Fara í efni

Beiðni um upplýsingar og samráð vegna merkinga reiðleiða á útivistarsvæði við Skógarhlíð og Sauðárgil

Málsnúmer 2606171

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 101. fundur - 25.06.2026

Lagt fram erindi frá 550 Rammvilltum, Ragnhildur Friðriksdóttir, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Lára Halla Sigurðardóttir, Vala Hrönn Margeirsdóttir, Selma Barðdal, Bryndís Lilja Hallsdóttir, Guðrún Eik Skúladóttir þar sem óskað er eftir upplýsingum og samráði vegna merkinga reiðleiða á útivistarsvæði við Skógarhlíð og Sauðárgil.

Umrædd reiðleið er skv. gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og var framkvæmdaleyfi gefið út vegna leiðarinnar árið 2022, mál númer 2206226.
Reiðleiðin hefur verið inni á aðalskipulagi Skagafjarðar frá 2009.
Í bókun sveitarstjórnar Skagafjarðar frá 17.08.2022 stendur m.a.:
“Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum, að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi á grundvelli framkominna gagna. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að sett verði upp fræðsluskilti á þeim stöðum þar sem samnýting mismunandi hagsmunaaðila er á fyrirhugaðri reiðleið."

Skipulagsnefnd leggur til við hestamannafélagið Skagfirðing að vinna við fyrirhuguð fræðsluskilti verði kláruð sem fyrst þar sem samnýting reiðleiðar og umferð mismunandi hagsmunaaðila skal skýrð nánar. Efni fræðsluskiltanna skal yfirfarið af skipulagsnefnd áður en til uppsetningar kemur.