Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd
Dagskrá
Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóri setti fundinn og sat fundinn.
1.Kosning formanns, varaformanns og ritara - Atvinnu- menningar og kynningarnefnd
Málsnúmer 2606140Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri setti fundinn og lagði fram tillögu um Davíð Loga Jónsson sem formann, Guðbjörgu Konráðsdóttur sem varaformann og Sylvíu Sif Halldórsdóttur sem ritara nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Formaður tók við fundarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Formaður tók við fundarstjórn.
2.Skýrsla starfsmanna nefndarinnar
Málsnúmer 2606139Vakta málsnúmer
Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
3.Umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima
Málsnúmer 2602176Vakta málsnúmer
Umræður um svarbréf frá umsækjendum um rekstur á Félagsheimilinu Ljósheimum. Umsækjendur sendu inn erindi þar sem óskað er eftir öðrum forsendum en tilgreind voru í framlögðum samningi.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni umsækjenda og felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni umsækjenda og felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
4.Úrsögn úr hússtjórn félagsheimilisins Melsgils
Málsnúmer 2606118Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Guðrúnu Kristínu Eiríksdóttur, dags. 9. júní 2026 þar sem hún óskar eftir úrsögn úr hússtjórn Félagsheimilisins Melsgils.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða úrsögn Guðrúnar Kristínu úr hússtjórn.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða úrsögn Guðrúnar Kristínu úr hússtjórn.
5.Flugklasinn Air66N
Málsnúmer 2605271Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar skjal frá Markaðsstofu Norðurlands, dags. 21. apríl 2026, þar sem greint er frá því helsta í starfi Flugklasans Air 66N undanfarna mánuði.
6.Aðalfundur MHR 2026
Málsnúmer 2606117Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Stefáni Boga Sveinssyni formanni, f.h. framkvæmdastjórnar MHR, dags. 11. júní 2026. Boðað er til aðalfundar MHR (Miðstöðvar héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu) sem fram fer fimmtudaginn 25. júní nk.
Fundi slitið - kl. 15:18.