Fara í efni

Upprekstrarfélag Eyvindarstaðarheiðar - beiðni vegna Ströngukvíslarskála

Málsnúmer 2607048

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026

Lagt fram erindi frá Upprekstrarfélagi Eyvindarstaðarheiðar þar sem óskað er eftir að borað verði eftir köldu vatni við Ströngukvíslarskála vegna viðvarandi vatnsskorts og ófullnægjandi vatnsöflunar við skálann.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna innsendu erindi.
Jafnframt telur Byggðarráð mikilvægt að fá heildstæða mynd af stöðu og framtíðarsýn varðandi rekstur og uppbyggingu á svæðinu. Byggðarráð felur því sveitarstjóra að boða til fundar með fulltrúum Húnabyggðar og stjórn Upprekstrarfélags Eyvindarstaðareiðar til að fara yfir stöðu félagsins.

Byggðarráð Skagafjarðar - 206. fundur - 27.08.2026

Stjórn Upprekstrarfélagsins Eyvindarstaðarheiðar þau Guðmundur Rúnar Halldórsson, Guðmundur Haukur Jakobsson, Björn Grétar Friðriksson og Þórunn Eyjólfsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Einnig sátu fundinn Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi Skagafjarðar auk Péturs Arasonar, sveitarstjóra Húnabyggðar sem sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Sjórn Eyvindarstaðaheiðar kynnti fyrirliggjandi beiðni um borun eftir vatni. Jafnframt fóru fram umræður um stöðu félagsins og starfsemi þess.

Byggðarráð þakkar stjórn og gestum fyrir komuna og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum. Byggðarráð samþykkir samhljóða að settur verði á fót vinnuhópur til að skoða framtíðar fyrirkomulag rekstrar á skálum á Eyvindarstaðaheiði. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.