Fræðslunefnd - 49
Málsnúmer 2606015F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026
Fundargerð 49. fundar fræðslunefndar frá 24. júní 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 51. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 49 Sveitarstjóri bar upp eftirfarandi tillögu um kjör formanns, varaformanns og ritara fræðslunefndar: Lagt er til að Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi L-lista verði kjörin formaður, Rósanna Valdimarsdóttir fulltrúi D-lista varaformaður og Elfa Björk Víðisdóttir fulltrúi M-lista ritari. Sigurlína Erla Magnúsdóttir fulltrúi B-lista situr fundina sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Lögð voru fram drög að erindisbréfi fræðslunefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, erindisbréf fræðslunefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
-
Fræðslunefnd - 49 Tillaga að skóladagatölum grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu skólaráðanna skv. grunnskólalögum. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl grunnskólanna samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Tillaga að skóladagatölum leikskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu foreldraráða skv. lögum um leikskóla. Ársalir óska eftir að nýta tvo starfsdaga til námsferðar í maí 2027 og óska jafnframt eftir því að bæta við starfsdegi vegna ferðarinnar eins og tíðkast hefur þegar leikskólar fara í námsferð. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl leikskóla samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2026, sem eru eftirfarandi: 27. ágúst, 24. september, 29. október, 26. nóvember. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 49 Lagður fram tölvupóstur dags. 10. júní 2026 þar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 99/2026, „Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla“. Umsagnarfrestur er til og með 8. júlí 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar fræðslunefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.