Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
Á 51. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026, var samþykkt að veita byggðarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála með vísan til 6. mgr. 32. gr. samþykkta um stjórn Skagafjarðar í sumarleyfi sveitarstjórnar, skv. III. kafla 8. gr. samþykkta sveitarfélagsins. Sumarleyfið hefst 2. júlí 2026 og stendur til og með 18. ágúst 2026.
1.Uppbygging á hóteli og skrifstofubyggingu - kynning
Málsnúmer 2602106Vakta málsnúmer
Viggó Jónsson og Örn Arnarsson kynntu hugmyndir sínar um uppbyggingu hótels og skrifstofubyggingar á Flæðunum á Sauðárkróki. Málið tengist umsókn þeirra um þróunarreit fyrir verkefnið. Farið var yfir þau svæði sem helst koma til greina fyrir slíka starfsemi á Sauðárkróki og rætt um möguleika og forsendur uppbyggingar.
Byggðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
Byggðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
2.Skipulag og stöðugildi á fjölskyldusviði
Málsnúmer 2606012Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi sviðsstjóra fjölskyldusviðs þar sem óskað er eftir breytingum á skipulagi sviðsins, annars vegar með því að breyta starfi verkefnastjóra fræðslumála í starf leiðtoga fræðslumála og hins vegar með aukningu á stöðugildi ráðgjafa um 66,7% til að mæta auknu umfangi og flóknari verkefnum á sviðinu.
Byggðarráð samþykkir aukningu á stöðugildi ráðgjafa um 66,7% frá og með 1. ágúst 2026.
Málinu er vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun, 3,5 m.kr.fyrir árið 2026. Jafnframt er lagt til að við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 verði skoðað hvernig hægt sé að hagræða á móti þessari aukningu.

3.Kjörstaðir við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
Málsnúmer 2607024Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga um kjörstaði vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 29. ágúst 2026 um áframhald viðræðna Íslands við Evrópusambandið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að eftirfarandi kjörstaðir verði starfræktir við atkvæðagreiðsluna:
Bóknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki,
Varmahlíðarskóli í Varmahlíð,
Grunnskólinn austan Vatna á Hofsósi.

4.Samþykkt um fráveitu í Skagafirði - 2026
Málsnúmer 2605179Vakta málsnúmer
Málið er hér lagt fyrir byggðarráð til síðari umræðu.
Kynnt drög að uppfærðri samþykkt um fráveitu í Skagafirði nr. 1402 frá 12. des. 2023. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkti samhljóða drögin á 47. fundi nefndarinnar þann 11. maí 2026 og vísaði til sveitarstjórnar.
Drögin voru samþykkt í fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar nr. 51 þann 1. júlí 2026.
Afgreiðsla 51. fundar sveitarstjórnar þann 1. júlí 2026 staðfest á 202. fundi Byggðarráðs þann 16. júlí 2026 með þremur atkvæðum.
Byggðarráð, í umboði sveitarsjórnar, samþykkir framlagða samþykkt um fráveitu í Skagafirði 2026.

5.Upprekstrarfélag Eyvindarstaðarheiðar - beiðni vegna Ströngukvíslarskála
Málsnúmer 2607048Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Upprekstrarfélagi Eyvindarstaðarheiðar þar sem óskað er eftir að borað verði eftir köldu vatni við Ströngukvíslarskála vegna viðvarandi vatnsskorts og ófullnægjandi vatnsöflunar við skálann.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna innsendu erindi.
Jafnframt telur Byggðarráð mikilvægt að fá heildstæða mynd af stöðu og framtíðarsýn varðandi rekstur og uppbyggingu á svæðinu. Byggðarráð felur því sveitarstjóra að boða til fundar með fulltrúum Húnabyggðar og stjórn Upprekstrarfélags Eyvindarstaðareiðar til að fara yfir stöðu félagsins.

6.Skipan í farsældarráð NV
Málsnúmer 2607034Vakta málsnúmer
Á 165. fundi byggðarráðs þann 9. október 2025 samþykkti byggðarráð samhljóða samstarfssamning um svæðisbundið farsældarráð á Norðurlandi vestra í samræmi við 5. gr. laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Sveitarstjórn Skagafjarðar staðfesti samninginn á 42. fundi sínum.
Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga hefur verið óskað eftir endurnýjuðum tilnefningum kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins í farsældarráð Norðurlands vestra.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að skipa Rósönnu Valdimarsdóttir fyrir hönd flokka í meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar og Halldór Jón Sigurðsson fyrir hönd flokka í minnihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar.

7.Skipun í Samráðshóp um málefni fatlaðs fólks skv. 42.gr. félagsþj.
Málsnúmer 2303099Vakta málsnúmer
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks er skipaður samkvæmt 42. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og skal vera starfræktur á sameiginlegu þjónustusvæði Norðurlands vestra um þjónustu við fatlað fólk. Fjallað er um samráðshópinn í gr. 2.10 í samningi sveitarfélaga um þjónustuna.
Byggðarráð samþykkir að skipa Guðrúnu Sonju Birgisdóttur sem fulltrúa Skagafjarðar í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra.

8.Unglingalandsmót UMFÍ 2026 - mælar á tjaldsvæði
Málsnúmer 2604118Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi varðandi uppbyggingu rafmagnsaðstöðu á tjaldsvæði Unglingalandsmóts UMFÍ 2026. Fram kemur að nauðsynlegt sé að koma upp mælingum við spennistöðvar á svæðinu í samræmi við kröfur RARIK til að tryggja fullnægjandi rafmagnsafhendingu og öryggi á tjaldsvæðinu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða kaup á nýjum spennuskápum með mælum ásamt uppsetningu frá Tengli ehf. vegna tjaldsvæðisins. Um er að ræða varanlega innviðauppbyggingu sem mun nýtast við framtíðarviðburði á svæðinu. Áætlaður kostnaður vegna verkefnisins er 4 m.kr.og er vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun. Tekjur af tjaldsvæðinu vegna unglingalandsmóts 2026 munu renna til sveitarfélagsins skv. samkomulagi.

9.Rammaáætlun Skagafjarðar 2027
Málsnúmer 2606052Vakta málsnúmer
Margeir Friðriksson, fjármálastjóri, kom á fundinn og fór yfir framlagðan fjárhagsramma fyrir árið 2027 og helstu forsendur hans.
Fram kom að rammaáætlunin byggir á samþykktri fjárhagsáætlun ársins 2026 með samþykktum viðaukum. Miðað er við 2,5% hækkun almennra rekstrarliða í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands en launakostnaður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum og öðrum forsendum um þróun vinnumarkaðarins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða rammaáætlun 2027 sem grundvöll vinnu við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar fyrir árin 2028 - 2030. Fjárhagsramma er vísað til nefnda.

10.Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag
Málsnúmer 2101290Vakta málsnúmer
Mál tekið fyrir með afbrigðum.
Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
„Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Glaumbæ í Skagafirði, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 25.06.2026, verknr. SSDS-2501 unnin af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands fyrir Byggðasafn Skagfirðinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir „Glaumbæ í Skagafirði“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir „Glaumbæ í Skagafirði“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

11.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
Mál tekið fyrir með afbrigðum.
Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
„Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 24.06.2026, unnin af Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir „Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir „Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt áréttar meirhluti byggðarráðs að með auglýsingu tillögunnar sé ekki tekin afstaða til framtíðarstaðsetningar tjaldsvæðis á Sauðárkróki.

12.Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2606204Vakta málsnúmer
Lagt fram svar mennta- og barnamálaráðuneytisins við bókun byggðarráðs Skagafjarðar frá 28. júní 2026 vegna reglugerðar um þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Byggðarráð fagnar því að ráðuneytið hafi brugðist við ábendingum sveitarfélagsins og skýrt afstöðu sína. Byggðarráð er þó áfram þeirrar skoðunar að ný reglugerð þrengi umfang samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 með þeim hætti að ábyrgð og kostnaður vegna ákveðins hóps barna verði áfram hjá sveitarfélögum þrátt fyrir væntingar sem samkomulagið vakti.
Byggðarráð ítrekar mikilvægi þess að skýr samstaða ríki milli ríkis og sveitarfélaga um túlkun samkomulagsins og ábyrgðarskiptingu í þessum viðkvæma málaflokki. Þá leggur byggðarráð áherslu á að þjónusta við börn með fjölþættan vanda og fjölskyldur þeirra verði tryggð óháð ágreiningi um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu.
Svar ráðuneytisins er lagt fram til kynningar.

13.Sjálfbærnistefna Landsmóts hestamanna
Málsnúmer 2607045Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá sjálfbærniráðgjafa Landsmóts hestamanna 2026 þar sem kynnt er verkefni um innleiðingu ábyrgra starfshátta við framkvæmd mótsins. Verkefnið felur meðal annars í sér markvissa gagnasöfnun um helstu umhverfisþætti mótsins, svo sem raforkunotkun, samgöngur og úrgangsflokkun, og er unnið í samstarfi við Háskólann á Hólum.
Byggðarráð fagnar framtakinu og telur verkefnið geta skapað mikilvæga þekkingu sem nýtast kann við skipulag og framkvæmd stórra viðburða í Skagafirði til framtíðar. Byggðarráð þakkar fyrir upplýsingarnar og lýsir áhuga á að fá kynningu á niðurstöðum verkefnisins þegar þær liggja fyrir.

Fundi slitið - kl. 10:15.