Umsókn um stofnun þjóðlendu - Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði
Málsnúmer 2605200
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026
Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Vísað frá 101. fundi skipulagsnefndar frá 25. júní sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 19.05.2026 um stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-25/2010 og Hrd.350/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Vesturhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign stefndu skv. Hæstaréttardómi í máli nr. 350/2011. Skráð stærð: 275,72 km².
Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá botni Fossgils (v1) er línan dregin beina stefnu í Vestari-Jökulsá á móts við þann stað þar sem Fremri-Hraunlækur fellur í hana (v2). Þaðan er Vestari-Jökulsá fylgt að upptökum í Hofsjökli (v3) og þaðan jökulrönd Hofsjökuls til austurs að upptökum Bleikálukvíslar (v4) sem síðan er fylgt að þeim stað þar sem hún rennur í Runukvísl (v5). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Hraunþúfuá rennur í hana (v6). Frá ármótum Runukvíslar og Hraunþúfuár er Hraunþúfuá fylgt að upptökum vestustu kvíslar hennar (v7). Frá upptökum vestustu kvíslar Hraunþúfuár er línan dregin í austurbrúnir Lambárfells (v8) og þaðan beina stefnu í átt að Fossárfelli þar til komið er að skurðpunkti (v9) við línu sem dregin er beina stefnu frá enda Hraunþúfugils, þar sem kallaðir eru Sporðar, í norðvestur um jaðar Sandfells í Fossá. Frá nefndum skurðpunkti er síðarnefndri línu fylgt í Fossá (v10) og Fossá síðan fylgt að botni Fossgils (v1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Fyrirvari er gerður í gögnum ráðuneytis um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.
Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði."
Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.