Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

197. fundur 10. júní 2026 kl. 14:00 - 14:56 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ey Harðardóttir varam.
    Aðalmaður: Eyþór Fannar Sveinsson
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar fór formaður þess á leit að mál #2606069-"Kauptilboð í Háholt F224-1037" verði tekin inn á fundinn með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.

1.Erindisbréf byggðarráðs

Málsnúmer 2606050Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Trúnaðarbók byggðarráðs

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

3.Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts

Málsnúmer 2605275Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

4.Aðalfundur Farskólans 2026

Málsnúmer 2605247Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 26. maí 2026 frá Halldóri Gunnlaussyni, framkvæmdastjóra Farskólans. Í tölvupóstinum er boðað til aðalfundar Farskólans sem haldinn verður fimmtudaginn 11. júní næstkomandi klukkan 14:00 í húsnæði Farskólans við Faxatorg.

5.Kauptilboð í Háholt F224-1037

Málsnúmer 2606069Vakta málsnúmer

Eitt kauptilboð hefur borist í eignina Háholt, fasteignanúmer F2241037.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna tilboðinu og felur Evu Dögg Bergþórsdóttur hjá Fasteignasölu Sauðárkróks að svara tilboðinu.

6.Samráð; Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)

Málsnúmer 2605228Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 93/2026, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)".

Umsagnarfrestur er til og með 19.06.2026.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að ráðist sé í vinnu við endurskoðun hafnalaga og tekur undir mikilvægi þess að skýra lagagrundvöll gjaldtöku hafna.

Hafnir gegna lykilhlutverki í innviðum landsins og eru undirstaða atvinnulífs víða um land. Þá eru hafnir mikilvægar fyrir þróun ferðaþjónustu með móttöku skemmtiferðaskipa, sér í lagi á svæðum sem eru utan alfararleiðar. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hafnir geti staðið undir fjárfestingum í uppbyggingu mannvirkja til að styðja við framtíðartækifæri í atvinnuþróun viðkomandi svæða.

Í þessu samhengi bendir byggðarráð á að hafnarmannvirki eru fjárfrekir innviðir þar sem uppbygging, viðhald og endurnýjun mannvirkja krefst verulegrar langtímafjárfestingar sem erfitt er að standa undir eingöngu með rekstrartekjum, sérstaklega í smærri byggðarlögum. Hafnarbótasjóður gegnir þar lykilhlutverki við að jafna aðstöðu hafna og tryggja að unnt sé að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir þrátt fyrir mismunandi rekstrarforsendur og tekjugrunn.

Byggðarráð leggur áherslu á að samhliða skýrari heimildum til gjaldtöku verði tryggt að fjármögnunarumhverfi hafna sé heildstætt og stöðugt, þar sem samspil tekna hafnarsjóða og framlaga úr Hafnabótasjóði gerir höfnum kleift að fjárfesta í uppbyggingu til framtíðar. Nauðsynlegt er að ríkið tryggi sjóðnum nægilegt fjármagn til að unnt sé að standa undir mótframlögum til fjárfestinga í hafnarmannvirkjum, enda eru slík verkefni forsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar.

Byggðarráð bendir þá einnig á að hafnir eru sér skipulagssvæði. Hagræða mætti í stjórnsýslu sveitarfélaga ef skipulagsmál sveitarfélagsins í heild væru á einni hendi, það er skipulagsnefndar hvers sveitarfélags fyrir sig.

7.Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga

Málsnúmer 2605251Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Jafnréttisstofu dagsettur 27. maí 2026. Í tölvupóstinum er boðað til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður í Múlabergi á Akureyri, fimmtudaginn 17. september 2026 milli klukkan 9:30 til 15:00.

Fundi slitið - kl. 14:56.