nágrenni svæðisins umfram stefnu gildandi deiliskipulags. Byggingarreitur með stækkun er í rúmlega 100 m fjarlægð frá Tjarnartjörn. Þá hefur breytingin sem sótt er um, ekki áhrif á skuggavarp íbúa eða aðgengismál. Umsækjandi telur þetta sýna fram á að breytingin hafi ekki áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið og óskar því eftir að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er umsögn minjavarðar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umsækjendum að láta vinna deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt fellst skipulagsnefndin samhljóða á rök umsækjenda að um óverulega breytingu sé að ræða sem hafi einungis áhrif á umsækjendur og sveitarfélagið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Flæðigerði. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Deiliskipulag Flæðigerðis, íþróttasvæðis hestamanna - Óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna Flæðagerðis, L189714, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 101 Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 19.05.2026 um stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-25/2010 og Hrd.350/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Vesturhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign stefndu skv. Hæstaréttardómi í máli nr. 350/2011. Skráð stærð: 275,72 km².
Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá botni Fossgils (v1) er línan dregin beina stefnu í Vestari-Jökulsá á móts við þann stað þar sem Fremri-Hraunlækur fellur í hana (v2). Þaðan er Vestari-Jökulsá fylgt að upptökum í Hofsjökli (v3) og þaðan jökulrönd Hofsjökuls til austurs að upptökum Bleikálukvíslar (v4) sem síðan er fylgt að þeim stað þar sem hún rennur í Runukvísl (v5). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Hraunþúfuá rennur í hana (v6). Frá ármótum Runukvíslar og Hraunþúfuár er Hraunþúfuá fylgt að upptökum vestustu kvíslar hennar (v7). Frá upptökum vestustu kvíslar Hraunþúfuár er línan dregin í austurbrúnir Lambárfells (v8) og þaðan beina stefnu í átt að Fossárfelli þar til komið er að skurðpunkti (v9) við línu sem dregin er beina stefnu frá enda Hraunþúfugils, þar sem kallaðir eru Sporðar, í norðvestur um jaðar Sandfells í Fossá. Frá nefndum skurðpunkti er síðarnefndri línu fylgt í Fossá (v10) og Fossá síðan fylgt að botni Fossgils (v1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Fyrirvari er gerður í gögnum ráðuneytis um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Umsókn um stofnun þjóðlendu - Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 101 Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.
Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.
Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 101 Sindri Freyr Baldursson og Guðný María Torfadóttir lóðareigendur Birkimels 5 í Varmahlíð óska eftir við skipulagsnefnd að fá afmörkun lóðarinnar staðfesta ásamt því að gerð verði merkjalýsing.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að gera lóðarblað og merkjalýsingu skv. fyrirliggjandi gögnum vegna lóðarinnar við Birkimel 5 í Varmahlíð jafnframt því að skoða lóðarmál aðliggjandi lóða, þar að segja Birkimels 3, 7 og 9. Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 101 Rarik óskar eftir stofnun lóðar úr L146440, á Hólum í Hjaltadal. Ný lóð verður 20 m2 og er undir spennistöð sem verður hluti af dreifikerfi Rarik.
Landheiti hinna nýju lóða vísa í heiti upprunajarðar, Hólar-spennistöð.
Merkjalýsing og uppdráttur var unnin af Verkráð ehf. Merkjalýsing var unnin fyrir landeigendur (FSRE) og Rarik. Sjá meðfylgjandi gögn.
Gerður verður lóðaleigusamningur milli FSRE og Rarik.
Með tölvupósti dags. 20.05. síðastliðinn upplýsir Rarik að á lóðinni verður sett upp spennistöð Rafal hús (smáhýsi) u.þ.b. 11 m2. Send verða gögn (skráningatafla og uppdráttur) til starfsmanns sveitarfélagsins um leið og landnúmer hefur verið gefið út. Framkvæmdin fellur undir i lið 2.3.6 gr. í byggingareglugerðar nr 112/1012 með síðari breytingum.
Þessi framkvæmd tengist Landsmóti hestamanna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun lóðar og bendir jafnframt á að fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 og umsækjandi skal vera í sambandi við byggingarfulltrúa vegna þessa. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lóð fyrir spennistöð og tilkynnt framkvæmd - Hólar í Hjaltadal, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 101 Guðmundur Kr. Hermundsson og Nanna A. Jónsdóttir lóðarhafa Fellstúns 2 á Sauðárkróki óska eftir að fá að breikka innkeyrslu/bílastæði lóðarinnar um 6 metra til suðurs. Umbeðin framkvæmd er yfir gangstétt sveitarfélagsins sem þyrfti þá að breyta og lækka þar kantsteininn. Umsækjendur óska eftir að að vinna breytinguna á eigin kostnað og að hún verði unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar. Með umsókninni fylgja gögn sem gera betur grein fyrir umbeðinni framkvæmd.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Fellstúns 2 á Sauðárkróki.
Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. - 8.7 2606099 Reykir L146213 - Umsókn um millispildu, sameiningu lóða, staðfestingu hnitsetningar og breytt eignarheitiSkipulagsnefnd - 101 Dagur Torfason og Rebekka Rún Helgadóttir f.h. Heyanna ehf. sækja um heimild til að stofna 247,9 m2 spildu úr landi jarðarinnar Reykir landnr. 146213, sem "Reykir Millispilda", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 783501 dags. 11. mars 2026. Afstöðuuppdráttur unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsingu sem einnig er unni á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Umbeðna millispildu á að sameina lóðinni Reykir lóð (landnr. 217185), eign Jóhannesar Sigurjónssonar sem einnig undirritar erindið þar sem hann einnig samþykkir fyrirhugaða sameiningu millispildunnar við lóðina, Reykir lóð (landnr. 217185).
Aðilar sækja einnig um staðfestingu hnitsetningar lóðarinnar Reykir lóð eins og þau koma fram á framangreindum uppdrætti og í merkjalýsingu.
Þá sækir Jóhannes Sigurjónsson um leyfi fyrir nafnbreytingu lóðarinnar Reykir lóð (landnr. 217185) og að lóðin fái heitið "Indriðahús", breytt landheiti vísi til fyrri eiganda.
Öll hlunnindi tilheyri áfram Reykir landnr. 146213.
Stækkunin samræmist Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Í kafla 3.7 um skipulagsákvæði þegar taka á land úr landbúnaðarnotum, skipta því eða sameina, segir meðal annars: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi:
Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Jafnframt hvort fremur megi taka annað land til sömu nota, sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar.
Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands.
Hvort áform leiði af sér að girt sé fyrir búrekstrarnot í framtíðinni."
Með vísan til ofangreinds er tekið fram að landið sem bætist við lóðina er einungis 247,9 m² og er því ekki stærra en þörf krefur vegna lagfæringar á mörkum. Stækkunin leiðir ekki af sér skerðingu á búrekstrarnotum eða ræktunarmöguleikum upprunajarðarinnar í flokki L-1 og L-2.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan hnitsettrar lóðar.
Engin mannvirki eru innan stækkunar lóðar. Mannvirki innan landeignarinnar Reykir lóð er matshluti 01 sem er einbýlishús, 142,9 m2 að stærð, byggt árið 1971 og matshluti 02 sem er véla/ verkfærageymsla, 64 m2 að stærð, byggt árið 1978.
Lögbýlarétturinn er óbreyttur og mun áfram fylgja Reykir, landnr. 146213.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003757.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að samþykkja umbeðna millispildu, sameiningu lóða og staðfestingu hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Reykir L146213 - Umsókn um millispildu, sameiningu lóða, staðfestingu hnitsetningar og breytt eignarheiti, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - 8.8 2606171 Beiðni um upplýsingar og samráð vegna merkinga reiðleiða á útivistarsvæði við Skógarhlíð og SauðárgilSkipulagsnefnd - 101 Lagt fram erindi frá 550 Rammvilltum, Ragnhildur Friðriksdóttir, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Lára Halla Sigurðardóttir, Vala Hrönn Margeirsdóttir, Selma Barðdal, Bryndís Lilja Hallsdóttir, Guðrún Eik Skúladóttir þar sem óskað er eftir upplýsingum og samráði vegna merkinga reiðleiða á útivistarsvæði við Skógarhlíð og Sauðárgil.
Umrædd reiðleið er skv. gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og var framkvæmdaleyfi gefið út vegna leiðarinnar árið 2022, mál númer 2206226.
Reiðleiðin hefur verið inni á aðalskipulagi Skagafjarðar frá 2009.
Í bókun sveitarstjórnar Skagafjarðar frá 17.08.2022 stendur m.a.:
“Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum, að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi á grundvelli framkominna gagna. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að sett verði upp fræðsluskilti á þeim stöðum þar sem samnýting mismunandi hagsmunaaðila er á fyrirhugaðri reiðleið."
Skipulagsnefnd leggur til við hestamannafélagið Skagfirðing að vinna við fyrirhuguð fræðsluskilti verði kláruð sem fyrst þar sem samnýting reiðleiðar og umferð mismunandi hagsmunaaðila skal skýrð nánar. Efni fræðsluskiltanna skal yfirfarið af skipulagsnefnd áður en til uppsetningar kemur. Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 101 Lögð fram til kynningar umsögn Veðurstofu Íslands, án athugasemda, sem barst eftir að umsagnartíma lauk. Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 101 Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa vegna Holtsmúla L145981 þar sem m.a. kemur fram að byggja eigi anddyri og stigahús austan við húsið sem kemur að hluta til í stað eldri forstofur og útitrappna sem á að rífa. Einnig verður byggð forstofa og stigahús við norðvestur horn hússins, þar verður bakinngangur að kjallara.
Núverandi grunnflötur eldra húss er 89,35 m2 en yrði eftir breytingu 118 m2.
Umsagnarbeiðnin afgreidd af skipulagsfulltrúa 08.06.2026:
"Umbeðin framkvæmd hefur ekki áhrif á aðra en umsækjendur þar sem um er að ræða svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Með vísan til þess sem að framan greinir heimilar undirrituð umbeðnar ætlaðar framkvæmdir við Holtsmúla." Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 101 Lögð fram afgreiðsla skipulagsfulltrúa á umsókn Rarik fyrir strenglögn að Naustabakka við Hofsós vegna heimtaugaumsóknar.
Skipulagsfulltrúi gaf heimild fyrir verkefninu þar sem um er að ræða heimtaug að áður samþykktum bygginarreit (mál nr. 2309165).
Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 101 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 86 þann 29.05.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Skipulagsnefnd - 101 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 87 þann 12.06.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 101. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
9.Félagsmála- og tómstundanefnd - 45
Málsnúmer 2606010FVakta málsnúmer
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs bar upp eftirfarandi tillögu um kjör formanns, varaformanns og ritara félagsmála- og tómstundanefndar: Jakob Logi Gunnarsson fulltrúi D-lista verði formaður, Guðrún Sonja Birgisdóttir fulltrúi L-lista verði varaformaður og Halldór Jón Sigurðsson fulltrúi B-lista verði ritari. Sædís Bylgja Jónsdóttir fulltrúi M-lista situr fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lögð voru fram drög að erindisbréfi félagsmála- og tómstundanefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, erindisbréf félagsmála- og tómstundanefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lagður fram tölvupóstur frá Ragnhildi Friðriksdóttur sem óskar, fyrir hönd 550 Rammvilltra, eftir samstarfi við Skagafjörð vegna utanvegahlaupsins Molduxi Trail sem haldið verður 7. ágúst nk. Samstarfið sem óskað er eftir felst í því að þátttakendum í hlaupinu verði veittur frír aðgangur að Sundlaug Sauðárkróks að hlaupi loknu ásamt því að Sundlaug Sauðárkróks verði opin til kl. 22 þennan dag.
Nefndin fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að þátttakendur fái frítt í sund að hlaupi loknu og opnunartími verði lengdur um eina klukkustund eða til kl. 22:00 þann 7. ágúst 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lögð fram beiðni um styrk vegna íþrótta- og leikjanámskeiða barna í Fljótum. Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar umsókninni og samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð 150.000 krónur til íþrótta- og leikjanámskeiða fyrir börn í Fljótum. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lagður fram tölvupóstur frá Ungmennafélagi Íslands. Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.-20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Blómstrum, styrkjumst og tengjumst.
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 15-25 ára og verður áhersla lögð á andlega, líkamlega og félagslega heilsu, tengslamyndun, sjálfsmynd og heilbrigðan lífsstíl í heimi þar sem skjánotkun og áreiti hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf. Óskað er eftir því að ráðstefnan sé kynnt fyrir ungu fólki innan Skagafjarðar og áhugasöm séu hvött til þátttöku.
Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að fela leiðtoga frístunda- og íþróttamála að kynna ráðstefnuna og hvetja ungt fólk í sveitarfélaginu til þátttöku. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2026, sem eru eftirfarandi: 20. ágúst, 24. september, 29. október og 19. nóvember. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lagðar fram til kynningar þrjár fundargerðir, frá fundi nr. 48 og 49 frá maí og fundi nr. 50 frá júní sl. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Lögð fram til kynningar 69. fundargerð fagráðs Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands frá 15. júní 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 45 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
10.Kjör fulltrúa á Landsþing SÍS 2026
Málsnúmer 2605083Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Magnús Barðdal Reynisson, Eyþór Fannar Sveinsson og Einar Eðvald Einarsson.
Varamenn: Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Jóhanna Ey Harðardóttir og Hrund Pétursdóttir.
Aðrar tilnefningar bárust ekki og teljast þau því rétt kjörin.
11.Kjör fulltrúa í stjórn Náttúrustofu Nl. vestra 2026
Málsnúmer 2605115Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir og Kristján Jónsson.
Varamenn: Guðrún Sonja Birgisdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson.
Aðrar tilnefningar bárust ekki og teljast þau því rétt kjörin.
12.Kjör fulltrúa í stjórn Norðurár bs 2026
Málsnúmer 2605122Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Guðlaugur Skúlason
Varamenn: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir og Jón Daníel Jónsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörnin.
13.Kjör fulltrúa í öldungaráð 2026
Málsnúmer 2605123Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Jóhanna Björnsdóttir, Merete Rabölle og Sylvía Sif Halldórsdóttir.
Varamenn: Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Sigrún Eva Helgadóttir og Halldór Jón Sigurðsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.
14.Kjör fulltrúa í notendaráð - þjónusta við fatlað fólk 2026
Málsnúmer 2605124Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Jakob logi Gunnarsson, Guðrún Sonja Birgisdóttir og Halldór Jón Sigurðsson.
Varamenn: Sandra Björk Jónsdóttir, Harpa Katrín Halldórsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.
15.Kjör fulltrúa í þjónusturáð - þjónusta við fatlað fólk Nl.v 2026
Málsnúmer 2605125Vakta málsnúmer
Aðalmaður: Jakob logi Gunnarsson.
Varamaður: Guðrún Sonja Birgisdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.
16.Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Eyvindarstaðarheiðar ehf 2026
Málsnúmer 2605129Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Sigþór Smári Borgarsson, Ólafur Bjarni Haraldsson og Gunnar Valgarðsson.
Varamenn: Árni Egilsson, Þórunn Eyjólfsdóttir og Atli Már Traustason.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.
17.Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Flugu ehf 2026
Málsnúmer 2605130Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Sigurlína Magnúsdóttir og Jódís Helga Káradóttir.
Varamenn: Rósanna Valdimarsdóttir og Sædís Bylgja Jónsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörnin.
18.Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Tímatákns ehf 2026
Málsnúmer 2605131Vakta málsnúmer
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu:
Eyþór Fannar Sveinsson, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir og Einar Eðvald Einarsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.
19.Kjör fulltrúa í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar 2026
Málsnúmer 2605133Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Sveinn Þ. Finster Úlfarsson.
Varamaður: Jón Sigurjónsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þeir því rétt kjörnir.
20.Kjör í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands 2026
Málsnúmer 2605134Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Jóel Þór Árnason.
Varamaður: Árni Egilsson.
Fleiri tilnefningar bárust ekki og teljast þeir því rétt kjörnir.
21.Kjör í fulltrúaráð Farskóla Nl.v 2026
Málsnúmer 2605135Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Guðlaugur Skúlason.
Varamaður: Jóhanna Ey Harðardóttir.
Fleiri tilnefningar bárust ekki og teljast þau því rétt kjörin.
22.Kjör fulltrúa í stjórn Skógræktarsjóðs Skagafjarðar 2026
Málsnúmer 2605136Vakta málsnúmer
Formaður bar upp tillögu um: Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur, Sigrúnu Evu Helgadóttur og Hrefnu Jóhannesdóttur.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.
23.Kjör fulltrúa í stjórn Hátækniseturs Íslands ses 2026
Málsnúmer 2605138Vakta málsnúmer
Aðalmenn: Jóhann Daði Gíslason og Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson.
Varamenn: Gísli Sigurðsson og Jódís Helga Káradóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.
24.Kjör fulltrúa í stjórn Menningarsjóðs Eyþórs Stefánssonar 2026
Málsnúmer 2605142Vakta málsnúmer
Forseti gerir tillögum um Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóra sem stjórnarmann.
Fleiri tillögur komu ekki fram og skoðast hann því rétt kjörinn.
25.Kjör fulltrúa í stjórn Styrktarsjóðs Guðrúnar Þ. Sveinsdóttur 2026
Málsnúmer 2605143Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóra og Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þeir því rétt kjörnir.
26.Tilnefning fulltrúa í Vatnasvæðanefnd Umhverfis- og orkustofnunar 2026
Málsnúmer 2605163Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um Sveinn Þ. Finster Úlfarsson sem aðalmann, Guðlaug Skúlason sem varamann og Högna Elfar Gylfason frá landbúnaðar- og innviðanefnd.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þeir því rétt kjörnir.
27.Sumarleyfi sveitarstjórnar 2026
Málsnúmer 2606221Vakta málsnúmer
Undirritaður leggur til sumarleyfi sveitarstjórnar samkvæmt 8. gr. í III. kafla samþykkta um stjórn Skagafjarðar.
Sumarleyfið hefst 2. júlí 2026 og stendur til og með 18. ágúst 2026.
Undirritaður leggur jafnframt til að byggðarráði sé veitt heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar með vísan til 6. mgr. 32. gr. samþykkta um stjórn Skagafjarðar.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
28.Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026-2030
Málsnúmer 2605111Vakta málsnúmer
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026-2030 bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.
29.Kjör aðal- og varamanns í stjórn Flokku ehf.
Málsnúmer 2606254Vakta málsnúmer
Forseti bar upp tillögu um Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóra sem aðalmann og Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs sem varamann.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þeir því rétt kjörnir.
30.Umsagnarbeiðni; Rannsóknarleyfi á grunnvatni (lindum) í Hrafndal, Skagafirði
Málsnúmer 2606152Vakta málsnúmer
Forseti gerir að tillögu sinni, byggt á fyrirliggjandi gögnum, að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við að rannsóknarleyfi verði veitt, enda verði rannsóknir framkvæmdar í samræmi við gildandi lög, reglugerðir og þau skilyrði sem Umhverfis- og orkustofnun kann að setja í leyfinu.
Vert er að benda á að veiting rannsóknarleyfis felur ekki í sér afstöðu til mögulegrar framtíðarnýtingar auðlindarinnar, sem eftir atvikum yrði háð frekari leyfisveitingum og málsmeðferð samkvæmt lögum.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
31.Samþykkt um fráveitu í Skagafirði - 2026
Málsnúmer 2605179Vakta málsnúmer
"Kynnt drög að uppfærðri samþykkt um fráveitu í Skagafirði nr. 1402 frá 12 des. 2023.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og vísar til sveitarstjórnar."
Samþykkt fráveitu í Skagafirði borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
32.Erindisbréf byggðarráðs
Málsnúmer 2606050Vakta málsnúmer
"Lögð voru fram drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Erindisbréf byggðarráðs borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
33.Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605233Vakta málsnúmer
"Lögð var fram beiðni um viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2026.
Í framlögðum viðauka er gert ráð fyrir 1,6 m.kr. útgjöldum vegna tölvukaupa fyrir kjörna fulltrúa, 2 m.kr. útgjöldum vegna milliuppgjörs fjárhags sveitarfélagsins í kjölfar eignabreytinga ásamt áætluðum kostnaði að upphæð 5 m.kr. við framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst næstkomandi og 5 m.kr. endurgreiðslu ríkisins fyrir framangreindri þjóðaratkvæðagreiðslu. Samtals 3,2 m.kr. rekstrarviðauki.
Einnig eru framkvæmdir við klæðningu vesturhliðar A-álmu Árskóla áætlaðar 11,4 m.kr. auk 4,2 m.kr. til hönnunar og uppsetningar útboðsgagna vegna framkvæmda við Grundarstíg á Sauðárkróki.
Niðurstaða viðaukans er lækkun á handbæru fé um 18,8 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlagður viðauki borinn upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktur með níu atkvæðum.
34.Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Skagafirði
Málsnúmer 2606183Vakta málsnúmer
"Lögð voru fram drög að uppfærðri samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Í upphafi kjörtímabils hefur aðalmönnum staðið til boða styrkur til tækjakaupa. Lagt er til að formfesta heimild til tækjakaupa að upphæð 170.000 króna.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa í Skagafirði og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa í Skagafirði borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
35.Erindisbréf félagsmála- og tómstundanefndar
Málsnúmer 2606163Vakta málsnúmer
"Lögð voru fram drög að erindisbréfi félagsmála- og tómstundanefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Erindisbréf félagsmála- og tómstundanefndar borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
36.Erindisbréf landbúnaðar- og innviðanefndar
Málsnúmer 2606119Vakta málsnúmer
"Lögð voru fram drög að erindisbréfi landbúnaðar- og innviðanefndar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir erindisbréfið samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Erindisbréf landbúnaðar- og innviðanefndar borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
37.Erindisbréf fræðslunefndar
Málsnúmer 2606162Vakta málsnúmer
"Lögð voru fram drög að erindisbréfi fræðslunefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Erindisbréf fræðslunefndar borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
38.Deiliskipulag Flæðigerðis, íþróttasvæðis hestamanna - Óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna Flæðagerðis, L189714
Málsnúmer 2606123Vakta málsnúmer
"Stefán Logi Haraldsson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir fyrir hönd Flugu hf., þinglýsts lóðarhafa Flæðagerðis, landnr. 189714, sem hefur staðfangið Svaðastaðir reiðhöll skv. gildandi deiliskipulagi, óska eftir heimild til að láta vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flæðagerðis á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsækjandi telur að um óverulega breytingu sé að ræða og breytingin falli því undir 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarsvæðið er sýnt á meðfylgjandi breytingartillögu og afmarkast af lóðamörkum Flæðagerðis, L189714, eins og breytingartillaga sýnir. Breytingin varðar stækkun lóðarinnar um 4,5 m til suðurs eða um 373 m² og stækkun byggingareits um 1859 m². Hámarks byggingarmagn lækkar til sæmræmis og svo hámarks byggingarmagn verður svipað. Breytingarsvæðið er á íþróttasvæði nr. ÍÞ-404, í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035.
Framkvæmdir í tengslum við breytinguna falla ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Að fenginni heimild, til að láta vinna breytingu deiliskipulagi skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er lögð fram meðfylgjandi tillaga óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flæðigerðis, íþróttasvæðis hestamanna, greinargerð og skipulagsuppdráttur nr. DS01, í verki 56291703, dags. 15.06.2026, unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Umhverfisáhrif breytingar eru óveruleg umfram áhrif gildandi deiliskipulags Flæðigerðis, með síðari breytingum. Breytingarsvæðið er fjarri allri íbúðabyggð og næstu íbúðarhús eru í um 1,4 km fjarlægð. Skv. deiliskipulagi fyrir breytingu er þegar gert ráð fyrir uppbyggingu á svæðinu sem breytingin tekur til. Þegar er umferð fólks og hesta um svæðið. Það má því ætla að breytingin, sem hér er til umfjöllunar, hafi óveruleg áhrif á annað dýralíf í nágrenni svæðisins umfram stefnu gildandi deiliskipulags. Byggingarreitur með stækkun er í rúmlega 100 m fjarlægð frá Tjarnartjörn. Þá hefur breytingin sem sótt er um, ekki áhrif á skuggavarp íbúa eða aðgengismál. Umsækjandi telur þetta sýna fram á að breytingin hafi ekki áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið og óskar því eftir að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er umsögn minjavarðar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umsækjendum að láta vinna deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt fellst skipulagsnefndin samhljóða á rök umsækjenda að um óverulega breytingu sé að ræða sem hafi einungis áhrif á umsækjendur og sveitarfélagið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Flæðigerði."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að heimila umsækjendum að láta vinna deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt fellst sveitarstjórn samhljóða á rök umsækjenda að um óverulega breytingu sé að ræða sem hafi einungis áhrif á umsækjendur og sveitarfélagið og samþykkir því með níu atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Flæðigerði.
39.Umsókn um stofnun þjóðlendu - Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði
Málsnúmer 2605200Vakta málsnúmer
Vísað frá 101. fundi skipulagsnefndar frá 25. júní sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 19.05.2026 um stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-25/2010 og Hrd.350/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Vesturhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign stefndu skv. Hæstaréttardómi í máli nr. 350/2011. Skráð stærð: 275,72 km².
Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá botni Fossgils (v1) er línan dregin beina stefnu í Vestari-Jökulsá á móts við þann stað þar sem Fremri-Hraunlækur fellur í hana (v2). Þaðan er Vestari-Jökulsá fylgt að upptökum í Hofsjökli (v3) og þaðan jökulrönd Hofsjökuls til austurs að upptökum Bleikálukvíslar (v4) sem síðan er fylgt að þeim stað þar sem hún rennur í Runukvísl (v5). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Hraunþúfuá rennur í hana (v6). Frá ármótum Runukvíslar og Hraunþúfuár er Hraunþúfuá fylgt að upptökum vestustu kvíslar hennar (v7). Frá upptökum vestustu kvíslar Hraunþúfuár er línan dregin í austurbrúnir Lambárfells (v8) og þaðan beina stefnu í átt að Fossárfelli þar til komið er að skurðpunkti (v9) við línu sem dregin er beina stefnu frá enda Hraunþúfugils, þar sem kallaðir eru Sporðar, í norðvestur um jaðar Sandfells í Fossá. Frá nefndum skurðpunkti er síðarnefndri línu fylgt í Fossá (v10) og Fossá síðan fylgt að botni Fossgils (v1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Fyrirvari er gerður í gögnum ráðuneytis um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði."
Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
40.Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki
Málsnúmer 2602106Vakta málsnúmer
Vísað frá 101. fundi skipulagsnefndar frá 25. júní sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.
Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.
Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022."
Forseti gerði að tillögu sinni að málinu yrði vísað til byggðarráðs.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með átta atkvæðum.
Stutt hlé gert á fundi.
41.Lóð fyrir spennistöð og tilkynnt framkvæmd - Hólar í Hjaltadal
Málsnúmer 2606126Vakta málsnúmer
"Rarik óskar eftir stofnun lóðar úr L146440, á Hólum í Hjaltadal. Ný lóð verður 20 m2 og er undir spennistöð sem verður hluti af dreifikerfi Rarik.
Landheiti hinna nýju lóða vísa í heiti upprunajarðar, Hólar-spennistöð.
Merkjalýsing og uppdráttur var unnin af Verkráð ehf. Merkjalýsing var unnin fyrir landeigendur (FSRE) og Rarik. Sjá meðfylgjandi gögn.
Gerður verður lóðaleigusamningur milli FSRE og Rarik.
Með tölvupósti dags. 20.05. síðastliðinn upplýsir Rarik að á lóðinni verður sett upp spennistöð Rafal hús (smáhýsi) u.þ.b. 11 m2. Send verða gögn (skráningatafla og uppdráttur) til starfsmanns sveitarfélagsins um leið og landnúmer hefur verið gefið út. Framkvæmdin fellur undir i lið 2.3.6 gr. í byggingareglugerðar nr 112/1012 með síðari breytingum.
Þessi framkvæmd tengist Landsmóti hestamanna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun lóðar og bendir jafnframt á að fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 og umsækjandi skal vera í sambandi við byggingarfulltrúa vegna þessa."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna stofnun lóðar og ítrekar ábendingar skipulagsnenfdar að fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 og umsækjandi skal vera í sambandi við byggingarfulltrúa vegna þessa.
42.Reykir L146213 - Umsókn um millispildu, sameiningu lóða, staðfestingu hnitsetningar og breytt eignarheiti
Málsnúmer 2606099Vakta málsnúmer
"Dagur Torfason og Rebekka Rún Helgadóttir f.h. Heyanna ehf. sækja um heimild til að stofna 247,9 m2 spildu úr landi jarðarinnar Reykir landnr. 146213, sem "Reykir Millispilda", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 783501 dags. 11. mars 2026. Afstöðuuppdráttur unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsingu sem einnig er unni á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Umbeðna millispildu á að sameina lóðinni Reykir lóð (landnr. 217185), eign Jóhannesar Sigurjónssonar sem einnig undirritar erindið þar sem hann einnig samþykkir fyrirhugaða sameiningu millispildunnar við lóðina, Reykir lóð (landnr. 217185).
Aðilar sækja einnig um staðfestingu hnitsetningar lóðarinnar Reykir lóð eins og þau koma fram á framangreindum uppdrætti og í merkjalýsingu.
Þá sækir Jóhannes Sigurjónsson um leyfi fyrir nafnbreytingu lóðarinnar Reykir lóð (landnr. 217185) og að lóðin fái heitið "Indriðahús", breytt landheiti vísi til fyrri eiganda.
Öll hlunnindi tilheyri áfram Reykir landnr. 146213.
Stækkunin samræmist Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Í kafla 3.7 um skipulagsákvæði þegar taka á land úr landbúnaðarnotum, skipta því eða sameina, segir meðal annars: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi:
Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Jafnframt hvort fremur megi taka annað land til sömu nota, sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar.
Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands.
Hvort áform leiði af sér að girt sé fyrir búrekstrarnot í framtíðinni."
Með vísan til ofangreinds er tekið fram að landið sem bætist við lóðina er einungis 247,9 m² og er því ekki stærra en þörf krefur vegna lagfæringar á mörkum. Stækkunin leiðir ekki af sér skerðingu á búrekstrarnotum eða ræktunarmöguleikum upprunajarðarinnar í flokki L-1 og L-2.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan hnitsettrar lóðar.
Engin mannvirki eru innan stækkunar lóðar. Mannvirki innan landeignarinnar Reykir lóð er matshluti 01 sem er einbýlishús, 142,9 m2 að stærð, byggt árið 1971 og matshluti 02 sem er véla/ verkfærageymsla, 64 m2 að stærð, byggt árið 1978.
Lögbýlarétturinn er óbreyttur og mun áfram fylgja Reykir, landnr. 146213.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003757.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að samþykkja umbeðna millispildu, sameiningu lóða og staðfestingu hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna millispildu, sameiningu lóða og staðfestingu hnitsetningar sbr. merkjalýsingu.
43.Fundargerðir SÍS 2026
Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer
44.Fundargerðir SSNV 2026
Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer
45.Yfirlit HMS vegna- húsnæðis- og skipulagsmála
Málsnúmer 2605184Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 17:13.
Einnig fór forseti þess á leit við fundarmenn að mál 2605144-"Kjör fulltrúa í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Nl.v 2026" verði tekið af dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.