Fræðslunefnd
Dagskrá
1.Kjör formanns, varaformanns og ritara í fræðslunefnd
Málsnúmer 2606164Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri bar upp eftirfarandi tillögu um kjör formanns, varaformanns og ritara fræðslunefndar: Lagt er til að Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi L-lista verði kjörin formaður, Rósanna Valdimarsdóttir fulltrúi D-lista varaformaður og Elfa Björk Víðisdóttir fulltrúi M-lista ritari. Sigurlína Erla Magnúsdóttir fulltrúi B-lista situr fundina sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða.
Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi að þessum dagskrárlið loknum.
2.Erindisbréf fræðslunefndar
Málsnúmer 2606162Vakta málsnúmer
Lögð voru fram drög að erindisbréfi fræðslunefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.Skóladagatöl grunnskóla 2026-2027
Málsnúmer 2603295Vakta málsnúmer
Tillaga að skóladagatölum grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu skólaráðanna skv. grunnskólalögum. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl grunnskólanna samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027.
4.Skóladagatöl leikskóla 2026-2027
Málsnúmer 2603296Vakta málsnúmer
Tillaga að skóladagatölum leikskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu foreldraráða skv. lögum um leikskóla. Ársalir óska eftir að nýta tvo starfsdaga til námsferðar í maí 2027 og óska jafnframt eftir því að bæta við starfsdegi vegna ferðarinnar eins og tíðkast hefur þegar leikskólar fara í námsferð. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl leikskóla samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027.
5.Fundir fræðslunefndar á haustönn 2026
Málsnúmer 2606160Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2026, sem eru eftirfarandi: 27. ágúst, 24. september, 29. október, 26. nóvember. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar.
6.Samráð; Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla
Málsnúmer 2606112Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dags. 10. júní 2026 þar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 99/2026, „Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla“. Umsagnarfrestur er til og með 8. júlí 2026.
Fundi slitið - kl. 16:43.