Fara í efni

Skipulagsnefnd

101. fundur 25. júní 2026 kl. 13:00 - 15:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingvar Daði Jóhannsson formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Jódís Helga Káradóttir aðalm.
  • Helga Þórsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulag Flæðigerðis, íþróttasvæðis hestamanna - Óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna Flæðagerðis, L189714

Málsnúmer 2606123Vakta málsnúmer

Stefán Logi Haraldsson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir fyrir hönd Flugu hf., þinglýsts lóðarhafa Flæðagerðis, landnr. 189714, sem hefur staðfangið Svaðastaðir reiðhöll skv. gildandi deiliskipulagi, óska eftir heimild til að láta vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flæðagerðis á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsækjandi telur að um óverulega breytingu sé að ræða og breytingin falli því undir 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarsvæðið er sýnt á meðfylgjandi breytingartillögu og afmarkast af lóðamörkum Flæðagerðis, L189714, eins og breytingartillaga sýnir. Breytingin varðar stækkun lóðarinnar um 4,5 m til suðurs eða um 373 m² og stækkun byggingareits um 1859 m². Hámarks byggingarmagn lækkar til sæmræmis og svo hámarks byggingarmagn verður svipað. Breytingarsvæðið er á íþróttasvæði nr. ÍÞ-404, í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035.
Framkvæmdir í tengslum við breytinguna falla ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Að fenginni heimild, til að láta vinna breytingu deiliskipulagi skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er lögð fram meðfylgjandi tillaga óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flæðigerðis, íþróttasvæðis hestamanna, greinargerð og skipulagsuppdráttur nr. DS01, í verki 56291703, dags. 15.06.2026, unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Umhverfisáhrif breytingar eru óveruleg umfram áhrif gildandi deiliskipulags Flæðigerðis, með síðari breytingum. Breytingarsvæðið er fjarri allri íbúðabyggð og næstu íbúðarhús eru í um 1,4 km fjarlægð. Skv. deiliskipulagi fyrir breytingu er þegar gert ráð fyrir uppbyggingu á svæðinu sem breytingin tekur til. Þegar er umferð fólks og hesta um svæðið. Það má því ætla að breytingin, sem hér er til umfjöllunar, hafi óveruleg áhrif á annað dýralíf í nágrenni svæðisins umfram stefnu gildandi deiliskipulags. Byggingarreitur með stækkun er í rúmlega 100 m fjarlægð frá Tjarnartjörn. Þá hefur breytingin sem sótt er um, ekki áhrif á skuggavarp íbúa eða aðgengismál. Umsækjandi telur þetta sýna fram á að breytingin hafi ekki áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið og óskar því eftir að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umsækjendum að láta vinna deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt fellst skipulagsnefndin samhljóða á rök umsækjenda að um óverulega breytingu sé að ræða sem hafi einungis áhrif á umsækjendur og sveitarfélagið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Flæðigerði.

2.Umsókn um stofnun þjóðlendu - Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði

Málsnúmer 2605200Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 19.05.2026 um stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem hér óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008, og dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E-25/2010 og Hrd.350/2011. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.

Landsvæði það sem afmarkað er hér á eftir, þ.e. Vesturhluti Hofsafréttar er þjóðlenda og afréttareign stefndu skv. Hæstaréttardómi í máli nr. 350/2011. Skráð stærð: 275,72 km².
Afmörkun svæðisins er svohljóðandi sbr. úrskurð óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 og einnig meðf. kort.
Frá botni Fossgils (v1) er línan dregin beina stefnu í Vestari-Jökulsá á móts við þann stað þar sem Fremri-Hraunlækur fellur í hana (v2). Þaðan er Vestari-Jökulsá fylgt að upptökum í Hofsjökli (v3) og þaðan jökulrönd Hofsjökuls til austurs að upptökum Bleikálukvíslar (v4) sem síðan er fylgt að þeim stað þar sem hún rennur í Runukvísl (v5). Þaðan er Runukvísl fylgt að þeim stað þar sem Hraunþúfuá rennur í hana (v6). Frá ármótum Runukvíslar og Hraunþúfuár er Hraunþúfuá fylgt að upptökum vestustu kvíslar hennar (v7). Frá upptökum vestustu kvíslar Hraunþúfuár er línan dregin í austurbrúnir Lambárfells (v8) og þaðan beina stefnu í átt að Fossárfelli þar til komið er að skurðpunkti (v9) við línu sem dregin er beina stefnu frá enda Hraunþúfugils, þar sem kallaðir eru Sporðar, í norðvestur um jaðar Sandfells í Fossá. Frá nefndum skurðpunkti er síðarnefndri línu fylgt í Fossá (v10) og Fossá síðan fylgt að botni Fossgils (v1).
Landsvæði þetta er þjóðlenda og um slík landsvæði fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttar, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Að því leyti sem fylgt er jökuljaðri er miðað við stöðu jökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.

Fyrirvari er gerður í gögnum ráðuneytis um nákvæmni hnitpunkta í hnitaskrá þar sem skekkjumörk geta verið allt að 500 m, hnitakerfi er ÍSN93. Kortagrunnur er byggður á stafrænum gögnum Náttúrufræðistofnunnar og Veðurstofunnar.

Línur sem liggja samsíða hafa sömu staðsetningu.
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 5. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði íslands.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði.

3.Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki

Málsnúmer 2602106Vakta málsnúmer

Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.

Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.

Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022.

4.Birkimelur 5 (146091) - Lóðarmál

Málsnúmer 2605183Vakta málsnúmer

Sindri Freyr Baldursson og Guðný María Torfadóttir lóðareigendur Birkimels 5 í Varmahlíð óska eftir við skipulagsnefnd að fá afmörkun lóðarinnar staðfesta ásamt því að gerð verði merkjalýsing.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að gera lóðarblað og merkjalýsingu skv. fyrirliggjandi gögnum vegna lóðarinnar við Birkimel 5 í Varmahlíð jafnframt því að skoða lóðarmál aðliggjandi lóða, þar að segja Birkimels 3, 7 og 9.

5.Lóð fyrir spennistöð og tilkynnt framkvæmd - Hólar í Hjaltadal

Málsnúmer 2606126Vakta málsnúmer

Rarik óskar eftir stofnun lóðar úr L146440, á Hólum í Hjaltadal. Ný lóð verður 20 m2 og er undir spennistöð sem verður hluti af dreifikerfi Rarik.
Landheiti hinna nýju lóða vísa í heiti upprunajarðar, Hólar-spennistöð.
Merkjalýsing og uppdráttur var unnin af Verkráð ehf. Merkjalýsing var unnin fyrir landeigendur (FSRE) og Rarik. Sjá meðfylgjandi gögn.
Gerður verður lóðaleigusamningur milli FSRE og Rarik.

Með tölvupósti dags. 20.05. síðastliðinn upplýsir Rarik að á lóðinni verður sett upp spennistöð Rafal hús (smáhýsi) u.þ.b. 11 m2. Send verða gögn (skráningatafla og uppdráttur) til starfsmanns sveitarfélagsins um leið og landnúmer hefur verið gefið út. Framkvæmdin fellur undir i lið 2.3.6 gr. í byggingareglugerðar nr 112/1012 með síðari breytingum.
Þessi framkvæmd tengist Landsmóti hestamanna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun lóðar og bendir jafnframt á að fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 og umsækjandi skal vera í sambandi við byggingarfulltrúa vegna þessa.

6.Fellstún 2 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2606093Vakta málsnúmer

Guðmundur Kr. Hermundsson og Nanna A. Jónsdóttir lóðarhafa Fellstúns 2 á Sauðárkróki óska eftir að fá að breikka innkeyrslu/bílastæði lóðarinnar um 6 metra til suðurs. Umbeðin framkvæmd er yfir gangstétt sveitarfélagsins sem þyrfti þá að breyta og lækka þar kantsteininn. Umsækjendur óska eftir að að vinna breytinguna á eigin kostnað og að hún verði unnin í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar. Með umsókninni fylgja gögn sem gera betur grein fyrir umbeðinni framkvæmd.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Fellstúns 2 á Sauðárkróki.
Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

7.Reykir L146213 - Umsókn um millispildu, sameiningu lóða, staðfestingu hnitsetningar og breytt eignarheiti

Málsnúmer 2606099Vakta málsnúmer

Dagur Torfason og Rebekka Rún Helgadóttir f.h. Heyanna ehf. sækja um heimild til að stofna 247,9 m2 spildu úr landi jarðarinnar Reykir landnr. 146213, sem "Reykir Millispilda", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 783501 dags. 11. mars 2026. Afstöðuuppdráttur unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsingu sem einnig er unni á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Umbeðna millispildu á að sameina lóðinni Reykir lóð (landnr. 217185), eign Jóhannesar Sigurjónssonar sem einnig undirritar erindið þar sem hann einnig samþykkir fyrirhugaða sameiningu millispildunnar við lóðina, Reykir lóð (landnr. 217185).
Aðilar sækja einnig um staðfestingu hnitsetningar lóðarinnar Reykir lóð eins og þau koma fram á framangreindum uppdrætti og í merkjalýsingu.
Þá sækir Jóhannes Sigurjónsson um leyfi fyrir nafnbreytingu lóðarinnar Reykir lóð (landnr. 217185) og að lóðin fái heitið "Indriðahús", breytt landheiti vísi til fyrri eiganda.
Öll hlunnindi tilheyri áfram Reykir landnr. 146213.
Stækkunin samræmist Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Í kafla 3.7 um skipulagsákvæði þegar taka á land úr landbúnaðarnotum, skipta því eða sameina, segir meðal annars: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi:
Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Jafnframt hvort fremur megi taka annað land til sömu nota, sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar.
Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands.
Hvort áform leiði af sér að girt sé fyrir búrekstrarnot í framtíðinni."
Með vísan til ofangreinds er tekið fram að landið sem bætist við lóðina er einungis 247,9 m² og er því ekki stærra en þörf krefur vegna lagfæringar á mörkum. Stækkunin leiðir ekki af sér skerðingu á búrekstrarnotum eða ræktunarmöguleikum upprunajarðarinnar í flokki L-1 og L-2.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan hnitsettrar lóðar.
Engin mannvirki eru innan stækkunar lóðar. Mannvirki innan landeignarinnar Reykir lóð er matshluti 01 sem er einbýlishús, 142,9 m2 að stærð, byggt árið 1971 og matshluti 02 sem er véla/ verkfærageymsla, 64 m2 að stærð, byggt árið 1978.
Lögbýlarétturinn er óbreyttur og mun áfram fylgja Reykir, landnr. 146213.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003757.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að samþykkja umbeðna millispildu, sameiningu lóða og staðfestingu hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

8.Beiðni um upplýsingar og samráð vegna merkinga reiðleiða á útivistarsvæði við Skógarhlíð og Sauðárgil

Málsnúmer 2606171Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá 550 Rammvilltum, Ragnhildur Friðriksdóttir, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Lára Halla Sigurðardóttir, Vala Hrönn Margeirsdóttir, Selma Barðdal, Bryndís Lilja Hallsdóttir, Guðrún Eik Skúladóttir þar sem óskað er eftir upplýsingum og samráði vegna merkinga reiðleiða á útivistarsvæði við Skógarhlíð og Sauðárgil.

Umrædd reiðleið er skv. gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og var framkvæmdaleyfi gefið út vegna leiðarinnar árið 2022, mál númer 2206226.
Reiðleiðin hefur verið inni á aðalskipulagi Skagafjarðar frá 2009.
Í bókun sveitarstjórnar Skagafjarðar frá 17.08.2022 stendur m.a.:
“Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum, að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi á grundvelli framkominna gagna. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að sett verði upp fræðsluskilti á þeim stöðum þar sem samnýting mismunandi hagsmunaaðila er á fyrirhugaðri reiðleið."

Skipulagsnefnd leggur til við hestamannafélagið Skagfirðing að vinna við fyrirhuguð fræðsluskilti verði kláruð sem fyrst þar sem samnýting reiðleiðar og umferð mismunandi hagsmunaaðila skal skýrð nánar. Efni fræðsluskiltanna skal yfirfarið af skipulagsnefnd áður en til uppsetningar kemur.

9.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg

Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsögn Veðurstofu Íslands, án athugasemda, sem barst eftir að umsagnartíma lauk.

10.Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2405682Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsögn Veðurstofu Íslands, án athugasemda, sem barst eftir að umsagnartíma lauk.

11.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsögn Veðurstofu Íslands, án athugasemda, sem barst eftir að umsagnartíma lauk.

12.Holtsmúli L145981 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2606065Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa vegna Holtsmúla L145981 þar sem m.a. kemur fram að byggja eigi anddyri og stigahús austan við húsið sem kemur að hluta til í stað eldri forstofur og útitrappna sem á að rífa. Einnig verður byggð forstofa og stigahús við norðvestur horn hússins, þar verður bakinngangur að kjallara.
Núverandi grunnflötur eldra húss er 89,35 m2 en yrði eftir breytingu 118 m2.

Umsagnarbeiðnin afgreidd af skipulagsfulltrúa 08.06.2026:
"Umbeðin framkvæmd hefur ekki áhrif á aðra en umsækjendur þar sem um er að ræða svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Með vísan til þess sem að framan greinir heimilar undirrituð umbeðnar ætlaðar framkvæmdir við Holtsmúla."

13.Naustabakki Hofsós - Leyfi fyrir strenglögn og fyrir jarðspennistöð

Málsnúmer 2606063Vakta málsnúmer

Lögð fram afgreiðsla skipulagsfulltrúa á umsókn Rarik fyrir strenglögn að Naustabakka við Hofsós vegna heimtaugaumsóknar.
Skipulagsfulltrúi gaf heimild fyrir verkefninu þar sem um er að ræða heimtaug að áður samþykktum bygginarreit (mál nr. 2309165).

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 86

Málsnúmer 2605027FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 86 þann 29.05.2026.

15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 87

Málsnúmer 2606004FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 87 þann 12.06.2026.

Fundi slitið - kl. 15:30.