Lagt fram erindi Umhverfis- og orkustofnunar, dags. 18. júní 2026, þar sem óskað er umsagnar sveitarfélagsins vegna umsóknar Skagafjarðarveitna um rannsóknarleyfi á grunnvatni (lindum) í Hrafndal samkvæmt lögum nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
Forseti gerir að tillögu sinni, byggt á fyrirliggjandi gögnum, að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við að rannsóknarleyfi verði veitt, enda verði rannsóknir framkvæmdar í samræmi við gildandi lög, reglugerðir og þau skilyrði sem Umhverfis- og orkustofnun kann að setja í leyfinu.
Vert er að benda á að veiting rannsóknarleyfis felur ekki í sér afstöðu til mögulegrar framtíðarnýtingar auðlindarinnar, sem eftir atvikum yrði háð frekari leyfisveitingum og málsmeðferð samkvæmt lögum.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.