Fara í efni

Flugklasinn Air66N

Málsnúmer 2605271

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47. fundur - 23.06.2026

Lagt fram til kynningar skjal frá Markaðsstofu Norðurlands, dags. 21. apríl 2026, þar sem greint er frá því helsta í starfi Flugklasans Air 66N undanfarna mánuði.


Byggðarráð Skagafjarðar - 211. fundur - 01.10.2026

Lagt fram bréf frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 22. september 2026.

Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 22. september 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við Flugklasann Air 66N að fjárhæð 500 kr. á hvern íbúa á ári á tímabilinu 2027-2029.

Byggðarráð tekur undir mikilvægi beins millilandaflugs um Akureyrarflugvöll fyrir ferðaþjónustu og byggðaþróun á Norðurlandi og fagnar þeim árangri sem náðst hefur með starfi Flugklasans Air 66N. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að tryggð verði varanleg og fyrirsjáanleg fjármögnun verkefnisins af hálfu Isavia enda er verkefnið ein af stoðum áframhaldandi þróunar ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Byggðarráð bendir á að verkefnið hefur að verulegu leyti það hlutverk að sinna uppbyggingu innviða og markaðsstarfi sem fellur undir ábyrgð Isavia. Ekki verður því talið eðlilegt að sveitarfélög beri áfram vaxandi kostnað af verkefninu til lengri tíma.

Byggðarráð vísar til ákvörðunar sinnar á 73. fundi þann 29. nóvember 2023 um að veita verkefninu styrk á árinu 2024 og að ekki yrði um frekari fjárveitingar frá sveitarfélaginu að ræða til verkefnisins. Byggðarráð staðfestir þá afstöðu og telur sér því ekki fært að verða við erindi Markaðsstofu Norðurlands um frekari fjárhagslegan stuðning við Flugklasann Air 66N.