Fara í efni

Rammaáætlun Skagafjarðar 2027

Málsnúmer 2606052

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 198. fundur - 19.06.2026

Umræður voru teknar um forsendur rammaáætlunar 2027.

Lagt er til að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands um hækkun verðlags á rekstrarliðum. Launaliður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum.

Í ljósi þess að fasteignamat hækkar einungis að meðaltali um 2,8% sem er umtalsvert undir verðbólguspám er gert ráð fyrir því að álagningarstuðlar haldist óbreyttir.

Grunnur rammaáætlunar verður samþykkt fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2026 með þeim viðaukum sem hafa verið samþykktir við stofnun rammans.

Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu samhljóða.

Byggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026

Margeir Friðriksson, fjármálastjóri, kom á fundinn og fór yfir framlagðan fjárhagsramma fyrir árið 2027 og helstu forsendur hans.
Fram kom að rammaáætlunin byggir á samþykktri fjárhagsáætlun ársins 2026 með samþykktum viðaukum. Miðað er við 2,5% hækkun almennra rekstrarliða í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands en launakostnaður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum og öðrum forsendum um þróun vinnumarkaðarins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun 2027 sem grundvöll vinnu við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar fyrir árin 2028 - 2030. Fjárhagsramma er vísað til nefnda.