Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 197

Málsnúmer 2606001F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026

Fundargerð 197. fundar byggðarráðs frá 10. júní 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 51. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Lögð voru fram drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að erindisbréfi byggðarráðs Skagafjarðar og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Erindisbréf byggðarráðs, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 26. maí 2026 frá Halldóri Gunnlaussyni, framkvæmdastjóra Farskólans. Í tölvupóstinum er boðað til aðalfundar Farskólans sem haldinn verður fimmtudaginn 11. júní næstkomandi klukkan 14:00 í húsnæði Farskólans við Faxatorg. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Eitt kauptilboð hefur borist í eignina Háholt, fasteignanúmer F2241037.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna tilboðinu og felur Evu Dögg Bergþórsdóttur hjá Fasteignasölu Sauðárkróks að svara tilboðinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 93/2026, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)".

    Umsagnarfrestur er til og með 19.06.2026.

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að ráðist sé í vinnu við endurskoðun hafnalaga og tekur undir mikilvægi þess að skýra lagagrundvöll gjaldtöku hafna.

    Hafnir gegna lykilhlutverki í innviðum landsins og eru undirstaða atvinnulífs víða um land. Þá eru hafnir mikilvægar fyrir þróun ferðaþjónustu með móttöku skemmtiferðaskipa, sér í lagi á svæðum sem eru utan alfararleiðar. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hafnir geti staðið undir fjárfestingum í uppbyggingu mannvirkja til að styðja við framtíðartækifæri í atvinnuþróun viðkomandi svæða.

    Í þessu samhengi bendir byggðarráð á að hafnarmannvirki eru fjárfrekir innviðir þar sem uppbygging, viðhald og endurnýjun mannvirkja krefst verulegrar langtímafjárfestingar sem erfitt er að standa undir eingöngu með rekstrartekjum, sérstaklega í smærri byggðarlögum. Hafnarbótasjóður gegnir þar lykilhlutverki við að jafna aðstöðu hafna og tryggja að unnt sé að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir þrátt fyrir mismunandi rekstrarforsendur og tekjugrunn.

    Byggðarráð leggur áherslu á að samhliða skýrari heimildum til gjaldtöku verði tryggt að fjármögnunarumhverfi hafna sé heildstætt og stöðugt, þar sem samspil tekna hafnarsjóða og framlaga úr Hafnabótasjóði gerir höfnum kleift að fjárfesta í uppbyggingu til framtíðar. Nauðsynlegt er að ríkið tryggi sjóðnum nægilegt fjármagn til að unnt sé að standa undir mótframlögum til fjárfestinga í hafnarmannvirkjum, enda eru slík verkefni forsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar.

    Byggðarráð bendir þá einnig á að hafnir eru sér skipulagssvæði. Hagræða mætti í stjórnsýslu sveitarfélaga ef skipulagsmál sveitarfélagsins í heild væru á einni hendi, það er skipulagsnefndar hvers sveitarfélags fyrir sig.
    Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 197 Lagður fram tölvupóstur frá Jafnréttisstofu dagsettur 27. maí 2026. Í tölvupóstinum er boðað til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður í Múlabergi á Akureyri, fimmtudaginn 17. september 2026 milli klukkan 9:30 til 15:00. Bókun fundar Afgreiðsla 197. fundar byggðarráðs var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.