Fara í efni

Reykir L146213 - Umsókn um millispildu, sameiningu lóða, staðfestingu hnitsetningar og breytt eignarheiti

Málsnúmer 2606099

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 101. fundur - 25.06.2026

Dagur Torfason og Rebekka Rún Helgadóttir f.h. Heyanna ehf. sækja um heimild til að stofna 247,9 m2 spildu úr landi jarðarinnar Reykir landnr. 146213, sem "Reykir Millispilda", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 783501 dags. 11. mars 2026. Afstöðuuppdráttur unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsingu sem einnig er unni á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Umbeðna millispildu á að sameina lóðinni Reykir lóð (landnr. 217185), eign Jóhannesar Sigurjónssonar sem einnig undirritar erindið þar sem hann einnig samþykkir fyrirhugaða sameiningu millispildunnar við lóðina, Reykir lóð (landnr. 217185).
Aðilar sækja einnig um staðfestingu hnitsetningar lóðarinnar Reykir lóð eins og þau koma fram á framangreindum uppdrætti og í merkjalýsingu.
Þá sækir Jóhannes Sigurjónsson um leyfi fyrir nafnbreytingu lóðarinnar Reykir lóð (landnr. 217185) og að lóðin fái heitið "Indriðahús", breytt landheiti vísi til fyrri eiganda.
Öll hlunnindi tilheyri áfram Reykir landnr. 146213.
Stækkunin samræmist Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Í kafla 3.7 um skipulagsákvæði þegar taka á land úr landbúnaðarnotum, skipta því eða sameina, segir meðal annars: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi:
Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Jafnframt hvort fremur megi taka annað land til sömu nota, sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar.
Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands.
Hvort áform leiði af sér að girt sé fyrir búrekstrarnot í framtíðinni."
Með vísan til ofangreinds er tekið fram að landið sem bætist við lóðina er einungis 247,9 m² og er því ekki stærra en þörf krefur vegna lagfæringar á mörkum. Stækkunin leiðir ekki af sér skerðingu á búrekstrarnotum eða ræktunarmöguleikum upprunajarðarinnar í flokki L-1 og L-2.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan hnitsettrar lóðar.
Engin mannvirki eru innan stækkunar lóðar. Mannvirki innan landeignarinnar Reykir lóð er matshluti 01 sem er einbýlishús, 142,9 m2 að stærð, byggt árið 1971 og matshluti 02 sem er véla/ verkfærageymsla, 64 m2 að stærð, byggt árið 1978.
Lögbýlarétturinn er óbreyttur og mun áfram fylgja Reykir, landnr. 146213.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003757.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að samþykkja umbeðna millispildu, sameiningu lóða og staðfestingu hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.