Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
1.Viljayfirlýsing um Rannsóknarsetur íslenska hestsins
Málsnúmer 2606128Vakta málsnúmer
Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað undir þessum lið.
Hólmfríður kynnti hugmyndir um að koma á fót nýju rannsóknarsetri HÍ á Hólum með áherslu á rannsóknir á íslenska hestinum.
Byggðarráð þakkar Hólmfríði fyrir góða kynningu og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við rektor.

2.Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605233Vakta málsnúmer
Lögð var fram beiðni um viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2026.
Í framlögðum viðauka er gert ráð fyrir 1,6 m.kr. útgjöldum vegna tölvukaupa fyrir kjörna fulltrúa, 2 m.kr. útgjöldum vegna milliuppgjörs fjárhags sveitarfélagsins í kjölfar eignabreytinga ásamt áætluðum kostnaði að upphæð 5 m.kr. við framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst næstkomandi og 5 m.kr. endurgreiðslu ríkisins fyrir framangreindri þjóðaratkvæðagreiðslu. Samtals 3,2 m.kr. rekstrarviðauki.
Einnig eru framkvæmdir við klæðningu vesturhliðar A-álmu Árskóla áætlaðar 11,4 m.kr. auk 4,2 m.kr. til hönnunar og uppsetningar útboðsgagna vegna framkvæmda við Grundarstíg á Sauðárkróki.
Niðurstaða viðaukans er lækkun á handbæru fé um 18,8 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Rammaáætlun Skagafjarðar 2027
Málsnúmer 2606052Vakta málsnúmer
Umræður voru teknar um forsendur rammaáætlunar 2027.
Lagt er til að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands um hækkun verðlags á rekstrarliðum. Launaliður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum.
Í ljósi þess að fasteignamat hækkar einungis að meðaltali um 2,8% sem er umtalsvert undir verðbólguspám er gert ráð fyrir því að álagningarstuðlar haldist óbreyttir.
Grunnur rammaáætlunar verður samþykkt fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2026 með þeim viðaukum sem hafa verið samþykktir við stofnun rammans.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu samhljóða.

4.Hofsóskirkjugarður - framkvæmdir 2026
Málsnúmer 2512055Vakta málsnúmer
Lagður var fram tölvupóstur frá Kristínu Bjarnadóttur, formanns sóknarnefndar Hofsóskirkju, dagsettur 16. júní 2026.
Í tölvupóstinum fer Kristín þess á leit við sveitarfélagið að sveitarfélagið taki þátt í efniskostnaði vegna efnis í kirkjugarðsstígs frá Hofsóskirkju að kirkjugarðinum, með vísan til 13. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Kostnaður vegna efnis og flutnings er 1,5 m.kr. Byggðarráð áréttar að vegna kostnaðarþátttöku sveitarfélags skal umsókn berast sveitarfélaginu ekki síðar en í september árinu áður.
Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að tryggja fjármagnið í fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027.

Fundi slitið - kl. 11:34.